Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 17
frD
1
mm§
Andlit Mariu Filippi er mark-
að þjáningum og biturð, og ekki
að ástæðulausu. Hún stendur
sem vitni frammi fyrir réttinum
í Aquila á Ítalíu; ákærðir eru
átta framkvæmdastjórar og
verkfræðingar. Þeim er borið á
brýn að hafa valdið dauða eitt
þúsund níu hundruð fjörutíu og
fjögurra manna með ruddalegu
kæruleysi í sambandi við bygg-
ingu stíflu nokkurrar.
Maria Filippi er sú eina eftir-
lifandi af níu manna fjölskyldu.
Hið eina, sem hún hefur til
minningar um sína látnu ástvini
er myndin, sem hún heldur á.
Það var níunda október 1963
að stíflan við Vajont í Norður-
Ítalíu brast. Tvö hundruð og
fimmtíu milljónir kúbíkmetra af
jarðvegi fór af stað og gífurleg
flóðalda drekkti Piavidal.
Heimaþorp Mariu Filippi, Lon-
garone og tvö þorp önnur ger-
eyddust. Rannsókn málsins hef-
ur tekið fimm ár og sýnt að
þessar hamfarir voru ekki frá
náttúrunnar hendi, heldur vegna
hirðuleysis af hálfu verkfræð-
inga sem stífluna byggðu, og
hlutaðeigandi verkfræðinga.
Níu menn voru upprunalega
ákærðir, en verkfræðingur sá,
sem hafði yfirstjórn verksins á
hendi, stóðst ekki yfirheyrslurn-
ar og framdi sjálfsmorð. ☆
„Eg bíð bara eftir, að karl-
mennirnir fari að ganga í pils-
um“, sagði íslenzkur klæðskeri
í viðtali við eitt dagblaðanna ný-
lega. Lesendur hafa eflaust bros-
að að þessu, þegar þeir lásu það,
en hvað gerist ekki nú á dögum
í heimi tízkunnar? Þessi mynd
er tekin úr nýlegu brezku blaði,
og hún er eins og sjá má af einni
stúlku í buxum og tveimur strák-
um — í pilsum! Það er sérstak-
lega tekið fram í myndatextan-
um, að hér sé ekki um Skota að
ræða. ☆
Joan Crawford, fyrrverandi
kvikmyndaleikkona í Hollywood,
er nú einn af forstjórum Pepsi-
Cola-verksmiðjunnar, á dóttur,
24 ára gamla. Hún hefur gerzt
leikkona eins og móðir hennar,
og leikur um þessar mundir í
vikulegum sjónvarpsþætti, sem
heitir „The Secret Storm“. Ný-
lega veiktist hún og varð að
gangast undir uppskurð á
sjúkrahúsi. Hún hafði stórt hlut-
verk með höndum í sjónvarps-
þættinum, lék unga húsmóður.
Þegar Joan Crawford hringdi til
stjórnanda þáttarins og tilkynnti
veikindi dóttur sinnar, varð hann
mjög miður sín og sagðist ekki
sjá fram á annað, en þátturinn
yrði að falla niður, á meðan ung-
frúin væri veik.
— Nei, það má ekki koma
fyrir, sagði Joan Crawford. —
Við hljótum að geta bjargað mál-
inu einhvern veginn.
Og þegar hún sleit samtalinu
við stjórnandann hafði hún fall-
ist á að hlaupa sjálf í skarðið
fyrir dóttur sína og leika ungu
húsmóðirina í tveimur þáttum.
Hún gerði þetta og tókst með
afbrigðum vel. Enginn sá neitt
athugavert við, þótí hún léki
unga húsmóður, en Joan Craw-
ford varð nefnilega sextug fyrir
fáum vikum! ☆
Sj ón varpsþættirnir
kettina, sem íslenzka sjóri
ið sýnir öðru hverju, haf;
með afbrigðum apakattarlegir.
Meira að segja táningarnir hafa
ekki haft neina ánægju af þeim.
En engu að síður eru Apakett-
irnir vinsælir í Bandaríkjunum
og einnig víða í Evrópu. Og auð-
vitað eru þeir orðnir flugríkir
rir löngu. A myndinni sjáum
við Micky Dolenz, en aðal tóm-
stundagaman hans er að aka
hinum svokölluðu „go-kart“-
bílum. Hann hefur gengið svo
langt að' láta byggja sérstaka
bílabraut við heimili sitt í Los
Angeles. ☆
V.
i2. tw. yiKAN 17