Vikan - 20.03.1969, Blaðsíða 14
Listræn auglýsingaspjöld, eða plakot eíns og
pau eru oft nefnd í daglegu tali, hafa átt vax-
andi gengi að fagna á undanförnum árum. I
Bandaríkjunum eru þau til dæmis orðin svo
vinsæl, að um eins konar tízkufyrirbrigði virð-
ist vera að ræða. Litrík auglýsingaspjöld eru
ekki aðeins til skrauts og prýði á veggjum og í
verzlunargluggum, heldur eru þau nú orðin
eitthvert gagnlegasta listformið. Farið er að
auglýsa allt milli himins og jarðar með aug-
Iýsingaspjöldum, ekki aðeins listsýningar, há-
tíðir og skemmtanir, heldur einnig heimilis-
tæki og alls konar varning annan.
Auglýsingaspjöldin eiga rætur sínar að rekja
til opinberra tilkynninga, sem festar voru upp
á staurum og húsveggjum hér á öldum áður.
Síðan liafa þau þróazt smátt og smátt og tekið
á sig listrænt form, sem þó hefur þann kost að
vekja athygli vegfarandans og gleðja augað.
Fyrir nokkrum árum tóku menn að safna aug-
lýsingaspjöldum og hefur sú árátta vaxið hröð-
um skrefum að undanförnu. Söfnun auglýsinga-
spjalda hefur þann kost, að spjöldin eru ódýr
og hver sem er getur safnað þeim fjárhagsins
vegna.
f flestum stærri borgum Bandaríkjanna hafa
risið upp verzlanir, sem selja eingöngu auglýs-
ingaspjöld. Til skamms tíma voru slík spjöld
aðeins prentuð í litlu upplagi, en nú skiptir það
hins vegar tugum þúsunda. f fjöldamörg ár var
gefið út lítið, alþjóðlegt tímarit, sem hét Grap-
his, og fjallaði eingöngu um auglýsingateiknun.
Allt í einu er upplag þessa blaðs komið yfir
milljón eintök á mánuði!
Það er einkanlega unga fólkið, sem hefur
smekk fyrir auglýsingaspjöldum, og skreytir
herbergi sín með þeim hátt og lágt. En jafnvel
á fínum heimilum ríka fólksins má sjá auglýs-
ingaspjöld hanga í stássstofum innan um dýr-
mæt verk gömlu meistaranna.
★
' "/mm
Poster Originals, Limited,
nefnist ein af verzlununum
í New York, sem eingöngu
selja auglýsingaspjöld.
Táningarnir skreyta her-
bergi sín hátt og lágt með
litríkum og nýtízkulegum
augíýsingaspjöldum. |
14 VIKAN 12-tbl