Vikan - 23.10.1969, Blaðsíða 5
/
ENGINN FÆR VIÐ ÁRIN RÁÐIÐ
Hún hefur til skamms tíma
verið álitin fegursta kona heims
og er jafnframt í hópi beztu
skapgerðarleikara, sem nú eru
uppi. Elizabeth Taylor leikur
hvert stórhlutverkið á faetur
öðru og samvinna hennar og
manns hennar, Richard Burtons,
þykir einstæð í sögu kvikmynd-
anna. En hún fær ekki ráðið við
aldurinn, fremur en önnur jarð-
arbörn. Hún hefur alltaf verið
svolítið feitlagin, en ætli menn
hafi almennt gert sér ljóst,
hvernig hún lítur út í raun og
veru nú orðið? Myndin efst á
síðunni var tekin á liðnu sumri.
Henni var reyndar „stolið“, því
að Elizabeth hafði ekki hugmynd
um, að ljósmyndari leyndist í
nágrenninu, þegar hún sólaði sig
í Puerto Valerta ásamt manni
sínum. Til samanburðar birtum
við mynd af henni, eins og hún
leit út fyrir tíu árum. Þótt feg-
urðin kunni að vera farin að
fölna, eins og eðlilegt er, er ekki
hið sama að segja um list henn-
ar. Þau hjónin leika um þessar
mundir í mynd, sem verið er að
gera um Henrik 8. eftir hinu
fræga leikriti Shakespears. Og
því er spáð, að það verði enn
einn sigur þeirra hjóna á lista-
brautinni.
☆
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Börnum ratast oft satt á
munn. Svo undarlega brá
við eitt kvöld hér á dögun-
um, að ekki var rigning og
dimmviðri, eins og verið
hefur í allt sumar Aldrei
þessu vant var fallegt sól-
setur. Þriggja ára telpu-
hnokki var á gangi með
móður sinni. Hún horfði
nokkra stund á kvöldroð-
ann, en sagði síðan: „Þarna
á góða veðrið hevma,
mamma.“
V____________________________/
# vísur vikunnar
Þótt alltaf virðist eitthvað að jafnaði ske
er oftast nokkur hörgull á merkum fréttum
samt reynist aldrei á róstum og deilum hlé
og ríkið er komið í stríð út af sigarettum.
En fólkið vinnur og stundar af kappi sín störf
og stjórnarvöldin af iðni og dug þess raupa
en það sem talið er óhollt og engum þörf
er yfirleitt það sem flesta langar að kaupa.
V___________________________________________j
HÚN LÆTUR LJÓN SOFA í RÚMINU SÍNU
Það er algengt, að krakkar láti
hunda og ketti sofa hjá sér. En
líklega er Kathy Bloom eina átta
ára stúlkan í heiminum, sem læt-
ur heilt ljón sofa hjá sér. Ljónið
er átta mánaða gamalt karlljón
og heitir Haraldur. Hann er blíð-
ur og þægilegur í umgengni, og
Kathy er ekki vitund hrædd við
hann, enda veit hún sitt af
hverju um ljón, þar sem pabbi
hennar er forstöðumaður dýra-
garðs í Englandi. Eini gallinn
við Harald er sá, að hann hrýtur
hátt og mikið í svefni og lætur
stundum svo illa, að Kathy verð-
ur að sofa á gólfinu.
☆
43. tbi. VIKAN 5