Vikan - 23.10.1969, Blaðsíða 45
r----------------------------->
H1IAR ER
DRKIN HANS
NÓA?
Það er alltaf sami leikur-
inn í henni Yndisfríð okk-
ar. Hún hefur falið örkina
hans Nóa einhvers staðar í
blaðinu og heitir góðum
verðlaunum handa þeim,
sem getur fundið örkina.
Verðlaunin eru stór kon-
fektkassi, fullur af bezta
konfekti, og framleiðand-
inn er auðvitað Sælgætis-
gerðin Nói.
Síðast er dregið var hlaut verð-
launln:
Eva Andcrsen,
Bústaðavegi 103
Nafn
Heimili
Örkin er á bls.
Vinninganna má vitja i skrif-
stofu Vikunnar. 43.
V_____________________________/
Við græddum peninga og við
getum ennþá gert það.“
„O, ég veit það nú ekki,“ sagði
Charlton vondaufur.
„Hugsaðu jákvætt, Charlton,
auðvitað getum við gert það.“
Hann fór skyndilega að hlæja
og lagði frá sér marghleypuna.
„Ég hlýt að vera að verða vit-
laus. Um hvað var ég eiginlega
að hugsa? Auðvitað getum við
grætt peninga aftur.“
Við hlógum báðir svo ofsalega,
að við sáum ekki litla manninn
sem kom inn á skrifstofuna.
„Er þetta Ráðleggingamiðstöð-
in hf.?“ spurði hann.
„Það erum við, já,“ svaraði
Charlton fjörlega.
„Þér sögðuð mér að selja olíu-
hlutabréfin mín. Eg átti 3000
hluti á 1 dollara hvern. Vitið þér
hvað þeir kosta nú? Níutíu og
fjóra dollara! Þið hafið tortímt
mér!“
Hann dró upp byssu og fór að
skjóta á okkur. Ég henti mér
niður á bak við skrifborðið, og
þar heyrði ég að Charlton féll í
gólfið og litli maðurinn hljóp í
burtu.
Ég stóð upp, gekk að Charlton
þar sem hann lá dáinn og án
þess að hugsa tók ég upp byss-
una sem morðingi hans hafði
skilið eftir.
Og þannig var ég er fólk kom
að. Standandi yfir líki félaga
míns með rjúkandi byssu í hend-
inni.
Auðvitað var heldur erfitt að
útskýra þetta fyrir lögreglunni.
Þeir trúðu ekki að það væri til
nokkur lítill maður með byssu.
Svo fundu þeir byssu Charlton's
á borðinu og komu með þá kenn-
ingu 'að við hefðum verið að ríf-
ast og að ég hefði svo drepið
hann.
Þegar ég fór fram á að fá að
leita í spjaldskránni okkar —
við vorum komnir með 7800 við-
skiptavini — til að reyna að
finna þennan mann sem við höfð-
um gefið svona óheppilegar ráð-
leggingar, sendu þeir mig til sál-
fræðings. Sá var ákaflega þægi-
legur í viðmóti þar til ég út-
skýrði fyrir honum aðferðina
sem við Charlton höfðum notað
við fyrirtæki okkar. Þá hélt
hann að ég væri brjálaður.
Ég er þeirrar skoðunar, enn
þann dag í dag, að ég hefði ver-
ið sendur á geðveikrahæli ef
morðinginn hefði ekki gefið sig
sjálfur fram við lögregluna.
Mér var sleppt. Er ég fór frá
sálfræðingnum, sagði hann: „Ég
er heppinn. Hefði ég vitað eitt-
hvað um Ráðleggingamiðstöðina
hf. hefði ég ef til vill leitað ráða
hjá ykkur. Ég á nefnilega 300
hluti í einhverju fyrirtæki sem
er kallað Western Pump. Hvað
veiztu um það?“
Auðvitað hafði ég aldrei heyrt
þess getið, en mér fannst engin
ástæða til að segja honum frá
því. „Kauptu eins mikið þar og
þú getur, og þá verður þú for-
ríkur. Það fyrirtæki á mikla
framtíð fyrir sér.“
Hann varð ákafur. „Heldurðu
það, ha?“
Ég kinkaði kolli og fór út —
gáfulegur á svipinn.
☆
Ekkert er lengur
ómögulegt
Framhald af bls. 11.
ir, að ég ákvað hvað skyldi seg|a:
„Þetta er lítið skref fyrir mig, en
risastórt fyrir mannkynið." Annað en
þessi orð man ég ekki að hafa fund-
ið til neinnar sérstakrar tilfinningar
eða hátíðleika — nema þá það, að
ég fór varlega svo ég gaeti verið
öruggur um, að það væri allt í lagi
að set|a þunga minn niður á yfir-
borðið.
Frá Erninum virtist himinninn
svartur, en á yfirborðinu var sem
um hábjartan dag, og yfirborðið
sjálft var einhvernveginn Ijósbrúnt.
Það eru ákaflega undarleg Ijósbrigði
á tunglinu, og gerir það að verkum
að þar virðast eiga sér í sífellu stað
litabreytingar. Ég skil það ekki vel.
Ef maður horfir eftir sínum eigin
skugga, eða beint á sólina, er tungl-
ið Ijósbrúnt. Ef maður horfir til hlið-
ar við sólina, dökknar tunglið, og
ef maður horfir beint niður á yfir-
borðið, er það nær svart. Og það
sem maður tekur upp af yfirborð-
inu er líka dökkt. Grátt eða svart.
Yfirleitt eru yfirborðsefni tunglsins
úr mjög fíngerðu efni, svipuðu
hveiti, en það er líka sumt grófara,
svipað sandi, að ógleymdum öllum
þeim aragrúa grjóts og steina sem
liggja sem hráviði um allt.
Eina verulega vandamálið sem ég
átti við að stríða á meðan ég var á
tunglinu var, að það var svo margt
sem mig langaði til að skoða en,
svo lítið sem ég gat skoðað. Ég
hafði á tilfinningunni, að ég gæti
séð barminn á Vesturgíg, ef ég
kæmist bak við mánaferjuna, en
snubbóttur sjóndeildarhringur mán-
ans fyrirbyggði það. Þó tókst mér
að ganga út að ca. 25 fermetra
stórum gíg, sem við höfðum séð og
filmað á síðustu augnablikum fyrir
lendingu.
Allir vita nú hvað það var sem
við skildum eftir á tunglinu. En það
sem okkur þótti einna ánægjulegast,
var að skilja þar eftir minnismerki
frá Apollo 1, í minningu „geimfé-
laga" okkar, þeirra Gus Grissom,
Ed's White og Roger's Chaffee, og
eins heiðursmerkjanna sem voru
'---------------------------------------------------------------------------------------------^
HILLUSKILRIÍM
teiknuð af Þorkeli G. Guðmundssyni, liúsgagnaarkitekt.
Smíðum liilluskilrúm úr öllum viðartegundum.
Leitið upplýsinga og fáið tilboð hjá framleiðanda.
Sverrir Hallgrímsson
Smíðastofa, Skipholti 35, sími 36938.
43. tbi. vikAN 45