Vikan - 23.10.1969, Blaðsíða 32
NÝ OG SPENNANDI FRAMHALDSSAGA HEFST f NÆSTA BLAÐI
Fjarri heimsins glaumi
Kvikmyndasaga gerð eftir skáldsögu Thomasar Hardy. Myndin
verSur sýnd í Gamla bíói, þegar sögunni lýkur hér í Vikunni.
í NÆSTA BLAÐI hefst ný
og spennandi framhaldssaga,
sem enginn verður svikinn
af. Hún heitir FJARRI
HEIMSINS GLAUMI, og er
kvikmyndasaga, gerð eftir
skáldsögu hins fræga, brezka
rithöfundar, Thomasar Har-
dy. sem þekktastur er fyrir
sögu sina, Tess. Kvikmynd-
in verður sýnd í Gamla bíói,
þegar sögunni lýkur hér í
blaðinu, og aðalhlutverkið,
Batsheba Everdene, leikur
Julie Christie.
Batsheba er duttlungafull
og einráð, töfrandi sambland
af barni og konu. Hún vek-
ur ótrúlega sterkar ástríður
hvar sem hún fer. Og fyrir
þá þrjá menn, sem elska
hana, verður ástin til hennar
örlagarík. Einn þeirra er
Gabriel Oalc, sterkur maður,
þolinmóður og óeigingjarn.
Lífið hefur kennt honum að
greiða úr vandræðum og
horfast í augu við mótlæti.
En þegar Batsheba verður á
vegi hans, er hann likastur
leikbrúðu á valdi örlaganna.
Hann er varnarlaus og er um
megn að standa gegn ástinni
til hennar.
Þetta er stórbrotin og
heillandi saga, sem heldur
athygli lesandans allt frá
fyrstu setningu til hinnar
síðustu.
■Ar