Vikan


Vikan - 23.10.1969, Side 33

Vikan - 23.10.1969, Side 33
ALLT A SAMA GOLFI TIL AÐ SPARA YÐUR TÍMA OG FYRIRHÖFN Tíminn er yður dýrmætur. Þróunin er í þá átt aS mynda stórar heildir. ÞaS á líka viS í verzlun, ekki sízt þegar um er að ræSa hluti eins og húsgögn, innréttingar, heimilistæki, hillusamstæSur, eldhús og barnarúm. MeS öSrum orSum: Allt til heimilisins. Allt á einu gólfi, úrvalsvörur eingöngu. Merkin tala sínu máli: Pira-hillusamstæður, Neff-rafmagns- tæki, Dúna-sófasett og dýnur, hlaSrúm og stólar frá Krómhúsgögn. Og þannig mætti lengi telja. Þér veljiS í stofuna, í eldhúsiS, í barnaherbergin og húsbóndahergergiS. Allt á einu bretti — allt á sama gólfi. HUS OG SKIR ÁRMÚLA 5 SÍMI 84415 OG 84416 STJÖRNUSPÁ # ^ * *- em H Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprll): Þessi vika verður mjög erilsöm. Þú munt eiga ann- rikt, ekki aðeins heima fyrir, heldur við að hjálpa vinum þínum. Samt mun þessi vinna verða þér til ánægju og þú munt ekki iðrast hjálpsemi þinnar. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Það gengur á ýmsu í byrjun vikunnar, en þegar líð- ur á hana, mun aftur komast kyrrð á. Þú munt eiga fullt í fangi með að leysa verkefni, sem þér hafa verið falin. Upp úr miðri viku koma óvæntar fréttir. m Nautsmerkið (21. aprfl — 21. maí): Það er mest undir sjálfum þér komið, hvort þjessi vika verður hagstæð eða ekki. Ef þú tekst kröftug- lega á við þau verkefni, sem bíða þín, muntu fá mörg góð tækifæri. Einkalífið verður rómantískt. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Ef þú verður snar í snúningum, muntu geta hrund- ið í framkvæmd áformum, sem þú hefur lengi haft áhuga á. Þú ættir að gæta þess vel að láta ekki tóm- stundastarf þitt taka of mikið af tíma þínum og orku. m JUL Tvíburamerkið (22. mal — 21. júní): Þetta verður vika annríkis og viðburða, sem munu lífga upp á tilveruna, að minnsta kosti um stund. Fimmtudagur og föstudagur ættu einkum að verða viðburðaríkir. Hræðsla við nýjungar er ástæðulaus. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þessi vika verður þér alveg óvenjulega góð. Margt mun gerast, sem lifgar upp á tilveruna og gefur gráum hversdagsleikanum ofurlítinn lit. — Annars ættirðu að leiða hjá þér deilur við persónu þér nána. W ■ Krabbamerkið (22. júní — 23. júlQ: Vikan verður ekki sérstaklega spennandi að þessu sinni. Agætt er því að hvíla sig vel og njóta heim- ilislífsins. Sennilega verður nokkuð gestkvæmt hjá þér þessa viku og í lok hennar kynnistu nýju fólki. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þetta verður hagstæð vika öllum þeim, sem hafa kjark og þor til að kanna ókunna stigu og taka ofur- litla áhættu. Samt sem áður ættir þú ekki að gera of mikið upp á eigin spýtur, en ráðgast við vinina. Liónsmerkið (24. júli — 23. ógúst): Ekki er laust við, að það ríki töluverð eftirvænting og spenna, bæði 1 einkalífi þínu og starfi. Þú munt sleppa vel frá þessari viku, ef þú hefur í huga að koma þannig fram, að ekki verði á þig hallað. Vatnsberamerkið Í21. janúar — 19. febrúar): Það verður ýmislegt uppi á teningnum í þessari viku, þótt það verði ef til vill ekki allt jafn skemmti- legt. — Yfirleitt ætti þessi vika að verða rík af skemmtunum, ef þú tekur öllu með jafnaðargeði. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): I fyrstu virðist svo sem þessi vika verði fremur til- breytingarlaus og blátt áfram leiðinleg, en ef þú notar þau tækifæri sem bjóðast ætti hún að geta orðið þér til gleði. Hugsanleg ástarævintýri ungra. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú verður að taka á honum stóra þínum, ef þú tee'tlj- ar að bera eitthvað úr býtum í þessari viku. Undan- farið hefur alltof mikil deyfð verið yfir þér og það er sannarlega mál til komið, að hrista af sér slenið.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.