Vikan - 23.10.1969, Blaðsíða 47
is yfir Haf kyrrðarinnar, er við tók-
um á loft og f burtu frá þvf.
Sú tilfinning sem var efst f huga
mér sem ég gekk á tunglinu og
myndaði það, var sú, að ég og Buzz
vorum að taka myndir af stöðugri.
þróun. Þróun, þar sem grjót er í
sífellu að verða að engu og annað
kemur í staðinn, fyrir tilstilli ein-
hvers sem skeður; annaðhvort f
næsta nágrenni við mánann eða þá
milljónum kflómetra í burtu. Með
öðrum orðum: Það hefði ekki skipt
neinu máli hvenær maðurinn hefði
fyrst stigið fæti sínum á tunglið,
það hefði alltaf verið eins. Kannski
að grjótið eða kletturinn sem var
þarna fyrir 100 árum, sé horfinn
núna og annar stór kominn í um
það bil 95 metra fjarlægð, og svo
framvegis. Sú er trú mín, að flestar
þær breytingar sem hafa átt sér
stað á tunglinu, hafi verið utanað-
komandi, en þó finnast þar einnig
efni sem benda til þess, að sumt af
því sem skeð hefur, hafi átt upptök
sín þar.
En það sem situr einna fastast í
mér, eru þessar stórkostlegu sýnir
sem við sáum. Þær ná langtum
lengra en nokkuð annað sem ég
hef nokkru sinni séð. Og þá mikil-
fenglegustu bar fyrir augu okkar, er
við vorum á leið til tunglsins. Er við
fórum í gegnum skugga þess. Við
vorum þá enn þúsundir kílómetra í
burtu, en þó nægilega nálægt til
að tunglið fyllti svo gott sem út í
hringlaga gluggann á geimfarinu.
Máninn var þá beint fyrir framan
sólina, séð þaðan sem við vorum,
og það eina sem sást af henni var
örlítil rönd sem kom yfir efstu brún
mánans, og gaf frá sér birtu, disk-
lagaða, í margar áttir; svipað og
maður sér á fornum myndum sem
tákna eiga sólarupprás. Það var stór-
kostleg sýn, en þó var tunglið sjálft
enn mikilfenglegra. Við vorum í
skugga þess, svo ekki nokkur hluti
þess var hulinn sólinni. Eina birtan
sem skein á það var jarðarskinið.
Það gerði það að verkum, að tungl-
ið varð blágrátt, og allt varð í eins-
konar þrívídd.
Þarna gerði ég mér í raun og
veru grein fyrir því, að tunglið er
hnöttur en ekki skífa fest á himin-
inn. Það leit út sem „karlinn ( tungl-
inu'' væri að sýna okkur hringlögun
þess, og svip með jörðinni —- nokk-
urskonar „Verið velkomnir". Þá
varð ég viss um að tunglið væri
góður gestgjafi. Það hafði verið að
bíða eftir fyrstu gestunum þó nokk-
uð lengi.
☆
Hair nýtur vinsælda
Framhald af bls. 31.
leikararnir, að áhorfendur skynji
ekki boðskap leiksins er allt
unnið fyrir gíg að þeirra dómi.
Séu áhorfendur hins vegar með
á nótunum getur allt gerzt á
sviðinu, og þá finnst engum at-
hugavert, þótt einhverjir fækki
fötum á sviðinu.
VIKAMÁ
us,
PÉR SPARID
MEDÁSKRIFT
ÞÉR GETIÐ SPARAÐ FRÁ KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MEÐ ÞVI AÐ
GERAST ASKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG ÞÉR ÞEKKID EFNIÐ:
VIKAN ER HEIMILISBLAÐ OG f ÞVÍ ERU GREINAR OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMELINU, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASXIR ÞÆXXIR O.FL., OJL.
Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift
r
i
4 TÖLUBLÖÐ Kr. 170.00. Hvert blað á kr. 42.50.
3 MÁNUÐIR ■ 13 tölubl. - Kr. 475.00. Hvert blað á kr. 36.58.
6 MÁNUÐIR ■ 26 tölubl. ■ Kr. 900.00. Hvert blað á kr. 34.62.
Gjalddagar fyrir 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1.' febrúar —
1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember.
Skrifið, hringið eða komið.
VIKAN
SKIPH0LTI 33
P0STH0LF 533
REYKJAVÍK
SÍMAR:
36720 - 35321
1
I
I
320 ■
J
43. tbi. VIKAN 47