Vikan


Vikan - 30.04.1970, Síða 8

Vikan - 30.04.1970, Síða 8
NÝTT FRÁ RIRA Nýja Pira uppi- staðan er frábær lausn á niðurröðun húsgagna hvort sem er við vegg, eða frístandandi siklrúms veggur. Hvorki skrúfa né nagli í vegg. PIRA-umboðið HUS OG SKIP H.F. Ármúla 5 - Símar 84415-84416 Blæðandi botnlangaskurður Kæra Vika! Mig langar til að segja ykkur draum, sem mig dreymdi fyrir stuttu síðan og biðja ykkur að ráða hann fyrir mig. : Mér fannst ég liggja uppi í rúmi og finn þá, að ég er orðin blaut á maganum. Eg lyfti upp sænginni og sé, að þetta er blóð, sem kemur úr botnlangaskurði, sem hafði opnazt (það er búið að skera mig upp við botnlang- anum), og blæddi mikið. Mér bregður í brún og gríp fyrir skurðinn eins og til þess að loka honum. Eg stekk að símanum og hringi í lækni og segi honum frá þéssu. Hann segist ekkert geta gert að svo stöddu og segir mér að bíða. Næst er ég stödd uppi á sjúkra- húsi og er að ganga inn í stóra stofu. Eg man, að mér leið fjarska illa og fannst allt eitt- hvað svo dapurt og tilgangslaust. Þá mæti ég strák, sem ég hef verið með og er hrifin af. Hann horfir eitthvað svo góðlega á mig og tekur í hönd mína og þrýstir hana. Og um leið fannst mér allt verða svo bjart og gott. Og við það vaknaði ég. Mig langar til þess að taka fram, að þessi draumur var mjög skýr og mundi ég hann greini- lega, þegar ég vaknaði. S. Þ. Það er jafnan talið vera fyrir einhverjum erfiðleikum að sjá blóð streyma úr sjálfum sér í draumi. Við teljum líklegt að erfiðleikar þínir verði aðallega fólgnir í sálarstríði, — að minnsta kosti eru þeir hugræns eðlis. En hinn blæðandi botn- lanaraskurður er aðeins fyrri hluti draumsins og ekki dugir að einblína á það tákn. Seinni hlut- inn er allt annars eðlis og getur ekki boðað neitt annað en gott. Ætli erfíðleikar þínir verði ekki á sviði ástamálanna. Og ef svo verður, þá þarftu engu að kvíða, því að allt fer vel að lokum. Látinn m^ffur í hoi"fnu húsi Kæri draumráðandi! Fyrir skömmu dreymdi mig draum, sem mig langar til að fá ráðningu á. Mig dreymdi, að ég væri á gangi með móður minni og geng- um við inn í hús, sem verið var að setja nýjar innréttingar í. Fannst mér erindi okkar vera að finna mann, sem við þekkjum og var þar að vinna að íbúð sinni. Ég bað hann um að koma með okkur í bíó. Hann sagðist skyldu koma, ef hann mætti koma í vinnufötunum. Ég vildi það ekki, en hann sagðist ekki fara öðru- vísi klæddur. Mér finnst þá, að ég þurfi að komast á snyrtiherbergi og hef einhver orð um það við mann- inn, en hann segir, að snyrtiher- bergið sé ekki tilbúið. Vísar hann mér þá út í lítið hús, sem er á sömu lóð (í þessu húsi var ég reyndar alin upp). Ég fer inn í húsið og er allt þar óbreytt nema hvað mér fannst eldhúsið vera snyrtiherbergi um leið. Ég fer þar inn og loka á eftir mér, en heyri um leið að gengið er gegnum stofu fram í litla for- stofu og rakleitt út. Ég undrast þetta mjög, því að ég vissi, að húsið var mannlaust. En í sama bili verður mér litið í átt til gluggans. Sé ég þá hvar stendur fyrir utan gluggann dáinn mað- ur, Bjarni að nafni. Hann horfir beint í augu mér en segir ekki orð. Þá grípur mig ofsahræðsla af því að ég mundi í draumnum, að maðurinn var dáinn. Við það vakna ég. Húsin bæði, sem ég minntist á, voru gömul og búið að rífa þau fyrir nokkrum árum. Með fyrirfram þakklæti. K. Það getur bæði boðað gott og illt að sjá látinn mann í draumi og fer nokkuð eftir nafni hans. En ekki er hægt að setja neinar reglur um mannahöfn í draumi, því að þau þýða ekki alltaf það sama fyrir alla. En það er jafn- an fyrir góðu, þegar mann dreymir, að verið sé að lagfæra eða endurbæta hús. Við ráðum drauminn á þann hátt, að eitt- hvað gamalt og grafið úr upp- vexti þínum skjóti aftur upp kollinum og verði til þess að auka skilning þinn á vandamáli, sem þú átt við að etja, og verði jafnvel til þess að leysa það. Með sítt fellePt skedfpr Kæri draumráðandi! Hvað táknar það, þegar mann dreymir, að maður sé kominn með sítt og fallegt skegg? Með þökk fyrir birtinguna. H. Það boðar yfirleitt velgengni. Hins vegar táknar það missi eða tjón ef skeggjaðan mann dreym- ir, að skeggið sé rakað af hon- um eða klippt. Dreymi ógifta stúlku, að hún sé méð skegg boðar það henni giftingu. 8 VIKAN 18-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.