Vikan


Vikan - 26.08.1971, Qupperneq 4

Vikan - 26.08.1971, Qupperneq 4
RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322 Þér sparið með áskrift SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320 P0STURIÍ9N Ekkert þýðir Kæri Póstur! Við erum tvær systur, sem er- um í vanda staddar, við erum fimmtán og sextán ára, okkur kemur mjög vel saman. Við er- um hrifnar af strákum sem eru sextán og seytján ára. Við er- um báðar búnar að senda í Lög unga fólksins og líka að skrifa þeim bréf og hringja til þeirra og ekkert þýðir. Þeir rífast við okkur út af þessu og eru nú farnir að vera feimnir (við höld- um það). Þeir eru góðir vinir og alltaf saman þegar við sjáum þá. Við hugsum mjög mikið um þá, við förum út á kvöldin bara til þess að sjá þá. Kæri Póstur, gefðu okkur gott ráð og enga útúrsnúninga. Hrefna og Björk. P.S. Hvernig er skriftin og hvað lestu úr skriftinni? ... - \r~-----------^ ------ Málið virðist ofur einfalt, sem sagt þannig að strákarnir hafa engan áhuga á ykkur. Og þar sem Pósturinn er ekki svo fjöl- kunnugur að hann ráði yfir ást- ardrykkjum og álíka torfengnum lyfjum, verðið þið vist að sætta ykkur við blákaldan veruleik- ann. Auðvitað sakar ekki fyrir ykkur að halda áfram að eltast við strákana, ef þið nennið, það er aldrei að vita nema einhver hending leiði til þess að þeir biti á. En gæti nú ekki hugsazt að áhugi ykkar á þeim hefði vaxið talsvert í hlutfalli við tregðu þeirra? Skriftin er mjög hreinleg og regluleg, bendir á dugnað og snyrtimennsku. Eftir hvern? Eftirfarandi vísur, sem að sögn eru frá nokkuð gamalli tíð, sendi okkur kona nokkur, og er henni forvitni á að vita eftir hvern þær séu. Því miður erum við engu fróðari en sendandi um það mál, en ef einhver skyldi vita hver höfundurinn er, þá verður hann kannski svo góður að láta Póstinn vita af því. Og hér koma þá vísurnar: Þegar ég síðast fell að foldu, fljóðið ég bið, þú heyrir það, lagður er andað lík í moldu, leiðinu mínu kom þú að. Eins ef ég gisti sæng í sænum, síðasta bænin er til þín, hönd þína fulla af grösum grænum, gef þú djúpinu vegna mín. Fær ekki fullnægingu Kæri Póstur! Þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Þar sem þú virðist aldrei verða þurrausinn af ráðlegging- um, ætla ég að leita til þín með vandamál mitt, sem er að mín- um dómi anzi stórt. Ég hef ver- ið trúlofuð strák í meira en hálft annað ár. Við höfum „lifað" saman í eitt ár og þrjá mánuði, og elskum innilega hvort ann- að, en það er eitt, sem er að eyðileggja þessa ást okkar: ég fæ aldrei fullnægingu (kynferð- islega). Ég er tæplega nítján ára og ætti því að vera nógu þroskuð bæði andlega og lík- amlega til þess. Fyrir tæpu ári var unnusti minn farinn að hafa þungar áhyggjur út af þessu, og vildi ' að við færum bæði til læknis, en þar sem allt var í lagi með hann og ég kom mér ekki til læknis, ákvað ég að lát- ast fá fullnægingu — og það gerf ég enn. Samfarir okkar standa alveg eðlilega lengi, og „forleikurinn" eins lengi og hægt er. Er ég eitthvað skrýtin? Er ég náttúrulaus? Ég hef einu sinni viðhaft sjálfsfróun og fékk þá fullnægingu og líka einu sinni með unnusta mínum án samfara. Elsku Póstur, hjálp- aðu mér! A ég að fara til lækn- is? Svaraðu eins fljótt og mögu- legt er. Ein í vandræðum. P.S. Hvernig er skriftin og staf- setningin? Þú skalt fyrir alla muni ekki láta dragast aS fara til læknis. Okk- ur skilst á bréfinu að unnusti þinn hafi þegar gert þa'ð, og þú ættir að fara aS dæmi hans. Ef ástæSurnar til vandræSa ykkar skyldu vera líkamlegar og þeirra aS leita hjá þér, er lækn- ir rétti aSilinn til aS ganga úr skugga um þaS. Hins vegar er auðvitað engan veginn víst aS ástæSurnar séu 4 VIKAN 34. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.