Vikan - 26.08.1971, Page 6
Á Filippseyjum eru
sjórán enn
stunduS í stórum stíl
og smyglað inn
slíkum kynstrum af
varningi, að það fer
fram úr
lögmætum innflutn-
ingi. Allar aðgerSir til
að bæta ástandið
eru sýndin ein, þar eð
stjórnmálamenn
og auðkýfingar eru
sjálfir lífið og sálin
í spillingaröflunum. 1
Lögreglumenn í Manila
eru þrælvopnaðir, en
aSgerðir þeirra gegn
glæpaöldunni hafa lítið
að segja.
í Manila, höfuðborg Filipps-
eyja, eru árlega framin fleiri |
morð en í sjálfri New York,
og um seytján þúsund á eyjun-
um öllum. Engin borg í heimi
er hættulegri fyrir túrista og
aðra utanaðkomandi.
Sænski blaðamaðurinn náði
í leigubíl á Roxas Boulevard,
einni helztu breiðgötunni í
Manila. Klukkan var þrjú síð-
degis, það var steikjandi heitt
og plastklætt sætið eins og eld-
ur í bakið.
— Við keyrum heim til Mar-
iu Lorenzo, sagði bílstjórinn og
henti tveimur myndum af
stúlku aftur í til blaðamanns-
ins.
— Maria er sú bezta í borg-
inni og frábær að nudda. Viltu
fá það franskt? Eða eitthvað
annað sérstakt?
Hann leit á blaðamanninn
smáum, pírðum augum og hló.
Á næsta andartaki heyrðist urg-
andi hljóð — hann hafði keyrt
aftan á næsta bíl á undan.
Blaðamaðurinn notaði tæki-
færið til að hlaupa út og henti
um leið einum peso til bíl-
stjórans. En hann hafði skammt