Vikan


Vikan - 26.08.1971, Síða 15

Vikan - 26.08.1971, Síða 15
fullyrt sé að ekki sé útilokað, að þrýstingur grískra stjórnarvalda á dómarann hafi valdið þar mestu um. En þessi sýknun bjargar ekki öllu fyrir Stavros Níarkos. í huga al- mennings er liann jafn sekur eða að minnsta kosti jafn tortryggileg- ur og óður. Svo litföróttur er per- sónuleiki þessa gríska skipakóngs, með svo köldu blóði og á svo sam- vizkulausan hátt rakaði hann sam- an milljörðum sínum, á svo blygð- unarlausan hátt hefur hann varið æfi sinni allt frá barnsaldri að all- ur heimurinn trúir honum til alls. Ýmsum, sem vel þekkja Niarkos persónulega, finnst þó ótrúlegt að liann hafi sjálfur lamið konu sina bláa og blóðuga og siðan kyrkt hana. Níarkos hefur alltaf verið þekktur fyrir að nota höfuðið fremur en hnefana. Grikki þessi er hundrað og sjötíu sentimetra hár og vegur hundrað og fimmtíu pund. Hann er nefmæltur og talar mjög hægt. Hann greiðir hár sitt af smámunalegri nostur- semi. Hárið er á litinn eins og blý, málmur sá er byssukúlúr eru steypt- ar úr. Augnalokin eru þykk og þung og gefa honum oft syfjulegan svip. en i viðræðum á hann til að sperra þau eldsnöggt upp. Þá leynir sér ekki í augunum, sem stundum virð- ast brún en eru þó öllu heldur rauð, sú ískalda einbeitni og frekja sem fleytt hefur manninum til auðs og þar með valda. Níarkos gengur fjaðurmagnað og jöfnum skrefum eins og aðalsmaður, og hann lætur aldrei sjá til sín handapat það og allskyns fettur og brettur, sem Grikkir eru annars þekktir fyrir líkt og fólk við Miðjarðarhaf yfir- leitt. Hann hefur hreina andstyggð á öðrum útbreiddum suðurlanda- sið, sem sagt að leiðast með arm um axlir eða mitti. Að hans dómi hefur líkamleg snerting aðeins einn tilgang — að öðlast holdlega nautn. Þesskonar nautn fær liann i nuddi Framhald. á bls. 47. Evgenía Níarkos í einum salnum í Creole, sitjandi undir málverki eftir Toulouse-Lautrec. En hún var langt í frá eina konan, sem maður hennar tók með sér um borð í snekkjuna. Hástéttarfólk heimsins þráði heitar en flest annað að skipakónsurinn byði því til fagnaðar í þessari fimmtán herbergja villu á Spetsóoúla. Nú hvílir yfir þessum stað skuggi óhugnaðar og grun- semda - um morð. Á ytra borði vantaði ekki hamingjuna í fjölskylduna Níarkos. Hér er hús- bóndinn á heimilinu ásamt eigin- konu og börnunum Spýrosi, Konstantín, Tsabellu og Philip. 34. TBL. VIKAN 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.