Vikan - 26.08.1971, Síða 37
notaðar. Fyrir nokkrum árum
keyrði Filippseyingur afbrotinn
flöskustút í höfuðið á dönskum
sjómanni af þvílíku afli, að
heilinn lá úti.
Stúlkurnar eru sjómönnun-
um nokkur trygging gegn þess-
um illvíga óaldarlýð. Þær eru
mjög af sér gengnar, neyta eit-
urlyfja og drekka eins og
svampar, en svíkja sjaldan sjó-
mann sem býður þeim upp á
veitingar og er góðin- við þær.
Hóteleigendur í Manila eru
blöðunum gramir fyrir hve þau
birta mikið um glæpaölduna,
og telja að það hafi átt mestan
þátt í að fæla túrista frá eyj-
unum. Þeir fullyrð.a að Man-
ila sé hreint ekki svo hættu-
leg borg fyrir erlenda ferða-
menn; bófarnir ræni einkum
ríka landa sína. Þeir viti að
lögreglan reyni frekar að hand-
sama þá, ef útlendingur hefur
orðið fyrir barðinu á þeim. En
ekki eru hóteleigendurnir ör-
uggari um sig en svo, að þeir
hafa varðmenn vopnaða vél-
byssum stöðugt standandi við
aðaldjrrnar hjá sér.
☆
ROSE KENNEDY
Framhald aj bls. 17.
dómur. Aðeins örfáum tókst
að höndla hamingjuna. Patrick
Kennedy lézt úr kóleru þrjá-
tíu og fimm ára gamall. Hann
var líkamlega þrotinn að kröft-
um eftir stöðuga erfiðisvinnu
og lézt jafn blásnauður og hann
var, þegar hann fór frá írlandi
tíu árum áður. Hins vegar tókst
syni hans, Patrick Joseph, að
rétta úr kútnum og komast í
álnir. Thomas Fitzgerald, afa
Rose, varð aftur á móti vel
ágengt í nýja landinu. Hann
átti ofurlitla verzlun, þegar
sonur hans fæddist. Sá var því
munurinn á aðstöðu feðra Rose
og Josephs Kennedy, að John
Fitzgerald var sæmilega stæð-
ur, en Patrick Joseph hins veg-
ar blásnauður, þegar þeir hófu
baráttu sína fyrir auði og völd-
um.
Faðir Rose, John Fitzgerald,
var fæddur 11. febrúar 1863 í
Boston í fjögurra hæða húsi
úr rauðum. múrsteini, þar sem
átta fjölskyldur bjuggu. Bost-
on skiptist á þessum tíma í tvo
hluta, sem voru jafn ólíkir og
dagur og nótt. Annars vegar
voru hinar gömlu og ríku fjöl-
skyldur, sem upprunalega voru
enskar. Þær bjuggu við alls-
nægtir i glæsilegum einbýlis-
húsum og höfðu þjónustufólk
TlMALKNGD dAnarbætuk ÖRORKUBÆTUR DAGPENINGAR A V'IKU IÐGJALD
14 dapar 500.000.— •>.500,— 271,—
17 dauar 500.000.— 2.500.— 293.—
1 niániiður 500.000,— 2Æ00,— 399 —
OO
Hvort sem þér farið langt eða skammt — og: hvert
sem þér farið, til Spánar eða Sigluf jarðar,
Bandarikjanna eða BUdudals, þá er ferðaslysatrygging
SJÓVÁ nauðsyn.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ greiðir bætur við dauða af
slysförum, vegna varanlegrar örorku og vikulegar
bætur, þegar hinn tryggði verður óvinnufær
vegna slyss.
Ennfremur er hægt að fá viðbótartryggingu, svo að
sjúkrahúskostnaður vegna veikinda eða slysa,
sem sjúkrasamlag greiðir EKKI, er innifalin
í tryggingunni
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er nauðsynleg, ódýr og
sjálfsögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er tryggur förunautur.
Dæmi um iðgjöld af ferðaslysatryggingum SJÓVÁ:
(Söluskattur og stimpilgjöld innifalin).
34. TBL. VIKAN 37