Vikan - 20.07.1972, Page 3
29. tölublað - 20. júlí 1972 - 34. árgangur
vkan
Ævisaga
Windsor-
hjónanna
Hertoginn af Windsor
lézt í sumar, eins og
kunnugt er af fréttum.
Einmitt um þessar mundir
er verið að kvikmynda
ævisögu hjónanna, —
ástarsögu aldarinnar, eins
og sumir hafa kallað líf
þeirra. Sjá grein á bls. 10.
Sannleik-
urinn um
Moby Dick
— hvíta
hvalinn
Allir þekkja söguna um
Moby Dick — hvíta hval-
inn. En líklega hafa
færri heyrt hina uppruna-
legu sögu, sem varð
kveikjan að skáldsögunni,
sem hefur verið kvik-
mynduð og kom út i
íslenzkri þýðingu fyrir
fáum árum. Sjá spenn-
andi frásögn á bls. 16.
Það var sannarlega
skvamp og ærsl í Sund-
Ærsl og mz m Æ lpy|| Jm laugunum, þegar Vikan brá sér þangað einn sól-
busl á sólskins- degi í skinsdaginn í sumar. Að- sókn að sundlaugunum hefur aldrei verið meiri en í sumar, meðal annars
1 Sundlaug- vegna Norrænu sund- keppninnar. Sjá mynda-
unum ™ % . ' i r v- v 2 syrpu á bls. 23—25.
KÆRI LESANDI!
Dansmærin Margot Fonteyn
kom hingað til lands í lok Lista-
hátíðar -— eins og rúsína í pylsu-
endanum — og dansaði með
flokki sínum nokkrum sinnum í
Þjóðleikhúsinu. Hún er sú
stjarna, sem skærast hefur skin-
ið á himni ballettsins og er enn í
fullu fjöri, þólt hún sé orðin 53
ára. Um það hafa þeir mörgu,
sem sáu hana í Þjóðleikhúsinu,
vonandi sannfærzt.
Ballettunnendur fengu mörg
tækifæri til að njóta góðra sýn-
inga í júnímánuði. 1 kjölfar hinn-
ar árlegu ballettsýningar Þjóð-
leikhússins kom ballett Konung-
lega leikhússins í Kaupmanna-
höfn og loks sjálf Margot Fon-
teyn. Raunar má segja að unn-
endur allra listgreina hafi haft
ástæðu til að vera ánægðir þessa
fallegu júnídaga, þegar Listahá-
tiðin stóð. Aldrei hafa jafnmarg-
ir frægir listamenn heimsótt okk-
ur í einu, og að auki lögðu ís-
lenzkir listamenn nú meiri skerf
til hátíðarinnar en áður. Óhætt er
að fullyrða, að Listahátíðin sé
með albeztu fyrirtækjum, sem
stofnað hefur verið til hér á
landi. Hún er fyrirtæki, sem við
getum með góðri samvizku rekið
með tapi.
Greinin um Margot Fonteyn er
í miðopnu þessa blaðs. 1 henni er
meðal annars rætt um hugsan-
legan arftaka hennar, sem ekki
verður auðvelt að finna.
EFNISYFIRLIT
GREINAR bls.
Morðingjar og brennuvargar herja afdala- byggð 8
/Evisaga hertogahjónanna af Windsor kvik- mynduð, rakin ástarsaga aldarinnar í tilefni af láti hertogans af Windsor 10
Sannleikurinn um Moby Dick, frásögn af at- burðinum, sem varð kveikja hinnar frægu skáldsögu 16
Hver verður arftaki Margot Fonteyn, grein um ballettdansmeyna, sem kom hingað fyrr í sumar 26
SÖGUR
Karlar i krapinu, smásaga eftir Pelle Molin, myndskreyting: Sigurþór Jakobsson 12
Hinn leyndi óvinur, ný og spennandi fram- haldssaga, 2. hluti 14
1 húmi næturinnar, framhaldssaga, 11. hluti 34
Vmislegt
Sólskinsdagur í Sundlaugunum, mynda- syrpa eftir Hörð Vilhjálmsson 24
Dagleg vítamínþörf, Eldhús Vikunnar, um- sjón: Dröfn H. Farestveit, húsmæðrakennari 20
Lestrarhesturinn, lítið blað fyrir börn, um- sjón: Herdís Egilsdóttir, kennari 47
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Síðan síðast 6
í fullri alvöru 7
Mig dreymdi 7
Simplicity-snið 30
Stjörnuspá 31
Heyra má 32
Myndasögur 44, 46, 49
Krossgáta 50
FORSÍÐAN
Þær njóta sumarleyfisins; hafa tyllt sér um stund í grasið á göngu sinni um guðs græna náttúr- una. Og ekki spillir það ánægjunni að vera í nýjum fötum. Þetta er tízkumynd — beint frá París.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Oröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthlldur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteiknlng:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: Sigriður
Þorvaldsdóttir og Sigriður Ólafsdóttir. — Ritstjóm,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð i lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð
misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mai og ágúst.
29. TBL. VIKAN 3