Vikan


Vikan - 20.07.1972, Síða 4

Vikan - 20.07.1972, Síða 4
Teppin sem endast endast og endast á stigahús og stóra gólff leti Sommer teppjn eru úr nælon. Það er sterkasta teppaefnið og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá- réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt, síslétta áferð og er vatnsþétt. Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppin hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu járrrbrautarstöðvum Evrópu. Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og Somrner gæði. UTAVER GRENSÁSVEGI 22-24 SÍMAR: 30280 - 32262 PÓSTURINN Hangir ekki á sjoppum Elsku Póstur minn! Ég vil byria á því að þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Mig langar að biðja þig að gefa mér góð ráð. Svo er mál með vexti að ég er ofsalega hrifin af strák og hef verið það í næstum hálft ár. Hann er ofsalega feiminn (eins og ég). Ég held að það sé ein- hver búinn að segja honum að ég sé að spá í hann, því að hann glápir svo á mig þegar ég mæti honum einhversstaðar. Hann á heima skammt frá mér og ég sé hann alltaf þegar ég fer í vinnuna. Ég á ekki gott með að ná tali af honum, því hann hangir ekki á sjoppunum eins og aðrir krakkar. Hann fer stundum á böll en ekki ég (því að ég hef ekki aldur til þess strax). Elsku góði Póstur minn, viltu gefa mér góð ráð til þess að ná í hann. Hvernig er skriftin? Ein í ástarsorg. Gerðu þér far um að mæta hon- um sem oftast og þegar hann glápir á þig, skaltu glápa alveg óhikað á móti. Þá skulum við sjá hvort hann tekur ekki við sér, að minnsta kosti ef áhuginn er einhver hans megin. Skriftin er skýr og læsileg, en á vonandi eftir að snotrast eitt- hvað. Píkuskrækir í massavís Kæri Póstur! Ég vil byrja á því að þakka ykkur fyrir allt gamalt og gott. Ég hef ekki skrifað þér áður en nú get ég ekki orða bundizt lengur. Ég get ekki annað en dáðst að þolinmæði þinni, hvað þú endist til að svara þessum píkuskrækjum sem þú birtir í massavís. Mér liggur við að segja nær eingöngu. Á ég þar við þessi bréf sem rignir yfir þig frá ungpíunum okkar (s- lenzku. Ég fæ ekki betur séð en þeir, sem tala sem hæst um framhleypni æskunnar megi taka aftur orð sín, í það minnst á meðan svona ráðleysishjali er útbýtt um landsbyggðina í formi prentaðs máls. Ég á þó ekki við þau mál sem gamaldags og afturhaldssinnað- ir lesendur kalla klám. Satt að segja er ég steinhissa á að fólk skuli segja upp jafn ágætu blaði og Vikan er vegna skrifa um jafn hversdagslega hluti. Og að lokum: sérðu nokkuð út úr skriftinni? Tvítugur sveitavargur. Við þökkum það sem vel er til okkar mælt. Skriftin bendir til að þú sért skapfastur og hafir fastmótaðar skoðanir. Mjög sár Kæri Póstur! Þannig er mál með vexti að ég er búin að vera með sama stráknum í fjögur skipti í röð, en á síðasta balli var hann með annarri stelpu, sem hann hefur verið með áður, og lét sem hann sæi mig ekki. Ég veit ekki til að ég hafi gert neitt á hluta hans og er mjög sár yfir þessu. Ég er ofsalega hrifin af honum, en ég veit ekki hvort hann er hrifinn af mér. Mér finnst að hann hefði getað sagt mér upp áður en hann fór að vanga aðra stelpu við nefið á mér. Elsku Póstur, hvað finnst þér? Hvað á ég að gera, á ég að vera með honum áfram ef hann vill, eða á ég að láta hann flakka? Hvernig eiga fiskarnir og bogmannsmerkið saman? En fiskarnir og vogar- merkið? Hvernig er skriftin og stafsetningin og hvað lestu úr skriftinni? Virðingarfyllst. Ein í vanda. Éf þú þolir illa að hann sé með öðrum stelpum jafnframt þér skaltu láta hann flakka, að minnsta kosti þangað til hann lofar staðfastlega bót og betrun. Eins og sakir standa er hann varla mjög hrifinn af þér, ann- ars hefði hann varla farið að hnusa ! hinn kvenmanninn frammi fyrir þér. 4 \>IKAN 29. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.