Vikan - 20.07.1972, Blaðsíða 6
SÍÐASTA VERK
SPRENGJU-
SÉRFRÆÐINGSINS!
Englendingurinn Norman Hill var sér-
fræðingur í að gera sprengjur óvirkar
og talinn einn hinn færasti í heimi á
því sviði. Lögreglan um allan heim
sendi eftir Norman Hill ef eitthvað
þurfti að gera sem þeirra eigin menn
réðu ekki við.
Norman Hill vissi alltaf, að hvert
verk gat orðið það síðasta. Örlítil mis-
tök, vitlaus handtök — og hann var
búinn að vera.
Seint um kvöld var hann vakinn
heima hjá sér. Það var frá varnarmála-
ráðuneytinu í London og Hill var sagt
að hann ætti að fara til Hong Kong.
Hann spurði ekki nánar um það en
fór rakleitt út á flugvöll þar sem her-
flugvéí frá brezka flughernum beið
hans.
Þeggr hann kom til Hong Kong var
honum sýndur pakki sem á stóð:
„Forðið ykkur, föðurlandsvinir!" Lög-
reglan hélt sprengju vera í pakkanum
og Hill fór með hana út í garðinn um-
hverfis lögreglustöðina. Hann lærði að
fara með sprengiefni í síðari heims-
styrjöldinni og vissi hvað hann var
að gera.
En allt í einu skeði það sem hann
hafði búizt við í hartnær 30 ár.
Sprengjan sprakk. Hill hélt lífi en
þetta varð samt hans síðasta verk.
Handleggurinn var tekinn af og
myndin sýnir kínverska lögreglumenn
rjúka til strax eftir sprenginguna.
ENGINN ELSKAR FIFI
Hið dæmigerða nafn gleðikonunnar er
Fifi, Lóló, Mímí og svo framvegis. Á
Hawaii-eyjum er um þessar mundir
stödd karlvera sem heitir Fifi. Og Fifi,
sem er í rauninni frá Seattle í Wash-
ington, elskar engimn, ekki einu sinni
yfir nóttina. Fifi þessi er górilluapi
sem sendur var til Hawaii til að leita
sér að maka, þar sem lítið hefur fæðzt
af górillum í bandarískum dýragörð-
um undanfarin ár.
Gæzlumaður Fifi segir að þetta sé
nú farið að leggjast á sálina á hon-
um og að skap hans versni með hverj-
um degi. Og nú er fyrirhugað að senda
Fifi aftur heim til Washington, ósnort-
inn.
Innan skamms setja Englendingar á
markaðinn bjór í túpum og verður eft-
ir það varla hætta á, að krúsirnar fari
að fljúga á pöbbunum. Er aðalástæðan
fyrir þessu sú, að bjórkönnur og flösk-
ur hafa valdið miklum óþægindum í
Bretlandi undanfarin ár og enn er átt
við hina gífurlegu megnun. Þægilegt
verður að eyða þessum plasttúpum —
en ekki eyðast þær þó sjálfkrafa eins
og til stendur að reyna hér á landi.