Vikan - 20.07.1972, Blaðsíða 23
I
Sólskinsdagur
í Sundlaugunum
Sundlaugarnar hafa verið óspart notaðar i sumar,
enda veður eindæma gott, að minnsta kosti þegar
þetta er skrifað, sólskin og heiðríkja dag eftir dag.
Aðsókn að sundlaugunum nýju i Laugardal mun
hafa aukizt stórlega, enda ekki furða, þar sem allar
aðstæður eru þar til fyrirmyndar og laugin óvenju
skemmtileg í alla staði. Sú tillaga hefur komið
fram, að byggt verði yfir laugarnar, þannig að
menn geti notið hitabeltisloftslags þar allt árið um
kring. Þetta kann vel að vera góð hugmynd. En á
sólskinsdegi eins og þeim, þegar þessar myndir
voru teknar, er slíkur framtiðardraumur óþarfur.
Það var margt um manninn, bæði fullorðnir og börn
— mikið um ærsl og busl og sannkölluð sumar-