Vikan


Vikan - 20.07.1972, Síða 26

Vikan - 20.07.1972, Síða 26
HVER VERÐUR ARFTAKI MARGOT FONTEYN Þaö er ekkert nýtt að erfitt er að finna orð til að lýsa frábærum hæfileikum dansstjörnunnar Margot Fonteyn. bessi furðulega kona getur ennþá, þótt hún sé fimmtiu og þriggja ára gömul, dansað I hlutverki Júliu á móti Nureyev, töfrað áhorfendur þannig að þeim finnst hún vera fjórtán ára og ástfangin i fyrsta sinn. En það verður samt ekki hjá þeirri sorglegu staðreynd komizt, að jafnvel Dame Margot getur ekki dansað eiliflega. En ennþá finnst aðdáendum hennar ótrúlegt að þeir timar munu koma, að hún skini ekki lengur sem skærasta stjarnan i heimi da n sl is ta r i nn a r , „prima ballerina assoluta”. En aldurinn hlýtur að segja til sin einhvern daginn og þá mun hún kveðja með glæsibrag hinnar miklu lista- konu.... Hver verður arftaki hennar? Viö konunglega ballettinn i London, þar sem Margot Fonteyn hefir alltaf verið eftirsóttur og mjög dáður gestur, en hún var aldrei fastráðin þar, er stór hópur af mjög efnilegum dansmeyjum: — Svetlana Beriosova, Antoinette Sibley, Merle Park, Doreen Wells, Lynn Seymour, Monica Mason, Margaret Barbieri, Deanne Bergsma, sem allar eru sólódansmeyjar og hafa hlotið mikla aðdáun áhorfenda. Þrepi nebar eiu svo sólódansmeyjar, sem ekki hafa hlotið svo mikið lof, en hafa greinilega mikla hæfi- leika. Allar 'nafa þessar stúlkur sln séreinkenni og þær hafa allar hlotið þjálfun sina við járnaga konunglega ballettskólans, þar sem aðeins ein stúlka af hundraði eða hundruðum fær aðgang. Þvi hefir verið spáð að hin rúmlega þrltuga Antoinette Sibley verði næsta skinandi stjarna á himni ballettsins I Bretlandi. En það verður samt ekki gengið fram hjá hæfiioikum Merle Park eða Svetlana Beriosova. Ballettgagnrýnendur eru harðir I horn að taka og sjaldan á einu máli, en eitt veröa þeir lik- lega sammála um, engin þeirra verður önnur Margot Fonteyn. En á hinn bóginn er ekki þar með sagt að ekki komi fram dans- mær með jafnmikla hæfileika úr hinum stóra hópi við Konunglega ballettinn. Hver verður hún? Það veit enginn ennþá, en eitt er vist, hún verbur ein þeirra sem við birtum myndir af á þessum opnum. Merle Park fæddist I Rodesiu árið 1037 og kom til Sadler Walls ballettsins (sem nú er Konunglegi ballettinn) áriö 1954. Fjórum árum siðar dansaði hún einleikshlutverk og stuttu slöar aöalhlutverk. Hún hefur dansað mjög erfiö einleikshlutverk undan- farin ár, sérstakiega siðastliðið ár. Hún dansaði hlutverk stúlkunnar i siðasta ball- ett MacMiilans „Triad”. Hið guilna tækifæri Antoinette Sibley var þegar hún tók við hlutverki Odette-Odile af Nadia Nerina, sem varö veik. Hún er fædd I Englandi og er nú ein af fremstu dans- mcyjunum við Konunglega ballettinn. Hún á mörg ein- leikshlutverk að baki, eins og Auroru prinsessu I „The sleeping bcauty”, Clöru I bailet Nueyevs „Nutcracker”, Júliu I Romeo og Júlia eftir Macmillan, titilhlutverkið I „Cinderella” eftir Ashton og slðast en ekki slzt þá dansaöi hún á móti Nureyev i „Jass Calender” eftir Ashton. -J

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.