Vikan


Vikan - 20.07.1972, Side 34

Vikan - 20.07.1972, Side 34
I húmi næturinnar í raunini voru samskipti mín við karlmenn ekki nærri svona slæm. Þau höfðu aðeins gerzt á tímabilinu, þegar mamma var að halda framhjá pabba með Timothy. Það var illa gert af mömmu að gefa sig á vald ó- kunnugum mani. Hún tilheyrði pabba, jafnvel þótt hann væri dáinn. Pabbi var alveg einstak- ur. Ég hefndi hans og karl- mennirnir voru aðeins vopn við þá hefnd — ég man varla eftir þeim; þeir voru ekki merkilegri en það. Ég ýkti bara þetta með veit- ingaþjóninn, af ásettu ráði, að- eins til að særa Robert, og færi ég að halda fram hjá honum, væri það eingöngu af þessari ástæðu. Hann á það sannarlega skilið. Já, það var annars líka skýrsla frá Sviss í skjölunum hans. Hvað gat ég annað gert en gera sem mest úr ástarbralli mínu, til þess að leiða Robert á villigötur? í fyrstunni virtist svo sem Kalinski hefði verið á rétta sporinu, og ég hafði haft alvarlegar áhyggjur af því, en við réttarhaldið hafði hún að- eins sagt, að „tiltektir" allrar fjölskyldunnar gætu verið rannsóknarverðar. Það mátti skilja á marga vegu. Þar sem hún hafði ekki verið ákveðnari en þetta og allur annar fram- burður hennar var hrein della, var gild ástæða til að halda, að áhyggjur mínar væru ástæðu- lausar. Með „tiltektum" hafði hún áreiðanlega átt við ástar- brallið, og var ekki sérlega ísmeygilega að orði komizt, en bréfin hennar voru að meira eða minna hluta klámskrif. Vegna þess, hve ringluð hún var, þá var henni sleppt með áminningu og sekt. Ég ákvað að komast í samband við döm- una og komast að því, hve mik- ið hún vissi. 10. Það var greinilegt, að Fuhls- buttel-flugvöllurinn hafði stækkað talsvert. Ég hafði þekkt hann síðan í þá daga þegar feiti stöðvarstjórinn var að busla í sundlauginni með fögrum konum. Nú ríkti þarna engin slík léttúð, nema ef telja skyldi silfruðu neglurnar á hlaðfreyjunum — aðeins grænt gras, blaktandi flögg og mann- grúi. Ég steig upp í Lufthansa- vélina til Frankfurt. Flugfreyj- an var föl og þóttafull. Ég stóðst freistinguna að gera hundrað marka tilraunina á henni, því að margar flugfreyj- ur eru heiðarlegar, og ég vildi ekki láta þessa tilraun eyða blekkingunni hjá mér. Ungfrú Kalinski átti heima skammt frá stöðinni. Þegar ég steig út úr bílnum, dokaði ég ofurlítið við, áður en ég gekk inn í húsið. Ég var þegar í stað ávörpuð af amerískum negra- dáta. Ég fór inn og stóð í ráða- leysi í forsalnum, í órólegu skapi. Fólk gekk inn og út og horfði forvitið á mig. Bréfberi kom niður stigann, og spurði, hvort ég væri að gá að ein- hverjum, en ég sagði: „Nei, þakka yður fyrir,“ og reyndi að taka mig saman. Kalinski bjó í lítilli en stór- hreinlegri íbúð á þriðju hæð í nýrri húsasamstæðu. Hún var orðin gömul — hárið snjóhvítt og hvössu augun voru flóttaleg. — Góðan daginn, frú Huss- mann. Hún hrökk við eins og hrædd, og hefði áreiðanlega skellt hurðini í lás fyrir nefinu á mér, hefði ég ekki sett fótinn í milli. — Þér þurfið ekki að vera hrædd, frú Hussmann. Það er ailt búið og gert, er það ekki? Mig langaði bara til að tala of- urlítið við' yður um þá góðu, gömlu daga. -— Ég veit ekkert! æpti hún. — Ef þér farið ekki, skal ég kalla á lögregluna. — Já, það vær kannski ekki svo vitlaust, sagði ég brosandi. — Blessaðar gerið þér það! Svo hleypti hún mér inn og vísaði mér inn í setustofuna. Mynd af mömmu stóð á skrif- borðinu. ■—• Þetta var ánægjulegt, frú Hussmann, sagði ég og benti á myndina. — Þér eruð sannar- lega ræktarsöm. Eigið þér allt- af myndir af gömlum hús- bændum yðar? — Mér leið vel hjá henni mömmu yðar, sagði hún, grát- klökk, og neri hendurnar. — Wendselling var mitt heimili. — En þér kunnuð ekki við hr. Londale? — Þá skepnu! sagði hún reiðilega. — Hann átti þar ekk- ert að vilja. Ég hefði með ánægju drepið hann sjálf. — Hvað höfðuð þér eigin- lega á móti hr. Londale, frú Hussmann? Greip hann yður í því að vera að staupa yður? Þetta hitti í mark og hún kafroðnaði. — Ég gerði alltaf verkin mín almennilega, svaraði hún ó- lundarlega — og sannarlega á maður skilið að fá sér bragð, endrum og eins? Hann taldi allt eftir mér, þessi mannfýla, enda þótt hann neitaði ekki sjálfum sér um nein heimsins gæði. — Þér eruð nú engu að síð- ur að tala um hann stjúpa minn, frú Hussmann, og ég verð að biðja yður að gera það af fullkominni virðingu. Og fyrst við minnumst á svo- lítið bragð, hvað er orðið af gestrisninni yðar? Æltlið þér ekki að bjóða mér eitthvað að drekka? Ég er þyrst eftir allt þetta ferðalag. — Afsakið, sagði hún dræmt. - Hvað vilduð þér fá? Kaffi- sopa? — Já, kaffi væri ágætt svar- aði ég og mér var alvara. Með- an hún var í eldhúsinu, skoð- aði ég íbúðina vandlega, og í rólegheitum. Þarna inni var allt þetta venjulega: á veggn- um slæm litprentun af Mona Lisa og mynd af Matterhorn, þakinn ljósrauðum snjó, gljá- fægður skápur með kínversk- um tebollum og málaðir mais- kólfar í blikkvasa. Næst mynd- inni af mömmu sá ég mynd af dauflegum karlmanni með hrokkið hár — sýnilega af hon- um hr. Hussmann sáluga — og svo opna biblíu. Á borðinu var opin súkkulaðiaskja. Umbúða- pappírinn lá enn við hliðina á henni. Ég var rétt í þann veg- inn að snúa honum við til'þess að sjá skriftina, þegar gestgjafi minn kom inn aftur. Frú Huss- mann gaf mér kaffið og bauð mér súkkulaðið. Ég tók marzi- panstykki, og hafði gaman af að sjá, að Kalinski -—- eins og ég kallaði hana enn í huganum — tók stykki með rommi í. Gamli smekkurinn hennar 34 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.