Vikan


Vikan - 20.07.1972, Blaðsíða 42

Vikan - 20.07.1972, Blaðsíða 42
eldingu lauzt niöur á kletta- tangann og eyöilagöist þar vatns- ból þeirra. Nú var ekki um annað fyrir þá aö velja, en fara aö uppástungu skipstjórans. Sex dögum eftir aö þeir lentu á eynni, ákváðu þeir aö leggja i haf aftur. Þrír þeirra voru þó svo máttfarnir og lasburða, aö þeir treystu sér ekki til aö þola haröræöiö um borö. Voru það þeir Chappel þriöji stýrimaður og tveir hásetar, William Wright og Seth Weeks. Þann 26. desember stóðu þeir i flæöarmálinu þrir saman, og horföu á eftir bátnum. Þær litlu vistir, sem bátsverjar höföu meö sér úr eynni, entust þeim ekki nema fyrstu dagana. Eftir það brögöuöu þeir ekki mat i tlu sólarhringa. Og þar sem þeir voru of máttfarnir til að haga seglum og of sljóir til að reikna út stefnuna,- létu þeir berast fyrir stormi og straumi hvert sem vera vildi. Þann 10. janúar lézt Mathew Joy og voru þá ekki nema fimm eftir um borð i báti Chase stýrimanns. Var likinu varpað fyrir borö án mikillar athafnar. Tveim sólarhringum siðar gerði hvassviöri mikiö og sleit þá samfloti með bátunum fyrir full og allt. Chase þóttist viss um að þeir mundu farast I storminum, en svo fór ekki, og enn voru þeir fimm saman á lífi, þegar veörinu slotaöi - hann, Richard Paterson skutlari, Ben Lawrence, Tom Nicholson og Isaac Cole. Og þar eð bátur þeirra hafði veriö sjófærastur, töldu þeir víst . aö báöir bátarnir heföu farizt. „Þá erum viö ekki nema fimrri eftir,” mælti Chase dapurlega. „Viö veröum ekki nema fjórir áöur en langt um liöur,” varö Cole aö oröi. „Ég hjari ekki lengi úr þessu.” Þaö reyndust og orð að sönnu. Isaac Cole lézt þann 20. janúar 1821. Á ég að varpa lfkinu fyrir borð, Chase stýrimaður” spurði Paterson. Allt kvöldið hafði hræðileg hugsun ásótt Chase, er hann horföi á hinn deyjandi mann. Nú þorði hann ekki einu sinni að lita þangaö, sem likiö lá I bátnum. „Já, varpaðu honum fyrir borð, og það sem fyrst,” svaraöi hann hraðmæltur. „Bíddu andartak, Paterson,” flýtti Tom Nicholson sér að segja. „Hvað áttu viö?” spurði Chase. Nicholson hikaði við að svara, en leit til Lawrence. Það var eins og með þeim yrði þegjandi samkomulag og litu þeir nú báðir til Chase. Þá gerðist þaö, öllum þeim til mikillar undrunar, að skutlarinn tók aö hlæja. Og loks hló hann svo ákaft, aö hann fékk ekki við sig ráðiö, en titraöi og skalf eins og I krampaflogum. „Hann er orðinn brjálaður,” sagði Tom Nicholson óttasleginn. Paterson hristi höfuðið I mótmælaskyni, en kom ekki upp neinu oröi I bili. „Hvaö gengur að þér, Pater- son?” spurði Chase loks all- reiðilega. „Ekkert,” gat svertinginn loks stunið upp. „Mér finnst þetta bara dálitið einkennileg tilviljun. Munið þið hvað gerðist, kvöldið sem við vorum að bisa viö aö komast upp i bátana? Var það ekki einmitt Tom Nicholson, sem kallaöi mig mannætu?” Nicholson fól andlitiö I höndum sér. Chase glotti hörkulega. „Ég geri ráð fyrir þvl, aö það sé einróma álit okkar, mannætanna fjögurra, aö þetta sé okkar eina von til að halda llfi. Og ég geri llka ráð fyrir aö Isaac vesa- lingurinn hreyfi ekki mót- mælum.” Þann 30. janúar var hungrið orðið þeim óbærilegt. Þeir ák- váðu þá að varpa hlutkesti um hver þeirra fjögurra ætti að leggja hinum þrem til matarforða Ibili. Það gerðu þeir, og kom upp hlutur svertingjans, Richards Patersons skutlara. Atti Tom Nicholson aö bana honum með skammbyssú Chases stýrimanns. Nicholson kjökraði og bað svertingjann að mega deyja I hans stað. Paterson hristi höfuðið. „Það er ekkert lakara að deyja á þennan hátt, en með einhverju ööru móti. Þetta var heiöarlegt hlutkesti og aðstaða allra jöfn. Og meira veröur ekki krafizt. Þann 17. febrúar höföu þeir enn undirbúið samskonar hlutkesti, þegar Chase sá til skips úti við sjóndeildarhring. Skömmu seinna var þeim þrem, Chase, Nicholson og Lawrence, bjargað af briggskipinu „India”, en skipstjórinn var William Craig frá Lundúnum. Nokkru seinna fannst bátur Pollards skipstjóra, og var hann sjálfur þar einn eftir á llfi viö annan mann. Til þriðja bátsins spurðist aldrei. Þegar þeir sem af komust höfðu sagt hafnaryfirvöldunum I Valpariso hrakningasögu slna, var hvalveiðiskipið Surrey sent til að sækja þá, sem eftir höfðu oröið I eynni. Þar meö var likið ein- hverjum mesta harmleik sem um getur. 42 VIKAN 29. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.