Vikan

Tölublað

Vikan - 08.02.1973, Blaðsíða 5

Vikan - 08.02.1973, Blaðsíða 5
ar hans að biðjast fyrirgefning- ar. Þú verður bara að bíða og sjá til. Sé hann hrifinn af þér, þá reynir hann áreiðanlega aft- ur, og vonandi verður hann þá ekki fullur, jafnvel ekki einu sinni bara dálítið. P.S. Læra betur undir kennslu- stundirnar. Sannur ógnvaldur Kæri Póstur! Við erum hérna tvö að rífast um það, hvort sagan ,,Ogn- valdur skíðaskálans" sé sönn eða bara skáldsaga. Góði Póst- ur, viltu vera svo góður að birta þetta bréf. — Hvernig er skriftin? Hvað lestu úr skrift- inni? Með fyrirfram þakklæti. Ein forvitin. „Ógnvaldur skíðaskálans" er al- veg áreiðanlega skáldsaga. — Skriftin er falleg, og hún segir okkur, að þú sért varkár og ná- kvæm og megir ekki vamm þitt vita í neinu. Stjörnumerki og stjörnuspár Kæri Póstur! Ég er einn af þeim mörgu, sem hef áhuga á öllu, er viðkemur stjörnumerkjum og stjörnuspám. Við lestur Póstsins sér maður f svo til öllum bréfunum ein- hverjar spurningar varðandi þetta. Vikan birtir stjörnuspá í hverju blaðl, sem ég veit, að eru mikið lesnar. Einnig man ég eftir greinum, sem fjölluðu um öll stjörnumerkin, hvert í sínu lagi, og voru þær mjög fróð- legar og skemmtilegar aflestr- ar. Það er orðið nokkuð langt síðan þær birtust, og eflaust hafa margir, sem áhuga hafa á þessu efni, misst af þeim. Hvernig væri nú að koma á fót föstum þætti, er fjallaði um stjörnumerkin? Hann þyrfti ekki að vera nema svo sem ein síða. í þessum þæfti gætuð þið haft hina föstu stjörnuspá og svo fjallað um stjörnumerkin og annað þeim viðkomandi. Ég þori að fullyrða, að slíkur fastur þáttur yrði gífurlega vinsæll og mikið lesinn. Ég vona, að Póst- urinn komi þessari uppástungu á framfæri við þá, sem ráða efnisvali Vikunnar. Að síðustu vil ég aðeins þakka gott efni, sem Vikan flytur. PeesS. crCo Okkur þykir alltaf vænt um, þegar lesendur sýna efni blaðs- ins áhuga, og tillaga þín er fyllstu athugunar verð. Við höf- um sannarlega orðið vör við þennan gífurlega áhuga fólks á öllu viðkomandi stjörnumerkj- um og spádómum. Enda birtum við alltaf öðru hverju eitthvað um þessi mál. Svar til Önnu Daddýjar Vesalingurinn, ósköp hlýtur þér að líða illa, ef ástandið er eins og bréfið gefur til kynna. En þetta er auðvitað bara þín hlið á málinu, og Pósturinn á erfitt með að dæma um, hvað rétt sé fyrir þig að gera. Sjálfsagt hafa erfiðleikar móður þinnar tekið á taugar hennar ekki síður en þín- ar, og þvilíkt bitnar alltaf á þeim, sem næst standa. Orð- bragð hennar er auðvitað ekki til fyrirmyndar, en hvernig er þitt? Jú, þú hefur víst aldur til að fara að heiman, ef þú vilt það sjálf, og e. t. v. hefðirðu bara gott af því að reyna að standa á eigin fótum. En vænt- anlegt barn setur óneitanlega strik í reikninginn, og það er von þú sért „í maski", eins og þú orðar það. Viljið þið ekki reyna að nálgast foreldra ykk- ar, án þess að dæma þau fyrir- fram? Auðvitað ertu alltof ung til að hætta alveg námi og fara að búa og annast lítið barn, en úr því sem komið er, verðið þið bara að taka þessu og gera ykk- ar bezta. Hafðu lækni með í ráðum varðandi leikfimina. —■ Skriftin er ekki falleg og rétt- ritun öll í molum, en af skrift- inni má ráða, að þú sért heið- virð, en eigir dálítið erfitt með skapið. Jómfrú og fiskur verða að leggja sig í líma til að geta átt góða daga saman, en þá geta þeir líka orðið verulega góðir. MIDAPRENIUN Látiö prenta alls konar aðgöngumiða, kontrol- númer, afgreiðslumiða og fleira á rúllupappír. Eina prentsmiðjan á landinu, sem prentar slíka miða. Höfum einnig fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiss konar afgreiðslubox. LEITIÐ UPPLÝSINGA HILNIR m Síðumúla 12 - Sími 35320 6. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.