Vikan - 26.07.1973, Síða 25
því kæiaa og pannig koll af kolli.
Sé hraun hins vegar kælt með
vatni, er hraunbrúnin kæld niður i
gegn og þá hleðst hraunið upp og
myndar vegg, sem ekki haggast.
Síðan er haldið áfram inn á
hraunið og þessi veggur styrktur.
— Ertu ánægður með árangur-
inn?
— Já. Það sýndi sig i Vest-
mannaeyjum, að hægt er að ráða
stefnu hraunrennslis með vatns-
kælingu. Hraun verður seint
stöðvað, en stefnu þess er ótrú-
lega auðvelt að ákveða, ef nauð-
synleg tæki eru til staðar.
Kannski finnst einhverjum nóg
um bjartsýni Sveins, en bjartsýni
og vilji virtust mér vera sterkustu
einkenni hans, enda sagði hann
einkunnarorð lifs sins vera: „Allt
er hægt, ef viljinn er fyrir hendi”.
Sveinn fékk að velja sér óska-
viðtal eins og þeir Þorbjörn og
Magnús og hann vildi, að lesendur
Vikunnar fengju að kynnast
Kristni Guðbrandssyni fram-
kvæmdastjóra Björgunar h/f, og
vonandi liður ekki á löngu, áður
en af þvi verður.
30. TBL. VIKAN 25