Vikan

Tölublað

Vikan - 26.07.1973, Blaðsíða 48

Vikan - 26.07.1973, Blaðsíða 48
MIG DREYMD PENINGABRÉF Kæri draumráðandi. Ég vona, að það dragist ekki mjög lengi að ráðningin á þessum draumi birtist, ef þú sérð þér fært að verða við þón minni um að ráða hann. Mér fannst ég vera heima hjá mér og allt leit út þar eins og gerði fyrir fimm til sex árum. Ég þóttist vera að opna bréf, sem ég hafði fengið. Fyrst hélt ég, að það væri frá vinkonu minni, en þegar ég opnaði það kom í ljós þrír þúsund krónu seðlar og nokkrir 10 og 5 krónu seðlar. Ég varð svolítið hissa á þessu, en þá segir systir mín: Sjáið þið, spilin segja að það séu peningar. Hún er ófrísk og var með spil í höndunum. Mamma segir við okkur, að þetta hljóti að vera kaupið mitt. Ég fór að skoða bréfið betur og sá þá lítinn klæðisbút, sem á stóð Bæ, bæ og eitthvað fleira, sem ég gat ekki greint. Þá varð draumurinn ekki lengri. Fyrirfram þökk fyrir birtinguna. E.B.S. Það verða einhverjar breytingar á högum þínum í ná- inni framtíð. Þessar breytingar eru efnahagslegar. Þú færð liklga mjög góða atvinnu og vel launaða, því að peninga- seðlar eru fyrir ágóða í draumi og þó einkum séu þeir óhreinir og illa farnir. GOSDRAUMUR Kæri draumráðandi. Ég sá um daginn að þú varst að óska eftir því að þeir sem hefðu dreymt fyrir Vestmannaeyjagosinu létu til sín heyra. Ég ætla að segja frá draumi, sem mig dreymdi fyrir átta til tíu árum og sagði þá strax að mundi verða fyrir ein- hverjum tíðindum í Eyjum. Mér fannst ég vera á gangi fyrir neðan Hraðfrystistöð- ina í Eyjum. Mér fannst vera myrkur og allt fólkið farið til lands. Eyjan var komin í eyði, en þó fannst mér þrjú ljós loga uppi á Heimaklefti. Ég gekk um nokkra stund, en þá kom til mín maður með ljósker í hendinni og var hann klæddur í hvítan jakka og svartar buxur. Mér þótti hann segja við mig: „Við skulum koma héðan. Hér er allt búið.“ Mér fannst, að bátur biði okkar og ég vissi að við vorum síðust til að fara frá Eyjum. Lengri varð draumurinn ekki. Elín Þorsteinsdóttir. Hafðu þökk fyrir drauminn, Elín. Hann þarfnast engra útskýringa og hefur trúlega verið fyrir gosinu, þótt langt sé um liðið, síðan þig dreymdi hann. GULLKROSSAR OG PERLUFRIÐUR Kæri draumráðandi. Ég skrifa fyrir bróður minn, sem hefur mikinn hug á að fá eftirfarandi draum sinn ráðinn, og vona ég að þú getir orðið við þeirri bón. Hann dreymdi að hann væri með stelpu sem hafði unnið allskyns gersemar, sem hún hafði hangandi um hálsinn, í happadrætti. Hún gaf honum þrjá þessara muna, stóran gullkross, en hann var brotinn, annan minni kross úr gulli og var sá heill. Svo gaf hún honum friðarmerki úr perlum. Lengri varð draumurinn ekki. Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna. Hjördís. Það eru nokkuð mörg tákn í þessum draumi, þótt stutt- ur sé, en þau eru svo ósamstæð að það torveldar ráðning- una. Við treystum okkur þó til að spá bróður þínum því, að hann eigi tiltölulega auðvelt með að sigrast á þeim erfiðleikum, sem framtíðin ber í skauti sér honum til handa. BARNAVAGN Kæri draumráðandi. Mig langar að biðja þig að ráða eftirfarandi draum fyrir mig. Mér þætti vænt um það, því að hann skiptir mig svo miklu. Mér fannst ég vera að koma úr vinnu. É'g geng upp Laugaveginn og hitti þar pilt, sem ég hef verið mikið með og held að ég sé barnshafandi eftir. Ég geng til hans eins og við hefðum mælt okkur mót þarna. Hann hafði barna- vagn fyrir framan sig, grábláan og hvítan. Við brostum hvort til annars, hann kyssti mig á kinnina. Mér fannst ég líta ofan í vagninn og segja: Þú ert alveg eins og pabbi þinn. Mér fannst vera sveinbarn í vagninum, klætt í gul föt. Sængui'fötin voru hvít og falleg. Þegar ég lít upp, fannst mér pilturinn kyssa mig aftur og mér þótti við vera svo hamingjusöm. f Ég vona að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig. Með þökkum. X. Þó að hugljúfir draupiar séu ekki alltaf fyrir góðu, höld- um við að það fari ekki milli mála í þetta sinn. Við höldum að þetta sé berdreymi svo mikið, að sjaldgæft sé. TRÚLOFUNARSLIT Kæri draumráðandi. Fyrir nokkru sleit ég trúlofun við pilt, sem ég hafði ver- ið trúlofuð í ár, vegna þess að hann var farinn að fá áhuga á öðru kvenfólki. Stuttu seinna dreymdi mig rhjög skýran draum, sem mig langar til þess að biðja þig að ráða. •• Mér fannst pabbi fyrrverandi unnusta míns kalla á mig og biðja mig að tala við sig. Við fórum inn í kvistherbergi, þar sem var kolniðamyrkur og settumst þar við bbrð. Mér þótti maðurinn segja mig: „Þú verður að bíða eins og ég þurfti að gera.“ Ég skildi þetta þannig, að ég ætti að bíða eftir syni hans, því að hann hefði þurft að bíða eftir konu sinni. Kæri draumráðandi. Mig langar til að vita hvort. þessi draumur merki eitthvað, því að þetta er mér mjög mikil- vægt. Með von um að þú birtir þetta og þökk fyrir allt gamalt og gott. H.G. Ekki viljum við ráða draum þinn þannig, að þú takir aftur saman við piltinn. Líklegra þykir okkur, að þú upp- götvir að lífinu er ekki lokið, þó að upp úr þessu sambandi hafi slitnað. Annars þykir okkur líklegt að þessi draumur sé.svo náténgdur því ástandi, sem þú ert i andlega, að ekki jsé mikið mark á honum takandi. SVAR TIL K.H. FYRIR NORÐAN Af bréfinu ráðum við, að þú sért ógift. Þess vegna ráð- leggjum við þér að fara heldur varlega í ástamálum, því að ógiftum konum er sjaldnast fyrir góðu að ala barn í draumi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.