Vikan

Tölublað

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 8

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 8
hefur heyrt kallið, hleypur hann aftur gang og „slær úr blökk- inni”. A skuttogurum þarf ekki að taka vírana i blökk og þvi er „hif- oppið og trollavaktirnar” bráðum úr sögunni. begar skipstjóri vill hifa upp rollið, tekur hann bara i sveif upp i brú og setur spilið i gang. Eins og áður segir eru nýju tog- ararnir aðallega af tveim stærð- arflokkum, um 500 tonn og 800—1000 tonn (samkvæmt nýju mælingunni, en hún er vist tölu- vert knappari en.sú gamla). Þeir minnihafa 14—16manna áhöfn og eru um lOdaga i veiðiferð, en þeir stærri 26 manna áhöfn og eru 14—18 daga. Siðutogararnir gömlu voru smiðaðir á árunum 1946—60 og hafa 28—30 manna áhöfn og eru 13—18 daga i túr. Þegar talað er um mun á siðu- og skuttogurum má ekki gleym- ast að minnast á vinnuaðstöðu og ibúðir. A siðutogurum fer öll vinna við fisk fram á dekki, undir berum himni, og ibúðir háseta Þeir eru harðánægðir með eldhúsið, matsveinarnir Vilh jálniur Stefánsson og Ægir Hafsteinsson íi B $ A leið i land. Strákarnir stökkva hressir i bragði upp á bryggjuna, enda er þriggja daga fri framundan. Pétur Sigurðsson ber hæst. eru i stefni skipsins og verður að fara út til aö komast aftur i. Á skuttogurum fer öll vinna viö fisk fram undir þiljum og innangengt er um allt skip. Unnið er um borð i togurum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, alla daga ársins. Aðal- störf háseta eru vinna við að taka trollið og láta það fara, vinna við fiskinn, koma honum rétt verkuð- um I is niður i lest og viðgerðir á trollinu, þvi það er úr nylon-net- um oghættir til að rifna. Hver há- seti vinnur tvær 6 tima vaktir á sólarhring. Skipstjóri stjórnar veiðum og hefur sér til aðstoðar tvo stýrimenn og bátsmann. Fjórir menn sjá um aö halda vél- unum gangandi. Á stærri togur- unum eru tveir kokkar og einn loftskeytamaður, en á þeim minni einn kokkur. Þetta er handahófs- leg kynning á togurum og störfum um borð i þeim og eflaust eiga einhverjir togarajaxlar eftir að glotta við tönn eftir lestur hennar. En vonandi er að hún veiti þeim sem ekkert þekkja til svona skipa ofurlitla innsýn. Júni kom fyrst til heimahafnar, Hafnarfjarðar, á sjómannadag- inn siðasta og var þá vel faghaö af bæjarbúum. Eftir smálagfæring- ar fór skipið á veiðar 1. júli. —o— Þegar skipið var lagzt að, stukku nokkrir um borð, en flestir létu sér nægja að biöa átekta á hafnarbakkanum. t brúnni gaf skipstjórinn, Hall- dór Halldórsson, síöustu fyrir- mæli i þessum túr. Virðulegir menn með mikið vit á togurum voru þarna mættir og spurðu Halldór um túrinn. — Þetta gekk eins og i sögu. Allt reyndist 100%. Stórkostlegt skip. Finn túr. . . Fjórum hæðum neðar voru strákarnir að skipta um föt og gera sig klára fyrir landgöngu. Kokkarnir gáfu siðasta milasop- ann. Eiginkonur og unnustur, mæður og börn voru i óða önn að heilsa sinum mönnum. „Hann pabbi er kominn”. — Jósep Ingólfsson 2. stýrimaður með syni sinum, Simoni. BYRJAÐI TIL SJÓS A GAMLAJÚNI Ægir Hafsteinsson i. kokkur kunni mjög vel við sig i nýja eld- húsinu. Hann byrjaði til sjós með Halldóri Haildórssyni á gamla Júni, og það eru rúm tiu ár siðan.; Ég bað Ægi að gefa upp mat- seðil eins sólarhrings. — A miðnætti er kaffi nveö brauði, sem næturkokkarnir sjá um, en næturkokkar eru hásetar, sem venjulega eru þeir yngstu af hásetunum. Klukkan 3 er aftur kaffi og er þá brauð með. Morgunmatur er á borðum frá 6—7, og er það hafragrautur, skyr, súrmjólk, kornflex, brauð og slátur, kaffi og mjólk. Klukkan niu er morgunkaffi og fá þeir þá „sæmund” með, en það eru kök- ur, vinarbrauð og kringlur. 1 há- deginu erum við oft með steik með kartöflum, grænum baunum og sliku, i eftirmat erum við með súpu eða graut. Þrjúkaffiö er eins samansett og morgunkaffið. Kvöldmatur er frá 6—7 'óg erum við þá oft með fisk og tilheyrand/ og súpu eða graut i eftirmat. Siö- asta kaffi dagsins er klukkan 9 og þá höfum við kokkarnir unnið frá 5um morguninn, að visu meö hlé- um á milli. — Taka strákarnir ekki dug- lega til matar sins? — Jú, ég hef ekki orðið var við annað. Ægir er kvæntur og býr með konu sinni I Firðinum. — Er ekki erfitt fyrir giftan mann að vera til sjós? — Nei, það er ekkert erfiðara fyrir gifta menn en ógifta aö vera til sjós. En það er erfiðara fyrir konur að vera giftar sjómönnum en mönnum sem vinna i landi. Konan min er tiltölulega sátt við að ég skuli vera til sjós. 8 VIKAN 34.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.