Vikan

Tölublað

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 11

Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 11
Hins vegar gafst honum kjörið tækifæri i kosningunum 1956, er ,,hræðslubandalag" Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins kom til sögunnar og framboöum var bróðurlega skipt á milli þeirra af leiðtog- unum i Reykjavik til að seilast i sameinuöu átaki eftir sem flestum þingsætum. Valdist Pétur Pétursson þá i liðsbón á Snæfellsnes og gekk næsta rösklega að þvi verki. Sigurður Agústsson sigraði raunar i viðureigninni með 796 atkvæðum, en Pétur fékk 649 og varð landskjörinn á vegum Alþýðuflokksins, þó að meirihluti kjósenda hans væri áreiðanlega framsóknarmenn. Virtist hann eiga i vænd- um góðan pólitiskan frama i átthögunum vestra, en „hræðslubandalagsins” naut skamma hrið, og Pétur Pétursson varð hart úti i alþingiskosningunum vorið 1959. Hlaut hann þá aðeins atkvæöi 225 Snæfellinga, þeg- ar framsóknarmennirnir runnu aftur heim til sin. Hreppti Pétur þó annað sæti á lista Al- þýðúflokksins i Vesturlandskjördæmi um haustið og var upp frá þvi varamaður Bene- dikts Gröndals, unz framboðið í Noröur- landskjördæmi vestra bauðst óvænt 1971. Pétur Pétursson haföi engu að tapa, en allt að vinna, þegar hann barst i efsta sæti á framboðslista Alþýðuflokksins i Norður- landskjördæmi vestra við siðustu kosningar. Taldi hann sig hornreku i sambúðinni við Benedikt Gröndal. en fékk nú ráðið stefnu og feró ng undi þvi glaður, þó að torfærur væru bersýnilega framundan. Sparaði Pétur sig hvergi, en klæddist morgun hvern eins og bóndi eða verkamaður og tók lága sem háa tali á Siglufirði, Sauðárkróki, Skagaströnd, Blönduósi og Hvammstanga og lagði nótt við dag fram að kosningum. Hann missti af mörgum dýrmætum atkvæðum, sem dreif að Jóni borsteinssyni 1967, en dugði samt hlut- fallslega mun skár en flestir aðrir frambjóð- endur Alþýðuflokksins að þessu sinni. Veitt- ust honum 566 atkvæði og kærkomið uppbót- arsæti og meira að segja á undan Benedikt Gröndal, sem fór miklar hrakfarir á Akra- nesi og i byggðum Borgarfjarðar og Snæ- fellsness. Var Pétur þvi brosmildur að kosn- ingum loknum, þó að Gylfa og Benedikt sviði skellurinn, sem Jón borsteinsson vékst kæn- lega undan. Sannaðist á Pétri Péturssyni, að fljúgandi kráka sveltur miklu siður en hin, er situr. Ræðumennska Péturs Péturssonar er lik- ari skýrslugerð en mælskulist. Hann er glöggur á tölur og aðrar heimildir, en fer sér hægt og liður engum að raska ró sinni. Hins vegar gefst honum vel að spjalla við náung- ann um daginn og veginn og stofna til persónulegra kynna. Pétur átti löngum drjúgan hlut að aflafengnum, meðan þeir Benedikt Gröndal reru saman á atkvæðamið- in vestan lands, og hann dorgar sizt af minni áhuga og lagni fyrir norðan. Honum lærðist ungum að umgangast fólk i sveit og við sjó og lætur sú athöfn sýnu betur en orðasennur á málþingum. Andstæðingar gruna hann unv ’skrum og yfirboð i loforðum og atkvæða- smölun, og margir hinna norðlenzku kjós- enda Péturs ætlast til þess, að hann bregðist við vanda þeirra eins og efnaður iðjuhöldur fremur en djarfmæltur og róttækur verka- lýðssinni, en þau vinnubrögð eru manninum eðlileg og sjálfsögð. Hann litur einmitt á is- lenzk stjórnmál sem fyrirgreiðslu og sam- keppni og stendur að þeim likt og að selja prjónavörur eða fiskmeti á erlendan markað. Pétur Pétursson er langtum svipaðri rikum atvinnurekanda en fátækum launþega, en hann skilur báða og leggur atkvæði þeirra mjög að jöfnu. bess vegna talar hann gjarn- an máli alþýðunnar, en þiggur ráð og jafnvel skoðanir i salarkynnum höfðingjanna og ger- ir með þeim áætlanir. Sennilega ér enginn af núverandi þing- mönnum Alþýðuflokksins óánægðari með hlutskipti sitt 1 stjórnarandstöðunni en Pétur Pétursson. Honum myndi ljúft að vera i meirihluta og krækja sér og matlystugum kjósendum sinum i væna bita úr kjötkatli landsins. Jóni borsteinssyni leiddist að stjana fyrir Siglfirðinga, Skagfirðinga og Húnvetninga i skrifstofum i Reykjavik, en Pétri Péturssyni myndi slikt kært, ef honum væri sinnt eins og hann vildi. Hann er ihalds- samur að skapgerð og eðlisfari, en telur hins vegar óráðlegt að vinna það fyrir vinskap Sjálfstæðisflokksins að bindast honum á minnihlutaklafa fjarri eldinum, sem bezt brennur. béss vegna gæti Pétur Pétursson vissulega hugsað sér Alþýðuflokkinn hlið- hollan rikisstjórninni, þó að hann gagnrýni ýmsar gerðir hennar i áróðursskyni. Hann kysi á sama hátt samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn aö fengnum meirihluta ásamt hon- um og raunar hvern, sem væri, ef skrifstof- urnar opnuðust og íyrirgreiðsla byðist. betta eru sjónarmið atvinnumannsins, sem hefur framfæri sitt af stjórnmálum, og viðbrögð ekilsins, er vill heldur gull en grjót 1 vagni sinum. bað var hending, að Jón borsteinsson hreppti þingmennsku, sem Aki Jakobsson þráði en taldi fyrirfram tapaða i blindri svartsýni, og sömuleiðis, að Pétur Pétursson kom i stað Jóns, þegar hann velti taflinu og rauk brott, én slikt og þvilikt virðist eigi að siður timanna tákn. Islenzkur stjórnmála- heimur er að mörgu leyti eins og suðrænn aldingarður, er grær i skjóli um dal og hlið kysstur heitri sól, og undir laufrikum og ið- grænum trjám hans njóta sin bezt duglegir og þrautseigir sjálfgæðingar á borð við Pétur Pétursson. Hann er ekki vonsvikinn hug- sjónamaður eins og Aki Jakobsson eöa dint- óttur skákmeistari eins og Jón borsteinsson, en honum dytti aldrei i hug aö sleppa ótil- neyddur úr hendi sér epli eða öðrum ljúffeng- um og saðsömum ávexti. Lúpus. 34. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.