Vikan - 23.08.1973, Blaðsíða 14
Margar fallegar bjggingar eru I
miðborg Saigon.
Keiðhjól eru helztu farartæki
Saigonbúa, en umferð alls konar
farartækja er óskapleg og virðist
ekki hlýta neinum reglum.
Það er einkum tvennt
sem vekur athygli, þegar
komið er til Saigon. Eyði-
leggingin sem hvarvetna
blasir við og gífurlegur
ef nahagslegur aðstöðu-
munur íbúanna.
Það er ekki einungis
venjulegur munur ríkra og
fátækra sem svo algengur ,
er i Áusturlöndum, því að N ■ 1,
hér skiptist fólk líka í
heilbrigða og vanheila,
limlesta og heila. Bruna- '
sárin, blindan og
taugasj úkdómarni r eru
ólæknandi. Harmurinn og
vonleysið hafa líka tekið
marga svo sterkum tökum,
að ekkert verður að gert.
Don Dang Quangfjölskyld-
an er ein þeirra, sem er sól-
ar megin. Hún er ein
þeirra, sem nýtur þeirra
forréttinda, að hafa ekki
misst allt í stríðinu.
— Við megum sannar-
lega vera þakklát, segir
herra Do Dang, sem er vel-
metinn bankastjóri. Hann
tilheyrir í rauninni yfir-
stéttinni.
Ævi hans gæti verið ef ni í
nútíma reyfara. Hann segir
frá á reiprennandi ensku
eða frönsku, því að hann
talar bæði málin jafnvel.
14 VIKAN 34. TBL.