Vikan - 23.08.1973, Side 19
Sumarsaga
Spennandi
sakamálasaga
eftir
John Rhodes Sturdy
Þýðandi:
Páll Skúlason
ár
Hann var i samkvæmi i hinu
nýja húsi bankast jórans i bæ að
nafni Northbank i Alaska. Hann
var kynntur fyrir manni, sem
hann þekkti á augabragði. Mál-
rómurinn tók af allan vafa, þvi
að engar tvær raddir gátu verið
svona nákvæmlega eins. Hann
var hikandi i tali, ofurlitið
kverkmæltur og röddin laus við
útlenzkuhreim. Hann stóð aug-
liti til auglitis við mann, sem
hann hafði horft á fremja morð
— fyrir fimmtán árum.
Eftir fimmtán ár — og það var rétt
eins og þessi fimmtán ár væru snögg-
lega þurrkuð út úr huga Georgs Young
— stóð hann augliti til auglitis við
morðingja.
Hann var alveg hárviss um, að þetta
væri sami maðurinn. Timalengdin
skipti engu máli — hann misminnti
þetta ekki. Nú horfði hann i augu
morðingjans, alveg eins og forðum i
mjóa geislanum frá vasaljósinu, fyrir
fimmtán árum, undir likneskjunni af
Edward, sem kallaður var Svarti
Prinsinn i borginni Leeds.
Og nú var hann i kokteilsamkvæmi i
nýja húsinu bankastjórnans i bæ að
nafni Northbank i Alaska. Hann var að
heisa og morðinginn að segja: „Komið