Vikan - 08.11.1973, Blaðsíða 29
í Jólagetraun Vikunnar eru 500 vinningar: ara-
grúi skemmtilegra leikfanga, bæði fyrir drengi
og telpur. Að þessu sinni völdum við úr þeim
leikföngum, sem heildverzlun Ingvars Helga-
sonar, SogamýriO, flytur inn. Vinningarnir eru
bæði stórir og smáir: Bilabrautir, mjög marg-
ar tegundir af brúðum bæði stórum og smáum,
mekkanó, Dinky-bilar, bilamódel og flugvéla-
módel og siðast en ekki sizt Ævintýramaðurinn
(Action Man), sem nýtur mikilla vinsælda er-
lendis um þessar mundir. Siðasti hluti getraun-
arinnar birtist i jólablaðinu, sem kemur út 6.
desember. Skilafrestur er til 18. desember.
Vinningar verða afhentir fyrir jól og sendir i
pósti þeim, sem búa utan Reykjavikur.
ATHUGIÐ:
Getraunin er i fimm blöðum. Þegar öll blöðin
fimm eru komin — ekki fyrr — sendið þið
lausnirnar til VIKUNNAR. PÓSTHÓLF 533,
REYKJAVIK, og merkið umslagið með ,,Jóla-
getraun S”, ef sendandi er stúlka, en „Jólaget-
raun D”, ef sendandi er drengur. Athugið, að
lausnirnar verða þvi aðeins teknar til greina,
að þær séu skrifaðar á getraunaseðilinn i blað-
inu sjálfu. — Haldið öllum seðlunum saman,
þar til keppninni lýkur.
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
@ Innflutningsdeild
SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080
TIGRIS
Viýlit
Midallay.
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizi
45.TBL. VIKAN 29