Vikan - 27.12.1973, Qupperneq 5
drátt, sem stytta má um 3/500, en
nú er þessi „stórfelldi” misskiln-
ingur jú leiöréttur og þú oröinn
sem nýr maður!! Þú hefur sjálf-
sagt fengið geysilegan áhuga á
umræddu ljóöi og langar vist aö
heyra meira, vær sa god:
,,tJr nefinu lak tóbak, i vörina
þaðlak,
úr vörinni hélt áfram sinni
leið
alveg
niörá maga og þaðan niðrá
gólf,
á gólfinu það visnaði og dó”.
Ekki má gleyma gömlu tugg-
unni: Hvernig passa tvær bog-
mannsvinkonur saman? Við
hvaða merki passar bogmanns-
stelpa vel, en hver alls ekki (þ.e.
við strák)? Hvernig er skriftin, og
hvað lestu úr henni? Hvað um
aldurinn? (Ekki gá i ibúa-
skrána!)
Ég kaupi að visu aldrei Vikuna,
en les hana oftast. Smásögurnar
finnst mér heldur einfaldar, en
litsiöurnar frábærar. Takk fyrir.
Ég spyr nú ekki um stafsetn-
inguna, þvi ég skal veðja, að það
finnst engin villa i öllu bréfinu!!
Hvar er hægt að fá námskynn-
ingu, fyrst skólarnir veita hana
ekki, nema sumir af skornum
skammti?
Þakka þeim, sem hlýddu,
Úa
Það fer nú að verða stórmál
með blessaðan gamla manninn,
úr hverju hann þráði brennivlnið
sitt. Til þess að fá endanlega botn
I þetta gerði ég hatrammar til-
raunir til að hafa upp á höfundin-
um sjálfum, Gylfa Ægissyni, sem
er náttúrlega eini rétti maðurinn
til að koma þessu á hreint. En
hann stundar sjóinn svo stift, að
ég gafst upp á að fara þá leið. Þá
hringdi ég til Orðabókar Háskól-
ans og spurði, hvort orðið stækur
væri þekkt á þeim slóðum, en þvi
miður, úa min, þar hafði ekki
frétzt af þessu orði I þeirri merk-
ingu, sem þú tilgreinir. Svo að ég
veð ennþá i villu og svima og vona
bara, að Gylfi vilji leiða okkur á
rétta braut, ef hann skyldi frétta
af vandræðum okkar.
Stjörnuspá ástarinnar, sem ég
hef hér til hliðsjónar, gerir ráö
fyrir góðri sambúð bogmanns-
konu við fiest hin stjörnumerkin,
helzt aö jómfrúin sé viðsjárverö.
Ætli spáin gildi ekki fyrir vinkon-
ur lika. Skriftin er svo sem ekki til
að státa af, en bendir til góðs
lundernis og kimnigáfu. Og mikið
rétt, ég fann enga stafsetningar-
villu I bréfi þinu. Ertu orðin 16
ára? Það er til bók eftir ólaf
Gunnarsson, sem leiðbeinir um
starfsval, ég held m.a.s. að hún
hafi verið að koma út endurbætt
nýlega, og hana hlýturðu að fá I
hvaöa bókabúð sem er.
Flugfreyja
og Bravo
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á þvi að þakka þér
allt gamalt og gott. Flest allar
framhaldssögurnar hafa verið
ágætar, þó sérstaklega „Hver er
Laurel?” og „Skuggagil” og
margar fleiri. Og ekki má gleyma
Póstinum, hann er meðal þess
efnis, sem ég les fyrst, þegar ég
loksins fæ blaðið. Ég og bræður
mlnir erum áskrifendur að blað-
inu, og svo þegar það kemur inn á
heimilið, rifast allir um að fá það
fyrst.
Það er bezt að fara að koma sér
að efninu, og það er þetta. Ég og
mamma veðjuöum um það, hvort
þyrfti stúdentspróf til þess að
verða flugfreyja. Ég sagði, að
þess þyrfti ekki. Hvort er rétt?
Hvert á ég að leita til þess að
gerast áskrifandi að Bravo? Og
svo er það eitt enn, hárið á mér er
svo fljótt að fitna, ég er búin að
reyna alla vega sjampó, dugir
ekki mikið. Veiztu eitthvert ráð
við þessu? Hvað lestu úr« skrift-
inni, og hvað heldurðu, að ég sé
gömul? Hvað þýðir p.s.? Bæ, bæ,
Skotta á Akureyri
„Umsækjendur hafi góða al-
menna menntun, gott vald á
ensku og öðru erlendu tungumáli,
helzt þýzku, frönsku eöa Norður-
landamáli”. Þannig hljóöuðu
menntunarkröfurnar, þegar sið-
ast var auglýst eftir flugfreyjum,
sem sagt stúdentspróf er ekki
skilyrði, þó eflaust sé það þungt á
metunum. Bókaverzlanir hafa
milligöngu um áksirftir að er-
lendum blööum. Sérmenntaður
hárgreiðslumeistari er rétti aðil-
inn til að gefa þér ráö, sem duga
gegn feitu hári. En heyrt hef ég,
að vitaminauöugt mataræði sé
mjög mikilvægt atriði. Fakktu
ekkí með höfuðfat, nema brýna
nauðsyn beri til, þvoðu þér um
leið og háriö fer að fitna. Skriftin
bendir til öriætis, og liklega ertu
14 ára. P.s. stendur fyrir post
scriptum, sem er latina og þýðir
eftirskrift.
isa’i**.-
MIÐA
PREAIUA
LáTið pren+a alls konar aðgongumiða,
kontrolnúnrrer, afgreiðslumiða og
fleira á rúllupappír. Eina prentsmiðj-
an á landinu, sem prentar slíka miða.
Höfum einnig fyrirliggjandi og útveg-
um með stuttum fyrirvara ýmiss konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
Hilmir hf.
SIÐUMULA 12 - SIMI 35320
52. TBL. VIKAN 5