Vikan - 27.12.1973, Blaðsíða 29
Jagúar.
Veiöimaður, sem viröir engar
friðunarreglur.
Hann er forkunnarfagur og
háttvfs.Æn jafnframt rándýr, sem
einskis svifst. Hann hefur fengið
alls konar hæfileika I vöggugjöf,
sem aöri myndu láta meðbræður
sina njóta góðs af. En ekki jagú-
arinn. Hann leitar einskis nema
sinnar eigin gæfu, velgengni sinn-
ar og ánægju. Hann er samvizku-
laus veiðimaður, sem virðir eng-
ar friðunarreglur. Fólk, sem fætt
er I þessu merki, er meinilla við
allar skyldur, hvort sem þær
varða starf þess eða ástina. Það
ann frelsinu og vill leika sér að
ástinni. Þeir vekja hvarvetna
hrifningu og eru elskaðir heitt, en
þeir bera sjaldnast I brjósti eöli-
legar tilfinningar. Þeir eru list-
hneigðir, vilja helzt starfa á lista-
sviðinu og gera það — en meö
misjöfnum árangri. Stundvisi og
nákvæmni eru ekki þeirra sterkU
hliöar. Og þó standa þeir oftast
með pálmann I hendinni i lifinu.
Timatal
Astekanna var
svo nákvæmt,
að það var
ekki fyrr en
á þessari öld
að sömu
nákvæmni var
náð.
■
Óttist ekki. Þvert á móti.
Dauöinn er á engan hátt ógæfu-
merki. Þvert á móti. Sá, sem
fæddur er i þessu merki, er sann-
kallaðhamingjunnar bar, og mun
lifa I vellystingum. Hvarvetna aö
berast honum gjafir. Hann er vel
settur efnalega og honum veitist
viröing og heiöur. Enginn vill
honum illt, til þess stendur fólki of
mikill beygur af honum. Að visu
er dauðinn ekki mjög gestrisinn,
en hann launar rikulega sé hann
boðinn I samkvæmi. Það er
hættulegt, að eiga dauðann að ó-
vini. Tryggð er ekki sterkasta hlið
dauðans. Vilji hann ekki neina
vini, er eingöngu um að kenna
ráðriki hans og duttlungum.
Lendi dauði I erfiöleikum, tekst
honum alltaf að stilla svo til, að
jafnvel erfiðleikarnir hjálpi hon-
um til að njóta lifsins betur en áö-
ur. Dauðinn verður að gæta vel að
heilsu sinni.
Api
Enginn getur verið honum
reiður.
Apinn tekur lifið ekki of alvar-
lega, er léttlyndur og kátur. Hann
kærir sig kollóttan um eignir,
peninga og öryggi, ef hann þarf
að leggja eitthvað á sig til þess að
öðlast það — enda er honum ekki
eins illa við neitt og hversdags-
lega vinnu. Hann dreymir um aö
veröa dansari, söngvari eða eitt-
hvað álika. t fristundum leikur
hann sér eða lætur sig dreyma.
Hann gerir mikið aö gamni sinu
— einnig i ástamálum. Samt er
erfitt að vera honum reiður. Til
þess er hann of hrifandi. Hann
trúir sjálfur á loftkastalana, sem
hann er snillingur að byggja.
Það er honum eiginlegt, að geta
ekki staðiö við loforö sin. Reyni
einhver aö breyta honum snýr
hann bakinu við þeim hinum
sama. Menn jafnt og konur i
þessu merki hafa mikið dálæti á
börnum. Helzt vilja þau ,hafa
barnaskara i kringum sig.
Þeir eru áhyggjulausir
og vilja gjarnan taka á.
móti gestum. Þeim lætur
þaö svo vel, að jafnvel þó þeir
haldi stórveizlur, býður engum
gestanna 1 grun, að þeir hafi haft
nokkurn skapaðan hlut fyrir
undirbúningnum. Hafi api á-
hyggjur af einhverju, er það
einna helzt heilsa hans sjálfs, en
af henni þarf hann alls engar á-
hyggjur að hafa.
Hún þarf raunsæjan lifsföru-
naut.
Þær eru óeigingjarnar, ósér-
hllfar og sifórnandi sér, fæddar
bændur og uppalendur. Þær
hugsa alltaf fyrst um aðra og
gleymf þess vegna oft þvi, sem
þeim sjálfum er fyrir beztu. Það
gera þær þrátt fyrir aö þær skipu-
leggi fram I timann á hinn
greindarlegasta og viðsýnasta
hátt. Kanlnan elskar börn og vill
vera þeim góö fyrirmynd. Þaö er
eins og þaö fylgi kaninunni, að
aðrir sæki ráðleggingar hennar. t
ástamálum hefur hún ógjarnan
frumkvæðið, heldur biður kanin-
an, hvort sem hún er karl eða
kona eftir þvi, að hinn aðilinn leiti
á. Kaninan spilar aðra fiðlu, þvi
að hún gerir sér grein fyrir að
hæfileikar hennar liggja i þvi að
fylgjast með, en ekki að gefa tón-
inn. I starfi sinu lætur kantnunni
einnig bezt að láta lltt á sér bera.
Henni fellur ekki að standa i
sviðsljósinu og viö liggur, að það
snerti hana beinlinis illa, sé henni
sýndur einhver sérstakur
viröingarvottur. Lendi kanina I
erfiðleikum leitar hún á vit
fagurra lista, sem henni eru
meira virði en peningar og vel-
megun, enda gefur hún slikt jafn
skjótt og hún kemst yfir það.
Kaninan þarf að eignast raunsæj-
an maka, sem sýnir henni mikinn
skilning.
Hjónaband þess er fullt óvæntra
atburða.
Gyöjan Chalchiuhtlicue (vatn)
er fjölbreytilegur persónuleiki.
Hún sýnir alltaf á sér nýtt andlit
og erfitt er að geta sér til um
hvernig hún muni bregöast við I
það og það skiptið. Fólk, sem fætt
er I þessu merki, héfur þessa
sömu eiginleika. Það er ekki gott
eða slæmt, hvorki rikt né fátækt,
hvorki friðsamt eða deilugjarnt.
Allt þetta er þó til I þvi, en er stöð-
ugum breytingum undirorpið.
Allir þessar eiginleikar berjast
stöðugt um undirtökin I vatninu.
Þessi stöðugu veörabrigði gera
vatnið nokkuð erfitt I sambúö. En
I rauninni er auðvelt að umbera
sundurlyndi þess, ef þess er gætt,
að taka ekki duttlunga þess of al-
varlega. Vatnsmennin eru oft
mjög viðkvæm og þarfnast mik-
illar bliðu og þau eru mjög til-
finningaheit. En hamingjan fellur
þeim ekki erfiöislaust I skaut, það
þurfa að berjast fyrir henni. Oft-
ast er mikils krafizt af vatns-
mennum, einkum i æsku, og þeim
gengur yfirleitt vel að verða viö
þeim kröfum. Vatnsmennin upp-
skera laun erfiðis sins rikulega.