Vikan - 26.09.1974, Síða 37
tilgangi og þér eruð hingað kom-
inn nú.
Latimer flýtti sér að segja og
var nú orðinn herskár: — Þér er-
uð að vaða reyk. Ég hitti konuna
yðar i Chicagó, en við gerðum
ekki annað en tala örfá orð sam-
an. Rétt heilsuðumst og kvödd-
umst. Alls ekkert þar út yfir.
Röddin i lækninum mýktist
heldur. Hann stóð upp og studdi
annarri hendi á borðið. — Getið
þér svarið það?
— Við leiðið hennar móður
minnar.
— Þá er þetta ekki sam allra
verst. Með nokkru stolti hélt hann
áfram: —Það bendir ýmislegt til
þess, að konan min sé ófrisk. Þeg-
ar ég varð þess var, efaðist ég
um, að það væri af minum völd-
um. En samkvæmt þvi, sem þér
segið, þá veit ég, að ég á barnið.
Rósa gekk nú að borðinu, altek-
in reiði og örvæntingu. — Ég er
ekki ólétt og það veiztu vel. Þú
lýgur þessu til þess að ná i mig
aftur.
Lew hló. — Það fær nú timinn
að sanna.
— Hann sannar ekki nokkurn
skapaðan hlut. Hvernig ætti ég að
geta veriö ólétt? Þú hefur ekki
verið eiginmaður siðan... ekki i
hálanga tið!
Kuldalegt bros afmyndaði varir
mannsins hennar. — Ég er viss
um, að Latimer mundi ekki kæra
sig neitt um erfingja, sem einhver
annar ætti.
Rósa sneri sér að Latimer. —
Hann er alveg brjálaður. Hann
fær þessi afbrýðissemisköst.
Hann gæti sagt, hvaða vitleysu
sem væri til að halda mér niðri.
Latimer sneri sér snöggt að
Rósu: — Þetta er sú djöfullegasta
klipa, sem ég hef nokkurn tima
komizt i. Þú sagðir mér, að hon-
um væri alveg sama, hvað þú
gerðir af þér.
— Ef hann heldur, að annar
karlmaður sé kominn i spilið, þá
verður hann svona.
— Ætlarðu að skilja við hann?
Hún öskraði og beindi nú öllu
hatri sinu að Lew. — Lew, ég
mundi ekki fara aftur heim til
þin, hvað sem i boði væri. Guð
minn góður, það einasta, sem við
*
L*
m
Vogar-
merkið
Bogmanns-
merkið
Geitar-
merkiö
Fiska-
merkið
24. sept. —
22. okt.
Þú hefur spennt bog-
ann of hátt að undan-
förnu og kemst að þvi,
að þú getur ekki fram-
kvæmt allt það, sem
þú ætlaðir þér. Láttu
ekki hugfallast, þvi að
dagur kemur eftir
þennan dag.
Dreka-
merkið
24. okt. —
22. nóv.
Nú fer allt að ganga
betur hjá þér — erfið-
leikarnir eru yfir-
stignir. Hvildu þig vel
eftir átökin, og reyndu
að gefa meiri gaum að
þinum nánustu en þú
hefur gert undanfarið.
Taktu f jölskylduna
með þér i stutta
skemmtiferð um helg-
ina.
22. nóv. —
21. des.
Þér býðst mjög góð
aðstoð, og þú skalt
ekki hika við að þiggja
hana, þvi að mikið er
undir þvi komið, að þú
hraöir framkvæmdum
eins og kostur er.
Hugsaðu þig vel um,
áður en þú kaupir þér
nýja flik.
22. des. —
20. jan.
Það fer i taugarnar á
þér, hvað náskyldur
ættingi þinn er ar-
mæöufullur út af smá-
munum, að þvi er þér
finnst. Reyndu að
stilla skap.þitt, þvi að
hann hefur vafalaust
sinar ástæður.
21. jan. —
19. fehr.
Þetta verður góð vika
og full af tækifærum.
Reyndu að nýta öll
tækifærin, sem þér
bjóðast i vikunni, og
þau verða mörg. Láttu
sem vind um eyru
þjóta, þó að einhver
þér nákominn reyni að
telja úr þér kjarkinn.
20. febr. —
20. marz
Þú ferð i ferðalag,
sem þú verður á ein-
hvern hátt ekki
ánægður með og vilt
kenna ferðafélögum
þinum um. Hugsaðu
þig nú vel um, hvort
þú átt ekki sökina
sjálfur, og reyndu að
sjá að þér næst.
39. TBL. VIKAN 37