Vikan - 31.10.1974, Side 3
bók reis snilli Fitzgeraids hæst. Tvö smá-
sagnasöfn í viöbót, ein skáldsaga og rit-
geröasafn komu þvf næst frá hans hendi, en
hann iézt áriö 1940, aöeins 44 ára aö aldri.
Likiega hefur engrar kvikmyndar veriö
beöiö meö jafn mikilli eftirvæntingu eins og
„The Great Gatsby” allt frá þvi aö skáld-
sagan fræga ,,A hverfanda hveli” var kvik-
mynduö. Undirbúningurinn stóö I tvö' ár, og
var ekkert til sparað, svo aö allt mætti fara
fram i anda þriöja áratugsins, jasstimabils-
ins.
Fjöldi manns annaðist framleiöslu klæön-
aöár, snyrtivara, skartgripa, húsgagna og
alls konar muna frá þessu timabiii, og sögur
ganga um gifurlegar fjárhæöir, sem eytt var
i þennan undirbúning. Sagan segir t.d., aö
skartgripir til notkunar i myndinni hafi veriö
framleiddirlfyrir 900 þúsund doliara, og sam-
kvæmin i myndinni hafi kostaö 50 þúsund
dollara. En árangurinn er lika sagöur stór-
kostlegur.
Nöfn aöalieikaranna i myndinni nægöu ein
tii þess aö draga aö áhorfendur. Robert Red-
ford leikur sjálfan Gatsby, sem reynir'að
kaupa aftur æskuást sina. Mia Farrow leikur
Daisy, stúikuna, sem entist ekki tii þess aö
blöa eftir Gatsby og giftist öörum til þess aö
öölast öryggi. Gatsby kaupir sér glæsilegt
stórhýsi skammt frá og heldur stórkostlegar
gleöiveizlur kvöld eftir kvöld I þeirri von, aö
Daisy birtist.
Sam Waterston, Bruce Dern, Lois Chiles,
Karen Black og Scott Wilson eru meöal
þeirra, sem fara meö stærstu hlutverkin, en
leikstjóri er Jack Clayton. Framleiöandi
myndarinnar er David Merrick.
Eftir mikla leit og nákvæma umhugsun
voru útiatriöi öll tekin I Newport, þ.e.a.s.
veizlurnar dýrðlegu og ailt, sem gerist I nánd
viö hús Gatsbys. Newport er eftiróttur
sumardvalarstaöur, og þar eyöa fjöimargir
rikir og frægir Bandarlkjamenn sumarleyfi
sinu. Þeir létu þaö ekki á sig fá, þótt Newport
væri undirlagt af kvikmyndafólki I nokkrar
vikur, heldur tóku þeir hreinlega þátt I kvik-
myndinni sem stati'star. i veizlum Gatsbys
iná sjá margt virðulegra manna, sem lét sig
hafa þaö aö sleppa fram af sér beislinu I
nokkra daga og dansa villtan charleston og
foxtrot á grasflötunum viö hús Gatsbys og
drekka gin I strlöum straumum (sem I raun-
inni var tesull).
Og David Merrick, framleiöandi myndar-
innar, sér varla eftir þvi aö hafa iagt dálitiö I
hana, þvi hún malar fyrir hann gull án afláts,
og ekki bara fyrir hann, þvl aö Gatsbyæöiö
hefur víöa gripiö um sig, svo aö nú græöa
ekki siöur framleiöendur fatnaöar, ÍByrti-
vara, skartgripa, húsgagna, já jafnvel þeir,
sem eiga gamla blla.
Þaö eru. áreiöanlega margir, sem hugsa
gott til glóöarinnar aö fá aö sjá þessa frægu
kvikmynd I Háskólablói, þegar þar aö kem-
ur. Og ekki spillir aö hafa lesiö þessa spenn-
andi og vel skrifuöu sögu Fitzgeralds. Hún
hefst I næsta blaði.
Að ofan:
Guli glæsibillinn hans Gatsbys
tengst til vinstri:
obert Redford leikur Gatsby
hinn mikla, og Daisy Buchanan,
æskuást Gatsbys, er leikin af Miu
Farrow
Amyndinni efst til hægri sjáum viö
Miu Farrow I siðdcgiskjól, eins og
þeir geröust á þriöja áratugnum,
þunnum léttum chiffonkjól I mild-
um lit. A myndinni hér til vinstri
sýnir Mia okkur svo, hvernig
dömur þess tima klæddust til há-
tiöabrigða.
Til hægri:
Fyrir nokkrum árum þóttu engar
veizlur vel heppnaöar hjá flna
fólkinu I Bandarikjunum, nema
svo og svo mörgum væri fleygt i
sundlaugina, sem er ómissandi
viö hvert hús. Það var þó ekki
eins frumlegt uppátæki og marg-
ur hélt, þaö fáum viö aö sjá i
myndinni um Gatsby, sem lýsir
tiðarandanum á þriöja áratugn-
um.