Vikan - 31.10.1974, Page 4
Fyrir rúmlega hálfri öld skrif-
aði Einar H. Kvaran leikritið
Lénharður fógeti og vakti þar
með til lifsíns hálfgléymda at-
burði, sem gerðust fjórum öld-
um fýrr, eða i kringum 1520.
Á þeim tima rikti Danakon-
ungur yfir Islandi, og fógetar
hans voru ekki alltaf vandir að
virðingu sinni. Lénharður, sem
var fulltrúi konungsvaldsins á
Islandi i upphafi 16. aldar, var
einn af þeim allra verstu. Hann
hafði um sig flokk ódæðismanna,
sem fór um héruð rænandi og
ruplandi, nauðgandi og myrð-
andi, og fátækum og smáum Is-
lendingum varð fátt til vamar.-
Þar kom þó, að þeim þótti mæi-
irinn fullur og gerðu aðför að
Lénharði og mönnum hans.
Ævar R. Kvaran, leikari, hef-
ur verið iðinn við að koma verk-
um afa sins á framfæri við út-
varpshlustendur, og nú á sjón-
varpið næstá leik. Það hefur
varla farið fram hjá mörgum, að
Lénharður fógeti var festur á
filmu í sumar. Sú framkvæmd
olli miklu fjaðrafoki og gagn-
rýni, þegar á daginn kom, að
kostnaðurinn við myndatökuna
fór ævintýralega langt fram úr
upphaflegri áætlun.
Rúrik Haraldsson i hlutverki
Ingólfs bónda á Selfossi.
Aðstandendur myndarinnar
telja þó hinar margumtöluðu
rúmlega 17 milljónir engan veg-
inn óeðlilega upphæð og m.a.s.
liklegt, ac þær skili sér aftur og
vel það, ef tekst að selja mynd-
ina öðrum sjónvarpsstöðvum,
t.d. á Norðurlöndunum. Upphaf-
lega áætlunin var miðuð við
venjulega stúdióvinnu við sjón-
varp íkrit og filmu i
svart/hvitu. Siðan var ákveðið
að filma allt i lit, sem jók vitan-
lega kostnaðinn, en hlýtur að
gera myndina seljanlegri á er-
'^ndum markaði.
Eysteinn Brandsson rekinn i
gegn. Sigurður Karlsson fer-með
hlutverk Eysteins úr Mörk.
4 VIKAN 44. TBL.