Vikan


Vikan - 31.10.1974, Qupperneq 10

Vikan - 31.10.1974, Qupperneq 10
Ertu að byggja? Viltu breyta? Þarftu aö bæta? GRENSÁSVEG118,22,24 SÍMAR: 32266-30280-30480 tDÓsturmn A B og C í andaglasi Kæri Póstur! Við vonum að bréfið lendi ekki i þinni háttvirtu ruslakörfu. Svo er mál með vexti, aö við erum hér þrjár piur, sem við skulum kalla A,B, og C. Jæja, við vorum i „andaglasi” um daginn. Það kom andi i glasiö hjá okkur, hún (það var kona) sagöist heita Munda og hafa átt dóttur, sem hét Kristin. Við spurðum hana, hvort hún væri skyld einhverri okkar, hún sagðist vera skyld A og C, og þeg- ar við gáðum 1 ættliöabók, þá passaði þetta alveg. Viö spuröum hana margra spurninga, sem hún svaraði alveg rétt. B var alltaf að hlæja aö A og C og sagði, aö við ættum ekki aö vera hræddar. Við fórum aftur i þetta um kvöldið, og þá kom sami andinn aftur fram. Við spuröum hana, hvort þaö væri lif á eftir þessu, hún sagði já og að það væri lika lif á undan þessu lifi. Við spurðum þá, hvað B heföi lifaö mörg lif. 576 svaraöi hún þá. Við snarhættum I andaglasi og er- um alveg dauðhræddar. Getur eitthvaö verið til i þessu? Bæ, bæ. A,B og C Pósturinn er þeirrar skoðunar að andaglas sé fáránlegt kukl, sem auðtrúa fólk ætti gjörsam- lega að iáta vera. Þess eru mörg dæmi, að fólk hafi tekið þessa vit- leysu svo hátiðlega, að það hafi hálftruflast. Þið hljótið að geta eytt timanum I eitthvað upp- byggilegra og skemmtilegra en þetta kukl. Geta konur orðið prestar? Sæll Póstur! Mig langar til að spyrja um soldið. 1. Eru öll svör, sem þú sendir, rétt? 2. Til hvers er verið að hafa þennan Póst? 3. Geta konur oröið prestar? 4. Hvað þarf maöur aö vera gamall til þess að vera prest- ur? 5. Hvernig er skriftin? Hvað lestu úr henni? Og hvað heldur þú, aö ég sé gömul? Ég vona, aö þetta fari ekki I rass og rófu. G.ó. 1. Pósturinn er aðeins mann- legur og ekki óskeikull fremur en aðrir, en hann gerir sitt bezta, og verði honum fótaskortur á tung- unni, eins og kellingin sagði, þá er honum ljúft og skylt að bæta um betur. 2. Meðal annars til þess að svala forvitni stelpna eins og hæstvirtrar G.Ó., sem treysta ekki öðrum betur en Póstinum i Vikunni til að finna út, hvað þær eru gamlar og þar fram eftir göt- unum. Pósturinn hóf göngu sina hér i Vikunni i 29. tbl., sem út kom 17. júli 1941, og hefur fyrir löngu sannað tilverurétt sinn. 3. Já, og þegar þetta svar birt- ist, verður vonandi sú fyrsta Islenzkra kvenna orðin þjónandi prestur. Heitir hún Auður Eir Vilhjálmsdóttir. 4. Ekki veit ég til þess, að prestum séu sett nein aldurstak- mörk. Hins vegar takmarkast aldur þeirra að sjálfsögðu af þvl námi, sem þeir hafa lagt að baki, þegar þeir geta orðið þjónandi prestar. Tíl að hefja nám i guð- fræði við Háskólann þarf vitan- lega stúdentspróf, og siðan tekur háskólanámið 5—6 ár, svo að þetta eru engir unglingar, þegar þeir koma til starfa. Skriftin mætti vera snyrtilegri, og hún bendir til skorts á einbeit- ingu. Ég gizka á að þú sért 13 ára. Soldið heitir svolltið á almenni- legu máli. Ekki byrjaöar á túr Kæri Póstur! Viö erum hérna tvær, sem ætl- um að biöja þig að svara einni spurningu fyrir okkur. Þannig er mál með vexti, að ég er þréttán ára, og vinkona min er tólf. Vin- kona min er þroskaðri en ég. Hún er ekki byrjuð á túr. Getur þetta verið eðlilegt? Elsku Póstur, viö vonum, aö þetta bréf lendi ekki i ruslakörfunni frægu. Með fyrir- fram þökk. Tværaönorðan. Það er'ákaflega misjafnt, hve- nær stúlkur byrja að hafa tlðir. Sumar byrja 10—11 ára, aðrar ekki fyrr en 15 — 16 ára, og þótt hvort tveggja sé fremur óvenjú- legt, er ekki hægt að kalla það óeðlilegt, hvað þá ef um 12 og 13 ára stuikur er að ræða. Svo að þið tskuluð vera alveg rólegar og áhyggjulausar. Ættartala Schram Kæri Póstur! Þú sem allt veizt, geturöu sagt mér, hvar ég fæ upplýsingar um ættartölu Schramættarinnar. Get ég fengið þær i einhverri bók um ættir að norðan? Og svo, hvernig er skriftin og stafsetningin? Hvaða stjörnu- merki fer bezt við drekastelpu? Minu bréfi likar ekki ruslafötu- félagsskapur. Með fyrirfram þökk fyrir birtingu og svar. Ættfræðingur (6450-8881) Um aldamótin 17—1800 kom til Skagastrandar faktor fyrir danska kaupmenn, sennilega frá Slésvlk-Holstein. Til þessa manns rekja Schramar ættir slnar, og eru niðjar hans dreifðir vltt.um land, m.a. eru margir þeirra i 10 VIKAN 44. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.