Vikan - 31.10.1974, Page 11
Skagafjarðar- og Húnavatnssýsl-
um. Þessar upplýsingar fékk ég
hjá Ellert Schram, sem sagði mér
jafnframt, að um þessa ætt væri
ekkert að finna I bókum, og stæði
ekki til að gefa neitt út um hana i
bók. En þeir feðgar hafa ögn
grúskað I ættartölum sinum, svo
aö til þeirra er hægt að leita, ef
þér liggur á.
Skriftin er óregluieg og ekki
nógu snyrtiieg, og ein stafsetn-
ingarvilla er meira en nóg I svona
stuttu bréfi. Drekastelpa gæti t.d.
hallað sé að krabbastrák, en fleiri
koma náttúrlega til greina.
Tilhvers er stöngin?
Háæruveröugi Póstur!
Ég vona innilega, aö þið þarna
virðiö þennan snepil minn viðlits
og birtiö hann. En það sem mig
langar að vita endilega hreint,
það er þetta:
Hvers vegna i ósköpunum er
alltaf svona stöng á strákahjól-
um? Ég hef spurt marga, en eng-
inn hefur getað leyst úr þessari
brennandi spurningu minni.
Jæja, þá er bezt að hætta þessu
klóri. Hvað lestu úr skriftinni, og
hvaö helduröu, aö ég sé gömul?
Hvað þýðir nafnið Elisabet?
Viröingarfyllst, Bauna.
Við efndum tii sérstaks rit-
stjórnafundar (important board
meeting eins og hjá Hammondun-
um) til þess að leysa úr brennandi
spurningu þinni. Það er kannski
ekki von til þess, að allir kannist
við ástæðuna, þvi það er ekki
stöngin á strákahjólinu, sem á sér
sérstaka ástæðu, heldur stangar-
leysið á kvenhjólunum. Stöngin er
sem sé til styrktar I byggingu
hjólsins, en með tilliti til sér-
vizkulegs klæðnaðar kvenfólks
hér áður fyrr, þá var þessari
styrktarstöng öðru visi fyrir kom-
ið i þeim augljósa tilgangi, aö
konur þyrftu ekki að hjóla með
pilsin uppi á miöjum lærum og vel
það. Nú skiptir þetta engu máli,
þvi enginn óvitlaus kvenmaður
hjólar lengur f pilsi. Og stráka-
hjólin eru ekki endilega með
þessa stöng heldur, a.m.k. ekki
gfrahjólin svoköllubu með háa
bakinu.
Ég gizka á, að þú sért 14 ára, og
skriftin bendir til þess, að þú sért
dálitið ákvebin stúlka. Elisabet er
tökuheiti og upphaflega hebreskt.
Þab þýðir: helguð guði.
Flugfreyja og
leiösögumaöur
Kæri Póstur!
Mig langar til að spyrja
nokkurra spurninga. Ég vona, að
þú svarir fljótt og vel, þvi að mér
liggur á að fá svar.
1. Hvað þarf maður að vera
gamall til þess að komast i
flugfreyjunám?
2. Hver eru inntökuskilyrðin, og
hvernig er starfinu háttað?
3. Hvert á maöur að snúa sér, ef
maður hefur áhuga á aö kom-
ast i flugfreyjunám?
4. Hvaða tungumál þarf maöur
aðallega að kunna?
5. Verða allar flugfreyjur aö vera
fallegar?
6. Hvaöa tungumál þarf maður
aö kunna til þess að komast
sem leiðsögumaður I ferðum
erlendis?
7. Hvert get ég snúið mér, ef ég
hef áhuga á starfi sem leið-
sögumaður?
Með fyrirfram þökk fyrir svör-
in, og ég vona, að þú getir og viljir
svara þessu sem bezt. Hvernig er
skriftin, og hvað er ég gömul?
Kærar þakkir.
Helga Margrét.
Flugfreyjan er ennþá ofarlega
á blaði hjá mörgum stúlkum, ef
marka má allar þær fyrirspurnir,
sem Póstinum berast um þetta
nám. Flugfélögin ráða nýjar flug-
freyjur einu sinni til tvisvar á ári
hverju, og þá auglýsa þau eftir
umsóknum i dagblöðum. Helztu
skilýrði fyrir umsókn eru, aö um-
sækjandi sé á aldrinum 20 — 26
ára, hafi góða almenna menntun,
gott vald á ensku og öðru erlendu
tungumáli, lielzt þýzku, frönsku
eða Norðurlandamáli. (Jtlitskröf-
ur eru ekki aðrar en þær að
likamsþyngd skuli svara til hæö-
ar. Fugfreyjur eru siöan búnar
undir starfið á kvöldnámskeiði,
sem stendur I u.þ.b. 5 vikur.
Starfið er fólgið I umönnun far-
þeganna, sjá um að þeim sé hlýtt,
að þeir fái blöð að iesa, bera
þeim mat og drykk eftir þörfum
o.s.frv. Ennfremur þarf flug-
freyja að vera vel aö sér i að-
hlynningu sjúkra, og hún þarf
jafnvei að vera við þvi búin að
geta tekið á móti barni. Ég vona,
að þetta nægi þér og öðrum I bili,
en um frekari upplýsingar skaltu
snúa þér beint til starfsmanna-
stjóra flugfélaganna.
Ferðaskrifstofa rikisins hefur
staöiö fyrir árlegum námskeiðum
að undanförnu fyrir leiðsögu-
menn um islenzkar slóðir. Hins
vegar sjá feröaskrifstofurnar um
sina cigin leiðsögumenn erlendis,
og til þeirra skaltu snúa þér til
þess að fá upplýsingar. Enskan
dugir eflaust viða, en ekki alls
staðar, og alitaf hiýtur að vera
betra að kunna skil á máli við-
komandi þjóðar.
Skriftin er mjög sæmileg, og
með tilliti til áhugamála þinna
ætla ég að vona, að þú sért að
nálgast tvitugt.
44. TBL. VIKAN 11