Vikan - 31.10.1974, Page 25
Sagt litillega frá Eddukórn-
um og væntanlegri hljóm-
plötu, þar sem hann flytur
islenzk þjóðlög.
SunnudagssIOdegin, þegar
skroppiö er i heimsókn til kunn-
ingjanna, eru til margs nytsam-
leg. Sumir spila vist eöa rommi,
jafnvel brids, en aörir spjalia um
pólitikina og efnahagsvandann
mikla, horfur á verkföllum og
bensfnveröiö. Þeir eru meira aö
segja til, sem ætla sér aö bjarga
heiminum á morgun, ef færi
gefst. En fyrir nokkrum árum
fæddist sú hugmynd I svolitlum
kunningjahópi, sem gefinn er
fyrir tónlist, aö I staö venjulegs
velferöarbarlóms væri dálltill
söngur veltil þess fallinn aö lifga
upp á sunnudagskaffiö. Og úr
þessari hugmynd fæddist söng-
flokkur, sem hlaut nafniö Eddu-
kórinn. Eddukórinn er tvöfaldur
kvartett — fjórir karlar og fjórar
konur, þar af eru þrenn hjón.
Kannski hjónaböndin hafi hjáipaö
til viö aö halda kórnum saman,
þvi aö svo miklu auöveidara er aö
eiga áhugamál meö maka sinum
en vera einn á báti — ekki sizt,
þegar áhuginn beinist aö söngæf-
ingum um hverja heigi, eöa svo
gott sem.
Sé skyggnzt nánar á Eddukór-
inn og byrjaö ofan frá, verður
sópraninn fyrst fyrir, en i honum
eru Sigrún Jóhannesdóttir, sem
hefur aö aöalstarfi að kenna
sauma i Iönskólanum I Reykja-
vlk, og Sigriöur Siguröardóttir,
sem er kennari austur á Hvols-
velli — bæöi i barnaskólanum þar
og I Tóniistarskóia Rangárvalia-
sýslu. Altrödd syngja Guörún As-
björnsdóttir og Sigrún Andrés-
dóttir, sem báöar eru tónlistar-
kennarar. i tenórnum eru Gunnar
Guttormsson (maöur Sigrúnar
Jóhannesdóttur) og Arnmundur
Backman (kvæntur utan kórs).
Þeir eru fulltrúar I sitt hvoru
ráðuneytinu, Gunnar i iönaðar-
ráöuncytinu og Arnmundur I
sjávarútvegsráöuneytinu. Bass-
ann syngja svo þeir Friörik Guöni
Þórleifsson (maöur Sigiiöar Sig-
uröardóttur) og Siguröur Þóröar-
son (maður Sigrúnar Andrésdótt-
ur. Friörik er kennari I Gagn-
fræöaskólanum á llvolsvelli og
Tónlistarskóla Rangarvallasýslu
og Siguröur er verkfræðingur á
verkfræðistofu Siguröar Thor-
oddsens.
Allt starf I kórnum er mjög lýö-
ræöislegt — þar er enginn söng-
stjóri, sem segir fyrir um, hvaö
syngja skal og hvernig, heldur er
rætt um val verkefna og túlkun
þeirra á opinskáan hátt i kórnum,
og hver meölimur hefur atkvæöis-
og tillögurétt um hvort tveggja.
Æfingarnar fara fram til skiptist
heima hjá kórfélögum, og fyrstu
ár kórsins var lagt blátt bann viö
hvers konar bökunarsamkeppni,
og var þá ekki neytt annars en
kaffis og molasykurs á æfingun-
um, en eftir aö þau Sigrlður og
Friörik fóru til starfa austan
fjalls fyrir ári, var rýmkaö um
reglurnar, enda þótti til þessa
bera brýna nauösyn eftir vetrar-
ferö yfir fjailvegi. Kórinn æföi
semsé ýmist hér á höfuöborgar-
svæöinu eöa á Hvolsvelli I fyrra-
vetur, enda stóö mikið til, útgáfa
hljómplötu með Isíenzkum þjóö-
lögum á vegum Menningarsjóös.
Þessi plata, sem er aö koma á
markaðinn um þessar mundir, er
reyndar önnur hljómplatan meö
söng kórsins. Hin fyrri kom út
fyrir jólin 1971, og á henni söng
kórinn jólalög. Lögin á þjóðlaga-
plötunni eru átján talsins, bæöi
vel þekkt og minna þekkt lög, en
auk þessara átján laga syngur
hver kórmeölimur eina stemmu
eöa stöku milli laganna, þannig
aö I allt má segja, aö flutt séu 26
lög á plötunni. Lögin eru flutt án
undirleiks, og á allan hátt var
reynt að hafa flutning þeirra sem
upprunalegastan, án þess hann
yröi eintóna. Meöal útsetjara lag-
anna eru Jón Asgeirsson, Fjölnir
Stefánsson, Friðrik Guöni Þór-
leifsson og Sigursveinn D. Krist-
insson, en eftir hann syngur kór-
inn tilbrigði viö Látum af hárri
heiðarbrún, og hefur það lag ekki
veriö hljóöritaö áður, en þaö var
meðal laganna, sem Eddukórinn
flutti viö opnun þróunarsýningar-
innar i Laugardalshöll i sumar.
Platan var hljóörituö af Palle
Juul I Studio Quali-Sound, sem er
úti I sveit á Jótlandi, en þar hljóö-
ritar umræddur Paile I kringum
30% allrar tónlistar, sem gefin er
út á hljómplötum I Danmörku.
Eddukórinn hyggst ekki láta
staðar numið viö þessa plötuút-
gáfu, heldur starfa áfrain af full-
um krafti og beita sér einkum aö
þvi að syngja nýja islenzka tón-
list, sönglög eftir Islenzk nútima-
tónskáld og veröur án efa gaman
að fylgjast meö þvi starfi kórsins
og tónskáldanna.
Kórinn ber saman bækur slnar.
Frá vinstri: Siguröur, Friörik,
Arnmundur, Sigrún Andrésdóttir,
Guörún, Sigrún Jóhannesdóttir,
Sigriöur og Gunnar.
Altinn: Sigrún A. og Guörún.
Tenórinn: Gunnar og
Arnmundur. Bassinn: Friörik og
Siguröur. Sópraninn: Sigriöur og
Sigrún J.
Þessi skemmtilega eldhúsmynd,
sem tekin var upp I Arbæjarsafni,
prýöir plötuumslag Eddukórsins.
Viö eldavélina situr Sigriöur
Siguröardóttir, næstur henni er
Gunnar Guttormsson, þá
Arnmundur Backman og
Siguröur Þóröarson. Friörik
Guöni Þorleifsson og Sigrún
Andrésdóttir sitja á bekknum,
Guörún Asbjörnsdóttir heldur á
kertinu og Sigrún Jóhannesdóttir
gætir aö eldinum. Ernst Back-
man tók myndina, og Grafik og
hönnun. Auglýsingastofa
Skólavöröustlg 18 sá um gerö
plötuumslagsins.
44. TBL. VIKAN 25