Vikan - 31.10.1974, Page 27
URIAH HEEP
Hljómsveitin Uriah Heep sendi
frá sér nýja plötu I sumar sem
hlaut nafniö Wonderland. Sú
plata var jafnframt þeirra átt-
unda og bjuggust margir við þvi
að nú myndu þeir ná hápunkti
frægöar sinnar og hápunkti tón-
listarsköpunar sinnar en svo
reyndist ekki. Nokkur lög á þess-
ari plötu reyndust mjög góö en
önnur miklummun lakari. LÖgin
Dreams,. The Easy Road og
Wonderland er eitt af þvl besta
sem Uriah Heep hefur gert, en
svo eru lög sem eru afskaplega
keimlik þvl sem hljómsveitin hef-
ur áður látið frá sér fara. Þetta
sætti töluverðri gagnrýni er-
lendra blaðamanna en hljóm-
sveitarmeðlimir báru þvi við að I
fyrsta skipti um langt skeið höfðu
þeir haft úr of miklu að velja á
plötuna og að þeir gætu alveg viö-
urkennt það að þeim hefði orðið á
skissa I vali á plötuna. Pianó- og
orgelleikari hljómsveitarinnar
Ken Hensley hefur opinberlega
lýst þvi yfir að hljómsveitin stefni
að þvi að gera tlmamóta-plötu
likt og Bitlarnir gerðu þegar þeir
gáfu út St. Peppers plötuna 1967.
En gagnrýnendur halda þvi flest-
ir fram að sköpunargáfa Uriah
Heep sé stöðnuð og þeir muni ekki
ná lengra en þeir hafa þegar náð.
En Uriah Heep hefur notið tölu-
verðra vinsælda hérlendis og von-
andi gefst okkur tækifæri til þess
að fá Uriah Heep einhvern tlma I
heimsókn til okkar en slikt telst
vlst heyra undir A.A. fram-
kvæmdir og þvi ófyrirsjáanlegt.
En I tilefni af tilveru Uriah Heep
og þáttarins sjálfs birtir hinn síð-
arnefndi þessar litmyndir af
Uriah Heep. Vonandi er einhver
sem kann að meta þær.
HRAÐFERÐ...
Jethro Tull munu að öllum lik-
indum snúa aftur bráðlega. Eins
og flestir muna hætti hljómsveitin
öllum hljómleikum og hreinlega
hætti aðkoma fram opinberlega á
slðasta ári. Sú ákvörðun var tekin
I kjölfar slæmra dóma um þá nýj-
ustu plötu hljómsveitarinnar.
Þótti þeim I Jethro Tull dómarnir
óverðskuldaðir og ákváðu að
draga sig I hlé. En s.I. hálft ár
hefur hljómsveitin veriö að vinna
að kvikmynd um það sem þeir
kalla ,,War Child” eða Striðs-
barn. Hljómsveitin hefur og
hljóðritað tónlistina við kvik-
myndina og mun hún koma út á
stórri plötu innan skamms. í kjöl-
far þessa mun svo hljómsveitin
halda I hljómleikaferð til Japans
með viökomu I Astraliu og á Nýja
Sjálandi. Gert er ráð fyrir því aö I
nóvember muni svo hljómsveitin
halda nokkra hljómleika I Evrópu
og þann sfðasta á þessari ferð i
London síðast I nóvember.
Sladehefur siðustu mánuöi ver-
iö að vinna aö kvikmynd þeirri
fyrstu sem þeir taka þátt I. í
henni leika þeir félagar sem berj-
ást fyrir tilverurétti slnum i
poppheiminum. Kvikmyndin hef-
ur hlotiö nafnið „Flame’’ eða
Eldur og verður væntanlega
frumsýnd um áramótin.
Paul McCartney var I sumar
viö hljóðritanir I Nashville I
Tennessee I Bandarlkjunum. Meö
honum var Chris nokkur Stainton
ásamt rjóma „country” hljóm-
listarmanna þeirra bandartkja-
manna. Blða menn nú spenntir
eftir árangri af þessum hljóðrit-
unum.
MÚSIK
MEÐ
MEIRU
EDVARD
SVERRISSON
Hues Corporation
Hues Corporation slógu vel I
gegn hérlendis fyrir nokkru með
laginu „Rock the Boat”. Mynd
af hljómsveitinni hefur
hins vegar ekki legið á
lausu Þættinum þótti sjálf-
sagt að birta eina sem rak á
fjörur hans ir stuttu. Hljóm-
sveitina skipa talið frá
vinstri: Fleming Williams, H.
Ann Kelli og St. Clair Lee. Hues
Corporation var stofnuð fyrir
fimm árum siðan I Los Angeles en
það er ekki fyrr en með Rock the
Boat sem hljómsveitin vekur at-
hygli. Lagið var tekið af stórri
plötu hljómsveitarinnar sem þyk-
ir nokkuð góð.
Stephaine
de Sykes
Stephanie de Sykes var fædd
með bros á vör her.mir sagan.
Hvað um það, lagið hennar „Born
With a Smile on My Face” sló I
gegn jafnt hérlendis sem erlendis.
Það var fyrsta lagið hennar sem
var þekkt. Stephanie var fyrst I
sviösljósinu þegar henni var fyrir
fimm árum siðan boðið til Nash-
ville til þess að vinna að plötu
meö Leonard Cohen. En hún snérí
fljótlega heim aftur til Englands
og ástæðan var sú að hún hafði
fengiö meira en nóg af eiturlyfja-
ástandinu þar yfir frá. Stephanie
hefur nú um nokkurt skeið leikið I
sjónvarpsþætti á vegum BBC sem
kallast That’s life eöa Syona er líf
iö. Hún er einnig I hljómsveit sem
kallast Rain og vinnur nú aö
stórri plötu.
44. TBL. VIKAN 27