Vikan - 31.10.1974, Page 32
ERU ÞAÐ KRAFTAV
Alls staðar i heiminum eru til anda-
læknar. Áttræður Englendingur að nafní Á
Harry Edvvards hefur getið sér hvað f j M B Æ
mesta frægð þeirra. Hann stundar m * t 'JSÁM
lækningar sinar i stóru húsi — allt að þvi -M.
höll — skammt frá London. Þar tekur
hann á móti sjúklingum, sem þjást af öll-
um mögulegum sjúkdómum. Hvernig
læknar hann þá? Frá þvi er sagt i þessari
grein.
MENNSK
Harry Edwards heitir áttræður
Englendingur, sem stundar anda-
lækningar Fyrir lækningar sinar
hefur hann öðlazt heimsfrægð.
Á ensku er hann kallaður
heaier.og oröið skýrir hvað hann
hefst að: hann gerir fólk heilt af
sjúkdómum og þjáningum.
Slikar lækningar eru mjög
algengar I Englandi, eins og
viðast hvar annars staðar. Þær
eru framkvæmdar, ekki hundr-
uðum, heldur þúsundum saman.
Segja má, að þessar lækningar
byggist fyrst og fremst á trú.
Trú á lækningamátt læknisins
er oftast tengd sannfæringu um
tilveru guðs og eingetins sonar
hans.
Hinum trúaða þykir þvi ekkert
merkilegt eða yfirnáttúrlegt viö
lækningar sem þessar. Um þær er
getið I bibllunni. Jesús læknaði
sjúka með handayfirlagningu.
Þess vegna álita margir, að
sumir menn njóti þeirrar náðar
guös að vera gæddir hæfileikum
til aö gera kraftaverk.
Svindl
Svo einfalt er það þeim, sem
trúir.
En sá vantrúaöi hefur fullan
rétt til aö efast.
Þeim vantrúaða er handayfir-
lagning aðeins kukl og svindl.
Slikt er aöeins til þess falliö að
veja sjúkum falsvonir, en er á
engan hátt áhrifarlkt sem
lækningaaðferð.
En andstæðingar handayfir-
lagningarinnar hafa gengiö enn
lengra t^gagnrýni sinni. Sumir
þeirra segja, að hún sé hreint og
beint fjárplógsstarfsemi. Handa-
yfirleggjendur fái vel greitt fyrir
gagnslausar lækningar. Þetta
hafi enn fremur þá hættu I för
með sér fyrir sjúklinginn, að hann
verði ekki aðnjótandi réttrar
læknismeðferðar.
En hverjir eru það, sem leita til
andalækna?
Oft eru það sjúklingar, sem
hafa áður reynt fyrir sér hjá
læknum og á sjúkrahúsum. Þegar
þeir hafa ekki fengið bata þar,
grlpa þeir siðasta hálmstráiö —
leita til andalæknis.
Það er skiljanlegt.
Og þvl verður ekki á móti mælt,
að kraftaverk gerast. Um það eru
allt of mörg dæmi til þess að þeir
vantrúuðu geti afskrifað anda-
lækningar sem svik, móðursýki
og óskhyggju.
Mikilvægt er að gera sér grein
fyrir því, hvað mælir með og hvað
gegn andalækningum. Að þvi
búnu getur hver dregið slna
ályktun um þær.
Helgidómurinn
Harry Edwards stundar
lækningar sinar I stóru húsi i
Shere suðvestan við London.
Staðurinn heitir The Sanctuary —
Helgidómurinn.
Hann ber nafnið með réttu.
Herbergið, þar sem handayfir-
lagningarnar fara fram, minnir
um margt á kirkju. Þar er að
finna altari og stóran kross, og
litlir blýkrossar eru i gluggunum.
öörum megin eru bekkir, þar
sem sjúklingarnir blða þess að
röðin komi að þeim ásamt vinum
sinum, sem hafa fylgt þeim til
andalæknisins.
Vilji maöur vera óvinsamlegur
I garð Harry Edwards, sem er
erfitt, þvl að hann er mjög
viðkunnanlegur gamall maður,
má segja, að þetta herbergi sé
ekki rétti staðurinn til að gera
krafataverk á, þvl aö aðfarirnar
minna á stórvirka verksmiöju.
Hann læknar á færibandi, ef svo
má að orði komast.
Edwards vinnur ekki einn aö
lækningunum. Allir sjúklingarnir
ganga aö vfsu fyrir hann, en eftir
stutt viðtal, fara þeir til þriggja
samstarfsmanna hans.
Samstarfsmenn hans eru
hjónin George og Olive Burton og
Ray Burns. Harry Edwards
segir, að frú Burton sé gædd sér-
stökum hæfileikum til að lækna
taugaveiklað fólk og fólk með
fæðingarágalla, en Burton og
Burns fást við auðveldari
sjúkdóma.
Fólkið i áætlunarbflnum
Til Shere er I kringum klukku-
stundar lestarferð frá London.
A hverjum degi sækir bíll frá
helgidómnum sjúklingana á
stöðina og ekur þeim á áfanga-
stað. Nokkrir sjúklingar koma
einnig I einkabilum I fylgd
ættingja sinna, og fáeinir koma I
sjúkrabifreiðum.
Einn daginn voru I lestinni frá
London til Guilford hjón, sem
komin voru alla leið frá Van-
couver I Kanada. Auk þeirra voru
þarna miðaldra og efnuð ítölsk
hjón og ungur maður frá New
Jersey I Bandarfkjunum.
— Þetta er ekki óvanalegt,
segir Harry Edwards.Hingað
kemur fólk alls staöar að úr
heiminum. Og þá, sem ekki
komast hingað, lækna ég með
„firöarlækningum ”.
— Hvort það sé hægt? Já, það
er það! Um leiö og ég les bréfin
frá sjúklingunum og einbeiti mér
að þvi að hjálpa þeim, hefst
lækningin. Engu máli skiptir,
hvar sjúklingurinn er á hnett-
inum, hvort er nótt eöa dagur,
þegar ég beini kraftinum að
honum. Lækningin tekst alltaf!
Þeim vantrúaöa finnst enn
rlkari ástæða til vantrúar, þegar
hann heyrir sllkar yfirlýsingar...
Fyrrverandi
stjórnmálamaður
En þvi má ekki gleyma —
Harry Edwards hefur sjálfur
verið vantrúaður.
— Ég gaf mig að stjórnmálum,
segir hann. — Ég var I frjálslynda
flokknum og bauð mig fram til
þings. Ég kynntist andatrú, og i
fyrstu var ég haldinn miklum efa,
einkum hvað snerti trúna . á
lækningu við handayfirlagningu,
unz ég uppgötvaði allt I éinu mér
til óblandinnar undrunar, að ég
var sjálfur gæddur hæfileikum til
sllkra lækninga.
Harry Edwards hefur læknað
með handayfirlagningu i 40 ár, og
hann hefur fengið þúsundir sjúk-
linga til meðferðar. En hvaða,
kraftur er það, sem hann býr yfir?
— Það er ekki ég, sem hef
kráftinn, segir hann. —
Krafturinn kemur bara I gegnum
mig. Guðdómlegur kraftur.
— Lækningamátturinn er gjöf
guðs, og allir menn af öllum kyn-
þáttum búa yfir honum, hvaða trú
sem þeir hafa.
En hverrar trúar er hann
sjálfur?
— Engrar og — allra. Ég trúi á
þaö sanna og hiö góða. Ég trúi á
frið á jörðinni, á rétt mann-
kynsins til að vera hamingju-
samt.
— Þegar ég lækna, geri ég
ekkert fyrir sjúklingana. Það er
ipér æðri andi, sem læknar þá.
Andatrúin kennir okkur, að sam-
band guðs og manna sé i
andanum.
En hvað gerist þá við handa-
yfirlagningu?
— Þaö veit enginn, s.em er
mannlegur, segir Harry
Édwards.
— En á bak við lækninguna
stendur æðri kraftur — andlegúr
32 VIKAN 44. TBL.