Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 16
Sjátf notaöi hú
fegrunariyf-en
ógrynni fjár
á þuí aö fegra
aöra
Hér verður sagt frá Hetenu
Rubinstein — ókrýndri drottningu
snyrtivöruheimsins lengst af þessari
ö/d. Helena Rubinstein var
gædd f/estum þeim eiginleikum,
sem viðskiptajöfrar þurfa að hafa
ti/ þess þeim vegni ve/ — og hún
beitti þeim óspart.
Vornótt eina árið 1964 ruddust
þrír grímuklæddir menn inn í
anddyrið á glæsilegu húsi við Park
Avenue í New York. Þeir slógu
niður lyftuvörðinn og tóku síðan
lyftuna upp á efstu hæð hússins.
Herbergisþerna opnaði dyrnar á
glæsiíbúð Helenu Rubinstein fyrir
þeim. Þeir voru snöggir að binda
þernuna og kefla.
Innbrotsþjófarnir þrír vissu, að
íþúð Helenu Rubinsteins var full af
listaverkum og skartgripum, og
þustu beint inn í svefnherbergið
hennar. Þar lá ókrýnd drottning
fegrunarlyfjanna í gríðarstóru, sér-
smíðuðu rúmi með sjálflýsandi
höfða- og fótagafli. Hún settist
upp. Einn mannanna miðaði á
hana skammbyssu og sagði:
— Afhentu okkur öll verðmæti,
sem þú geymir hér. Annars skýt
ég þig.
Helena Ruþinstein hvæsti á
móti:
— Þið fáið ekki neitt! Ég er
gömul og ekki hrædd við að deyja!
Snáfið burtu!
Mennirnir þrír ráku hana upp úr
rúminu með valdi og bundu hana
fasta á stól. En frúin sýndi engiri
óttamerki. Þvert á móti. Hún jós
skömmum og blótsyrðum á
pólsku, frönsku, ensku og
hebresku yfir árásarmennina.
Rödd hennar nísti gegnum merg
og bein eins og sírenuvæl. Gamla
konan í ódýra náttkjólnum spýtti,
hvæsti og sparkaði frá sér. Inn-
brotsþjófarnir urðu smeykir við
fyrirganginn í henni og flýðu
undan formælingum hennar.
Þeim höfðu orðið á mistök. Þeir
höfðu ekki áttað sig á því, að
Helena Rubinsteín lét aldrei nein
verðmæti af hendi, ef hún vildi
það ekki sjálf. Hefði hún gert
það, hefði hún ekki verið fremst
kvenna í viðskiptaheiminum,
óumdeilanleg drottning snyrti-
vöruiðnaðarins.
Frá því í byrjun þessarar aldar
þar til hún dó árið 1965 rak hún
fyrirtæki, sem í störfuðu meira en
30.000 manns. Hún átti verslanir í
meira en 100 löndum. Henni tókst
að aura saman sem svarar í
kringum 24 milljörðum íslenskra
króna, meðal annars með sölum
og kaupum á verðbréfum. Spekú-
lantarnir í Wall Street skammast
sín enn þann dag í dag fyrir, að
hún skuli hafa hlunnfarið sérfræð-
ingana þar í viðskiptum.
EIN ÁTTA DÆTRA
GYÐINGAKAUPMANNS.
Helena Rubinstein fæddist í
Krakow í Póllandi og var ein átta
dætra gyðings, sem var kaupmað-
ur þar í borginni. Sagt er, að hún
hafi fæðst árið 1882, en það er
ekki vitað fyrir víst, hvort ártalið er
rétt. Hún sagði aldrei sjálf frá því,
hve gömul hún var í rauninni.
Málarinn Pablo Picasso var góður
vinur hennar, og eitt sinn spurði
hann hana hreint út, hve gömul
hún væri. Hún sendi honum ískalt
augnaráð og svaraði:
— Að minnsta kosti eldri en þú!
Eins og ætíð gerist um frægt
fólk, ganga miklar sögur af Hel-
enu Rubinstein í bernsku. Til
dæmis er fræg sú saga, að hún
hafi ung farið að lita hárið á brúð-
unum sínum. En það er ekki rétt.
Hitt er aftur á móti staðreynd, að
hún sýndi snemma óvanalegt
sjálfstæði og starfsorku. Faðir
hennar hafði ákveðið — og í þá
tíð voru orð föðurins lög — að hún
ætti að verða læknir, og með það
fyrir augum var hún send á
frægan skóla í Ziirich.
— Ég þoldi ekki etrerlykt og
mátti ekki til þess hugsa að sjá
blóð. Ég fór þess vegna brátt heim
aftur, þótt pabbi mótmælti því
tiltæki mínu kröftuglega.
Hún olli föður sínum enn meiri
áhyggjum með því að verða ást-
fangin af pilti, sem hann var ekki
ýkja hrifinn af. Því var það, að
fjölskyldan ákvað að senda hana
til Ástralíu. Þar átti hún fjöldann
allan af frændum, sem lifðu af
garðyrkju. Hún hataði landið frá
þeirri stundu, er hún steig þar á
land. En eigi að síður var það í
Ástralíu, sem hún byrjaði að raka
að sér auðæfum.
HVÍT OG MJÚK HÚÐ.
Húð Helenu Rubinstein var hvít
og mjúk. Hún veitti því eftirtekt,
að húð ástralanna var oftast nær
þurr og sólbrennd. Hvernig gat
staðið á því, að húð hennar þoldi
sólina svona vel? Hún komst að
þeirri niðurstöðu, að skýringuna
væri að finna í nokkrum dósum af
cold-kremi, sem hún hafði með
sér að heiman. Til að sannprófa
niðurstöðu sína gaf hún einni
16 VIKAN 12. TBL.