Vikan

Tölublað

Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 21

Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 21
— Það þykir mér vænt um að heyra, sagði ég. — Það stóð flýttu þér að láta þér batna. Það stóð þér þætti leiðinlegt, að ég gat ekki komið. — Já, alveg rétt. — Ég varð hrifinn af gæsarung- unum, sem þú sendir mér. Þeir voru alveg eins og vorið. Fallegir gæsarungar. Pabbi sagði, að þeir myndu róta sig, ef þeir stæðu nógu lengi í vatni, og þá gæti ég plantað þeim I garðinum. Hann sagði. að kannski gætu þeir orðið há tré. Heldurðu það virkilega? spurði Dibs. 7 Framhaldssaga eftir Virginia M. Axline. — Þú segir, að pabbi þinn hafi sagt það. Hvað heldur þú sjálfur? spurði ég. — Ég held það sé rétt hjá honum sagði Dibs. — Og ég ætla að reyna þetta, þá veit ég, hvort það var rétt. — Þannig geturðu komist að því, sagði ég. Athugasemd föðursins vakti áhuga minn. Það var erfitt að segja til um, hvort þetta samtal benti til, að faðirinn væri að reyna að ná sambandi við Dibs á nýjan hátt — eða hvort hann hefði ítrekað reynt að útskýra ýmislegt fyrir Dibs þótt drengurinn hefði aldrei sýnt nein viðbrögð við útskýringum hans. Eins og Jane hafði gert I skólanum. Eins og Jake hlaut að hafa gert svo oft, þegar Dibs ,,bara sat þegjandi.” Hvað sem því leið hafði Dibs sagt mér rólega og „þurrlega” frá þessu. — Hvað sagðir þú, þegar pabbi þinn sagði þér þetta? spurði ég í von um að ná tangarhaldi á ein- hverju, sem gæti komið að haldi við að greiða úr\ þessari flækju. — Ég sagði ekki ncitt. svaraði Dibs. —Ég bara hlustaði. — Farðu úr skónum, Dibs. skip- aði hann sjálfum sér. Hann fór úr skónum. Hann fvllti þá af sandi, mokaði sandinum markvisst í skóna með skóflu. Snögglega stökk hann á fætur, hljóp út úr sandkassanum og opn- aði dyrnar á leikherberginu. Hann teygði sig í skiltið, tók það niður, kom aftur inn í herbergið, lokaði dyrunum, og rétti skiltið fram. — Hvað er þjálfun? spurði hann. Ég varð steinhissa. — Þjálfun? sagði ég. — Tja, leyfðu mér að hugsa mig svolitla stund. Af hverju spurði hann að þessu? Hvaða svar myndi hann skilja? — Það þýðir eiginlega, að fólk má koma hingað og leika sér ot tala alveg eins og það vill, sagði ég. — Hér ...'■’a allir vera eins og þeir vilja. Hér mc6_ allir vera þeir sjálfir. Þetta var skásta skýring.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.