Vikan

Tölublað

Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 26

Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 26
oaKKa cuo VERU LEOMURD Eftirfarandi viðtal við tónmeistarann Leonard Bernstein átti blaðamaður nýlega við hann í Salzburg, þar sem hann stjórnaði hátíðaflutningi á 8. sinfóníu austurríska tónskálds- ins Gustavs Mahlers. — Að stjórna, segir meistarinn, — Það er eins og ástaratlot. Sam- band mitt við hljómsveitir og söngvarar hefur ætíð verið eins konar ástarsaga. Við syngjum, spilum, öndum saman — samein- umst. Eitt augnatillit mitt, ein lítil hreyfing, og ég fæ samstundis svar. Fólk getur ekki komist í nánara samband hvert við annað. Hann er talinn einn besti mahl- erstjórnandi nútímans. Finnst honum hann eiga eitthvað sam- eiginlegt með Gustav Mahler, sem lést árið 1911? — Mörgum finnst ég líkjast Mahler. Tveir menn hafa sagt við mig hvor í sínu lagi, að þeir viti, að ég sé Mahler endurfæddur. Þeir eru spíritistar — hræðilegir og óraunsæir. Einn hljóðfæraleikar- inn í sinfóníuhljómsveitinni í Bos- ton sagði við mig: Þér þekkið mig ekki, en ég hef þekkt yður áður. Þér voruð Gustav Mahler. — Finnst yður þetta hlægilegt? — Nei, svarar Bernstein alvar- lega. — Ég hef komið í sumarhús Mahlers í Kántern. Og allt í einu fannst mér allt svo kunnuglegt þar. Það var eins og ég þekkti þar hvern krók og kima. — Mahler var rómantískur. Eruð þér það einnig? — Já, að sjálfsögðu. — Mahler var oft niðurdreginn. Eruð þér það einnig? — Honum hættir stöðugt við þunglyndi, og mér líka — svolítið. Ég skil hann vel. Sýnir hans og persónuklofning. Ég sé einnig sýnir. Hann lifði við stöðugar andstæður og spennu — spennu milli gyðinga- og kristindóms, milli einfalds lífs og íburðar, milli Vínar og New York. — Og þér finnið einnig til þessarar spennu? — Já, já. Annars er ég þolin- móður maður. Gyðingdómurinn kennir, að maður verði stöðugt að viðurkenna andstæð sjónarmið. Það geri ég. Andhverfan er einnig sönn. Það eru engar spurningar eða vandamál til, sem ég sé ekki tvær hliðar á. Þess vegna er ég mjög frjálslyndur, en þetta veldur mér einnig mikilli kvöl. Hamlet var með sama marki brenndur, og hann þjáðist líka. — Eigið þér við, að þér þjáist? — Mjög oft. Öll tónlist er mér leit að meiri trú, meiri ást, meira öryggi. Umfram allt þó mín eigin tónverk. — Finnst yður austurríkismenn ekki of bundnir hefðum í tónlistar- lífinu? — Fyrstu tónleikar mínir í Salzburg voru mózartstónleikar. Mér var það mikill fengur að fást við Mozart hér í Salzburg. Einn gagnrýnandinn komst svo að orði: Nú vitum við, að það er hægt að leika Mozart á margan hátt. Þessi orð urðu mér til mikillar ánægju. Ég fór nýlega í hús Mozarts og lék á flygilinn hans í margar klukku- stundir. Ég gat ekki hætt. Felicia kona Leonards er frá Chile og var sjónvarpsstjarna þar í landi, áður en hún giftist Leonard fyrir 24 árum. — Ég er löngu hætt að geta sungið, segir hún. — Þú syngur að minnsta kosti betur en ég, segir Bernstein. — Ég syng alltaf falskt. Ég skil það ekki. Ég hugsa tónana hár- rétta, en kem þeim ekki ófölskum frá mér. — En eru börnin músíkölsk? — Nei, segir sonurinn Alex- ander, sent leggur stund á sagn- fræðinám. — Við höfum öll lært smávegis að spila á píanó, en ekkert okkar getur spilað neitt, nema helst Nina. Hún spilar svolítið. — En þið hljótið að tala um tónlist! — Hann talar, segja systurnar einum rómi og benda hlæjandi á föður sinn. Þessi frægi tónlistarmaður virð- 26 VIKAN 12. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.