Vikan - 18.03.1976, Blaðsíða 27
ist vera elskaður og dáður af
fjölskyldu sinni, án þess honum sé
lotið í auðmýkt. Hann varð 57 ára
fyrir nokkru, og Bruno Kreisky
austurríkiskanslari hélt honum
veislu í tilefni afmælisins.
— Fimmtíu og sjö, segir meist-
arinn. — Ég trúi því ekki. Fimm-
tíu og sjö. Ég get varla sagt það.
Þessi orð eru mér svo framandi.
— En eruð þér ánægður með
lífið til þessa?
— Ég er hamingjusamur, svarar
t hann samstundis. — Auövitað er
þetta stundum erfitt. En það
< tilheyrir. Og ég er svo auðugur —
I ég á tónlistina og fjölskyldu mína.
Ég þakka guði fimmtíu sinnum á
dag fyrir að ég er Leonard
Bernstein.
Það er fremur sjaldgæft, að tekin sé
fjölskyldumynd af Bernsteinfjö/skyld-
unni, en hér eru þau öll samankomin í
Salzburg. Lengst til vinstri er Jamie
tuttugu og tveggja ára bókmennta-
nemi, Þá Leonard, Felicia kona hans,
Nína fjórtán ára og Alexander
tvítugur sagnfræðistúdent.
12. TBL. VIKAN 27