Vikan - 19.08.1976, Side 13
áður. Þegar þar að kemur skaltu fá
einhvem þér andlega skyldan með t
ferðina og þágetiðþið komið ykkur
saman um hvaða átt er árennileg-
ust.
Til þess að geta sagt þér orsakir
þessa undarlega sambands milli
hárvaxtar þinna ýmsu líkamshluta
þyrfti Pósturinn að fá hœð þína og
þyngd uppgefna. Sértu maður
MJÖG lítill vexti getur þetta verið
talsvert vandamál. Hættu að fara til
rakarans og leitaðu læknis við fyrsta
tækifæri.
Hvaða Alan Carter? Eigir þú við
balletmeistarann ættir þú að fá
upplýsingar um það hjá Þjóðleik-
húsinu.
Pósturinn eralveg eldgamall.
Playboy er sennilega aðeins selt í
lausasölu hérlendis.
Hvaða spendýr jarðar hefur....
jahéma, þú hefur greinilega mjög
fjölþætt áhugamál. Satt að segja
hefur Pósturinn takmarkaða þekk-
ingu á því sviði og efast um að
nokkur ítarleg úttekt hafi verið gerð
áþvíhingað til.
Hvort menthol-sígarettur eru
hættulegri öðru nikótíni er ekki
gott að segja um. Hættu bara að
reykja allar sígarettur og þá ertu
laus við vandamálið að fullu og
öllu.
Reyndu að beina spumingum
um bítlahljómsveitir til poppþátt-
ar blaðsins.
Þú ert greinilega talsvert yngri en
Pósturinn. Póstinum reyndist það
nógu snúið að lesa úr skrift þinni
hina venjulegu bókstafi, og treystir
sér alls ekki til að lesa einhver
ákveðin persónueinkenni að auki.
MEÐ 10.000 SPURNINGAR
Hæ minn elskulegi og dásamlegi
Póstur!
Ég hef hér rúmlega 10.000
spurningar í huganum handa þér,
en ég veit ckki hve margar þeirra
komast fyrir á þetta blað, en við
skulum nú sjá til, og hér kemur sú
fyrsta:
1. Veistu hvar hr. Ahmad Nvraddin
og hr. Nelson Sims, sem leika 1
myndinni Sameinust bræður (To-
gether brothers) sem nú er sýnd í
Nýja Bíói, eiga heima? Hvað er
langt síðan að þessi mynd var gerð?
Og hvað voru þeir félagar gamlir
þegar myndin var tekin?
2. Getur þú sagt mér nafn á
einhverju blaði (fréttablaði) úti í
Washington, scm ég gæti skrifað til
í von um að ná í pennavin þar.
Og svo að lokum: Hvernig líkar
Póstinum við svertingja? Hvaða
stjörnumerki á best við tvíbura-
stelpu? Hvað lestu úr skriftinni,
hvað heldurðu að ég sé gömul og
hvernig er stafsetningin?? Síðan vil
ég þakka Póstinum og öllum
,,hinum” þarna niðri á Viku fyrir
gott blað, og þá sérstaklega Póst-
inum fyrir sinn þátt.
Ástarkveðjur frá einni með
10.000 spurningar.
P.S. Ég glcymdi alveg að heilsa
fröken ruslafötu, en ég vona að hún
fyrirgefi mér það.
Sú sama.
Mikið þykir Póstinum alltaf vænt
um, þegar einhver segir að hann sé
dásamlegur, hann hreint og beint
roðnar af gleði í hvert sinn. Þakka
þér kærlega fyrir. Ruslafatan er
ekkert móðguð yfir þvt að þú hafir
gleymt að skila kveðju til hennar,
en hún varð náttúrlega mjög
,,spæld" þegar að bréfið þitt þótti
of gott til þess að lenda hjá henni.
Pósturinn er alls hugar feginn að
þú skulir ekki hafa sent honum allar
spurningarnar. Jæja, þá er komið að
aðalmálinu. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir og mikla leit í erlendum
blöðum, gat Pósturinn ekki komist
að þvt hvar þessir leikarar búa, né
hversu gamlir þeir eru. Ekkert var
heldur að fá um þessa mynd þar
sem Vikan leitaði upplýsinga.
Washington Post nefnist þekkt
fréttablað, sem gefið er út t
samnefndri borg. Efþú manst eitt-
hvað eftif Watergate málinu, þá
ættirþú að muna, að þetta blað átti
sinn þátt í að upplýsa málið.
Heimilisfang blaðsins höfum við
ekki, en það er sjálfsagt ekki þörf á
að skrifa það á bréfið, það kemst
sína leið án þess. Að lokum: Pðst-
inum líkar vel við svertingja eins og
alla aðra menn.
Fanney Friðriksdðttir, Tjarnar-
götu 8, Sandgerði óskar eftir
pcnnavinum, bæði strákum og
stelpum, á aldrinum 11 —12 ára.
Guðrún K. Steingrímsdðttir, H/íð-
argötu 3, Neskaupsstað óskar eftir
pennavinum á aldrinum 10—12
ára. Æskilegt er að mynd fylgi fyrsta
bréfi.
Kolbrún Steingrímsdóttir, Hring-
braut 47, Rvík, langar til að skrifast
á við stráka á aldrinum 14—15 ára.
Elísabet Kvaran, Thorvaldsensstræti
4, Rvík, langar að skrifast á við
stráka á aldrinum 14—15 ára.
Canon
Ef þér kaupið Canon-
vasavéi/ þá er ekki
tjáldað til einnar nætur.
Sendum
i póstkröfu
Einkaumboð;
varahlutir, ábyrgð og þjónusta.
Skrifvélin
Suðurlandsbraut 12, simi 85277.
Eiokaaðilar. fyrirtæki, 'núsféioy og aðrir. '
Látið okknr levsa öll ykkar vandatn.i! viðvik|andi hveisKonarprentun.
Fljót og qóð afgreiðsla, haqstætt verð.
PRENTVANGUR
Miðvangi 71, Hafnarfirði Simar 4104R.
34. TBL. VIKAN 13