Vikan - 19.08.1976, Page 14
Á komandi hausti verður leikritið
Sólarferð eftir Guðmund Steinsson
frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins. Nokkur verk Guðmundar hafa
áður verið sýnd á sviði. Til dæmis má
nefna Fósturmold og Sæluríkið, sem
Gríma sýndi á sínum tíma, svo og
Lúkas, sem sýndur var í Þjóðleikhús-
kjallaranum veturinn 1975 og síðan
farið með í leikför til Færeyja síðast-
liðið vor.
Guðmundur hefur í nokkur ár verið
íslendingum í sólarferðum á suðræn-
um ströndum'til leiðsagnar, svo hann
þekkir ákaflega vel umhverfið, sem
Sólarferð gerist í, en aðalefni leiksins
segir hann vera hjónabandið.
Kristbjörgu Kjeld þarf vart að kynna
fyrir lesendum. Hún hefur um árabil
verið ein aðalleikkona Þjóðleikhússins,
og meðal annars var hún í Inúk-
hópnum, sem farið hefur sýningarferð-
ir vítt um lönd.
ILEIKHUSIMU a
VERa STÖBUG J
íslendingar stæra sig iðulega af
því að vcra bókmenntaþjóð, vitna
I fornbókmenntir og Laxness, sumir
í Guðrúnu frá Lundi, og einstaka
láta sig ekki muna um að sanna
mcð tölulegum staðreyndum, að
óvíða í heiminum séu gefnar út
fleiri bækur á mann en á Islandi.
Ekki alls fyrir löngu var viðtal t
Vikunni við borgarbókavörðinn í
Reykjavik, og meðal annars kom
þar fram, að borgarbókasafnið í
Reykjavík á líklega heimsmet i
útlánum á mannsbarn.
En fleira er menning en bók-
mennt, og íslcndingar þekkja sinn
vitjunartima. Við höldum lista-
hátið með pomp og prakt, rekum
sinfóníuhljómsveit, hvað sem það
kostar, o^ málverkasýningar eru
haldnar fleiri en tölu verði á komið.
Að ógleymdum leikhúsunum. í
Reykjavík eru rekin tvö atvinnu-
lcikhús, eitt á Akureyri, og svo er til
nokkuð, sem kallað er Alþýðuleik-
húsið og hefur engan fastan sýn-
ingarstað. Þá eru ótalin öll áhuga-
leikfélögin, sem starfa úti um allt
land, og viðast hvar á íslandi er
dágóð aðsókn að leiksýningum.
Sætanýting í reykvisku leikhúsun-
um ku til dsemis vera með ein-
dæmum góð miðað við höfðatölu
og fjölda sýninga á hverju einstöku
verki.
En til hvers höfum við leik-
hús? Gegnir leikhúsið einhverju
ákveðnu hlutverki i samfélagi okk-
ar? Eða bregst það kannski þvi
hlutverki, sem það ætti að gegna?
Við fengum hjónin Kristbjörgu
Kjeld leikkonu og Guðmund
Steinsson leikritahöfund til að hug-
leiða þessar spurningar og leita
einhverra svara við þeim.
Spurningar sem þessar eru að
sjálfsögðu víðfeðmar, og svörin
sjaldan afdráttarlaus — allt er I
14 VIKAN 34. TBL.