Vikan - 11.11.1976, Blaðsíða 30
Sf'.íin giMir t'rá f’ininmidcci til miðvikudags
HRUT'JRINN 21. mars - 20. april
Gömul ósk þín rætist að nokkru á óvæntu
augnabliki. Þú verður fyrir óréttlátri gagn-
rýni vegna starfsaðferða þinna. Happalitur
er blátt.
NAUTfÐ 21. aprí! - 21. mai
Þú hefur orðið fyrir einhverju mótlæti en
nú rofar til fyrir þér. Það eru góð tækifæri
i fyrir þig til að skemmta þér og þau ættirðu
A* að nota þér.
TVÍBURARNIR 22. maí - 21. júni
Þú gætir gert mjög góð kaup innan skamms
ef þú bíður hins rétta tima. Þú stofnar til
’i,'- ’rp vináttu við persónu, sem þú metur mikils,
og er gott til þess að vita.
KRABBINN 22. júní - 23. júli
Þú ert nokkuð svartsýnn , fúliyndur og
leiðinlegur um þessar mundir. Sem betur fer
ertu ekki alltaf svona og ættir að einsetja
þér að vera það aldrei.
LJÓNIÐ 24.jú!i - 24. agúsr
Það verður fremur mikið um kunningja-
!ý'. heimsóknir næstu viku. Þú getur haft
drjúgar tekjur af áhugamáli þinu ef þú
****%. sinnir þvi meira.
MEYJAN 24. agúit — 23. sept.
Vegna misskilnings hagarðu þér dálítið
kjánalega. En hafðu ekki áhyggjur, því að
víj; i kringum þig er besta fólk. sem skilur að-
stæðurnar. Varastu kaup og sölu.
fgi VOGIN 24. sept — 23. okt. Það fer margt öðruvísi en ráð hafði verið fyrir gert i vikunni. Þú hefur verið of ráð- ríkur og heimtufrekur heima hjá þér og ættir að reyna að bæta fyrir það.
w SPORÐÐREKINN 24. okt. - 23. nóv. Lífið verður þægilegt en viðburðasnautt fram að helginni. Það hefur nokkuð borið á því að þú gagnrýndir fólk, sem þú að lík- indum öfundar. HeiIIatalan er tveir.
EOGMAÐURINN 24. nóv. - 21. des. Þú hefur tekið nokkrum framförum í starfi og ættir að fara að ympra á verðugra verk- efm. Mánudagurinn verður happasæll, sér- staklega fyrir ástfangið fólk.
CÍÉF STEINGEITIN 22. des. 20. jan. Eitthvað sem þú hefur óttast alllengi dynur ., nú yfir. Eigi að siður þarftu ekki að kvarta, þú hafðir möguleika á að afstýra þessu. Gult er heillalitur.
VATNSBERINN 21. jan. - 19. febr.
Þú færð afar erfitt verkefni til úrlausnar en
' 4T öllum á óvart, og þér sjálfum mest, ferst þér.
Það prýðisvel- siðari hluta vikunnar
færðu leiðinlega heimsókn.
FISKARNIR 20. febr. - 20. man
Þú hefur samviskubit vegna einhverrar
ógoldinnar skuldar og ættir því að keppa að
því að losa þig við hana. Þú færð bréf eða
smágjöf, sem setur þig í vanda.
STdÖRNUSPfl
min. En það myndi gleðja mig að
heyra þig segja það. Viltu segja
það? Elskarðu mig, Abby?.”
„0, kjáninn þinn’’ sagði hún blið-
lega. ,,Kæri, kæri kjáninn minn.
Auðvitað elska ég þig. Ég er að
missa vitið vegna þess — ”
Allt í einu var hann kominn til
hennar, hann tók utan um hana og
kyssti hana. Ástríðurnar. sem hún
hafði byrgt svo lengi innra með sér,
brutust nú út, og skullu á henni
eins og flóðbylgja. Hún hélt dauða-
haldi utan um hann og fannst
líkami sinn verða hluti af hans.
Þau slepptu hvort öðru eins snögg-
lega og þau höfðu tekið utan um
hvort annað, og hún sat augnablik
og starði á hann. Siðan lagaði hún
hárið á sér með skjálfandi hönd-
unura, eins og konur gera alltaf
undirsvona kringumstæðum. Hann
hló bliðlega að henni og rétti út
hendurnar eftir henni aftur, en hún
stóð á fætur.
„Nei," sagði hún andstutt. ,,Nei
Gideon, þetta er ekki rétt."
,,Þú ætlar ekki að neita mér,
Abby." Hann sagði þetta stillilega.
„Þú getur það ekki, og við vitum
það bæði." Hún talaði mjög skýrt,
og horfði beint á hann. „Ég get
neitað að giftast þér, en það þýðir
ekki að ég neiti að elska þig. Ég
veit, að það get ég ekki. En ég elska
þig of mikið til að særa þig, og ég
veit að ef ég giftist þér, særi ég þig.
Svo —.” Hún dró djúpt andann.
„Svo Gideon, þú getur komið
hingað hvenær sem þú vilt, þú mátt
deila mínu lifi með mér, öllu mínu,”
hún kyngdi, „Við þurfum ekki að
skiljast, þó við getum ekki gifst.”
Hann stóð alveg kyrr, starði á
hana og sagði óviss. „Ég get ekki
ímyndað mér — mér hlýtur að
skjátlast.”
Hún hristi höfuðið. „Þér skjátl-
ast ekki. Ég vil hafa þig sem elsk-
huga minn, en ekki sem eiginmann.
Vilt þú taka mig sem hjákonu þína
Gideon, því ég sé enga aðra leið?"
Um leið og hún hafði sleppt
síðasta orðinu, vissi hún að hún
hafði sært hann. Varir hans urðu
eins og strik, og þó andlit hans
hvorki fölnaði né roðnaði, virtist
hann allt í einu eldast um mörg ár.
„Ég vissi ekki að þú gætir
smánað mig svona, Abby” sagði
hann loks. „Ég kom til þín til að
bjóða þig sjálfan mig, allt, sem ég
get boðið þér. Ég ber ekki aðeins
ást til þín, heldur virði ég þig
einnig.” Hann þagnaði og dró
snöggt andann.
„Ég get skilið tilgang þinn með
því að bjóða sjálfa þig svona, þú
heldur að það beri vott um ást. En
ég segi þér, að mér hefur sárnað.
Hefði ég aðeins viljað hjákonu...”
Tónninn í rödd hans fékk hana til að
hopa. „Einhverja hjákonu, hefði
ég ekki komið til þín, því að sú ást,
sem ég ber til þín, er of heit til þess.
Ef þetta er endanlegt svar þitt, þá
þurfum við ekki að ræða þetta
lengur. Ég bað þig um að giftast
mér. Ég gæti ekki tekið þig eins og
hverja aðra, og geri það aldrei.”
Þau stóðu þögul undir eplatrénu,
í sólskininu og vindurinn ýfði hár
þeirra, og eftir augnablik sagði hún
„Að verða eiginkona þín myndi
særa þig enn meira og það vil ég
ekki gera.”
„Hann lokaði augunum andartak
tók hatt sinn, hneigði sig fyrir henni
og fór.
Árið leið hægt. Heitur ágúst-
mánuður tók við af enn heitari
júlí. Abby hafði ekki séð Gideon frá
aprílkvöldinu forðum. Ungfrú Mill-
er stóð í ströngu með börnin á
Paddington Green, og gat ekki
lengur komið í verksmiðjuna, og
það var þægilegt fyrir Abby. Hún
vann lengi frameftir og kom aðeins
heim til að láta sig falla í draum-
lausan svefn. Hún ímyndaði sér að
hún væri alveg komin yfir þetta
með Gideon Henriques, og gat
næstum trúað því.
Það var líka staðreynd að nú
hafði hún skyndilega svo margt fólk
til að annast. Það hafði verið sorg-
legur og erfiður tími þegar Jonah
hafði komið og hellt úr bikurum
beiskju sinnar yfir missi sínum.
Hann hafði ákveðið að skilja börnin
eftir hjá henni. ,,Ég mun engu
breyta, sem Celia hefur skapað, og
þar að auki verð ég að sjá fyrir
börnunum og — ”
Hann stoppaði, og eftir andar-
taks þögn bætti hann við
„Ég mun auðvitað borga fyrir
uppihald þeirra — ”
Hún hafði borið ákaft á móti því.
„Það gerir þú ekki. Þau eru mér og
Frederick til ánægju — sérstak'oga
Phoebe, sem honum þykir svo
vænt um — og það er skylda mín að
deila mínu heimili með þeim.” Hann
hafði faðmað hana að sér og íarið,
og ráðgert að eyða öllum sunnu-
dögum með böinunum á Padding-
ton Green. Hún vissi, að það var
erfitt fyrir hann að þurfa að sjá af
þeim svona lengi. Þau töluðu aldrei
um Celiu.
Eitt mál reyndi hún að ræða við
Jonah. Það voru fjölskyldutengsl
hans við Abel. Hún beið þar til tveir
Shrifuélin hf
Ódýrar
og hentugar
peningaskúffur
30 VIKAN 46. TBL.