Vikan - 11.11.1976, Blaðsíða 42
í dag bökum við br
Eldhús
Vikunnar
UMSJÖN:
DRÖFN
FARESTVEIT
i dag ætlum við að baka brauð,
bæði gróf og fín, stór og smá.
Eitthvaðfyriralla mætti nefna það.
GRUNNUPPSKRIFT AFBRAUÐI.
Gerið sett í skálina og leyst upp í
volgum vökvanum sem ídeigið á að
fara (mjólk, undanrenna eða vatn).
Leysiðgerið aðeins upp í hluta þess
vökva, sem í uppskriftinni er.
Blandiðsaman meirihluta mjölsins
sem í uppskriftina á að fara ásamt
þurrefnunum (salt, sykur og
krydd). Takið hluta mjölsins frá og
notið þegar farið verður að hnoða
deigið. Hnoðið deigið saman og
stráið mjöli yfir. Breiðið rakan klút
yfir og látið standa á hlýjum stað
meðan deigið er að lyfta sér.
(Deigið á að lyfta sér um ca.
helming). Hnoðið deigið með
hveitinu, sem haldið var eftir, þar til
það losnar frá borði og er orðið
hæfilega blandað mjöli. Mótað og
látiö lyftast á nýjan leik. Penslið
með vatni, mjólk eða eggi. Bakið.
RÚGBRAUÐ.
50 gr pressuger (5 tsk. þurrger)
7 dl súr undanrenna
16 dl samanmalað rúgmjöl
7—9 dl hveiti
1 tsk. salt
Hnoðið upp 2 brauð, og látið þau
lyfta sér í formum.
SKÚFFUBRAUÐ.
75gr pressuger (7 1 /2 tsk. þurrger)
1 Itr súr undanrenna
3 dl vatn
11/21 heilhveiti
3/4 I fínt rúgmjöl
1/4 I gróftmalað rúgmjöl
1 1/4 — 1 1/2 Itr. hveiti.
Hnoðið4brauðog látið hlið við hlið í
smurðaofnskúffu. (ca. 32 x 32 cm)
KRINGLÓTT FORMBRAUÐ.
Grunnuppskrift að næstu upp-
skriftum:
50 gr. pressuger (5 tsk þurrger)
50 gr smjör eða smjörlíki
5 dl vökvi (vatn og/eða mjólk, súr
og/eða ný)
2 tsk salt
13—15 dl hveiti.
Þessi uppskrift er í 2 brauð eða
24 — 28 bollur. Gerið leyst upp í
skálinni. Smjörið brætt í potti og
vökvinnsettursaman við. Hitað þar
til allt erfingurvolgt. Setjiðvökvann
ískálina og hrærið saman við gerið.
Síðan er farið eins að og áður var
lýst.
KRINGLÓTT FORMBRAUÐ.
Notið grunnuppskriftina og bakið í
stóru kringlóttu tertuformi. Bakið
við 225° í ca 45 mín. Skerið það
þvert á og skreytið með pizzafyll-
ingu. Bakið íofni og berið fram eins
og „svikna" pizza.
KRYDDAÐIR RÚGBITAR.
50 gr pressuger (5 tsk þurrger)
25 gr smjör eða smjörlíki
4 dl vatn
1/2 dl sýróp