Vikan - 11.11.1976, Blaðsíða 4
Nú eru litlir bartar aftur komnir í
tísku, þegar um stuttklippt hár er
að rœða.
Þessi hárgreiðsla er nefnd eftir
Shakespeare, því hún þykir minna
á hárgreiðslu skáldsins með siðu
hnakkahári og stuttu ennis- og
vangahári.
sem verka svo vei á mig, og það
sama kemur alltaf fyrir mig í Finn-
landi. Mér finnst líka finnar og ísl-
endingar eiga svo margt sameigin-
legt, annað en fallegt kvenfólk. Þótt
ég skilji ekki þeirra tungumál,
skynja ég bæði eitt og annað, sem
pr beim sameiginlegt.
Blaðam.: — Þegar ég fór á hár-
greiðslustofu hér áður fyrr (það var
þegar ég hafði bæði tíma og
peninga), fannst mér oft, að næst-
um allar konur kæmu út með
nákvæmlega sömu hárgreiðsluna,
sem var í tísku þá stundina. Það
4 VIKAN 46. TBL.
mikið stendur til, koma þær til mín
á stofuna.
Allt þetta segir Perry, meðan
hann „ondulerar” dömurnar, eins
og sagt var í þann tíð. Nú á maður
helst að líta út eins og maður hafi
aldrei inn á hárgreiðslustofu stigið,
í gömlu merkingunni. Túperingar
og stíft lakk eru alveg úr sögunni.
Nú er með góðu móti hægt að
komast af með hárbursta og þurrku
a.m.k. fyrir þær, sem eru frekar
stutthærðar.
— Ég kem aftur í vor og er strax
farinn að hlakka til, þótt líf mitt
núna sé sífelld ferðalög um Skandi-
navíu. Hárgreiðslufólkinu ykkar fer
sífellt fram, það er samkeppnisfært
hvar sem er í heiminum, jafnt það,
sem starfar á höfuðborgarsvæðinu
Þessi sígilda greiðsla stendur alltaf
fyrir sínu. Hún er í senn þægileg og
einföld og gerir konunni kleift að
hugsa um hárið á sér sjálf. „Ein
af mínum uppáhalds greiðslum”,
segir meistari Perry frá Ósló.
Ekki er nnnað að sjá en hárgreiðsl-
urnar samhæfist islenska veðurfar-
inu, því varla rís hár á höfði í
norðangjólunni.
var eins og ekkert tillit væri tekið til
andlitsfalls eða persónuleika. Ann-
að hvort var að fara út með siðasta
hrópið frá París á höfðinu, eða halda
áfram að vera maður sjálfur. Er
þetta nú ekki eitthvað að breytast?
— Viltu ekki bara dæma sjálf?
segir Perry og brosir yfir svona
gamaldags hugsunarhætti og kallar
inn 8 stúlkur, sem hann hafði boðist
til að greiða fyrir Vikuna. Og þarna
eru svo sannarlega engar tvær
stúlkur með sömu greiðsluna,
heldur eru greiðslurnar jafn ólíkar
og stúlkurnar 8 innbyrðis.
Á meðan ljósmyndarinn skýtur á
stúlkurnar beitir Perry sinu besta
hjálpartæki, hárburstanum, listi-
lega á kollum stúlknanna og skapar
nýjar og nýjar hárgreiðslur með, að
því er virðist, nokkrum strokum.
Blaðamaður Vikunnar, sem komið
hafði inn úr rokinu og látið veður-
guðina um að hanna greiðsluna,
reynir að gera sem minnst úr sér og
nagar sig í handarbökin fyrir að
hafa ekki þvegið á sér hárið um
morguninn.
Blaðamaðurinn spyr nú Perry,
svona til að réttlæta útlitið á sjálfri
sér, hvort nútimakonan, sem er í
eiiífu kapphlaupi við timann, geti
séð af sínum dýrmæta tíma til að
fara í hárgreiðslu, nema sérstakt
tilefni gefist.
— Til mín koma konur af eigin
frjálsum vilja, segir Perry. Ég
kenni þeim siðan að hugsa sjalfar
um hárið, svona dags daglega. Ég
geri þær alls ekki háðar því að þurfa
að fara í hárgreiðslu, þvert á móti,
því ég er viss um, að þær spara
bæði tima og fyrirhöfn, með því að
ég kenni þeim réttu tökin. En ef
t
Jane Hellen
,|f
*
Jane’f r Jane’ Jane’
deodoro.- doodoroi deodoro, deodoror,'
cologn cologf colog cologne
#*■ I p
l a r e
DEODORANT OG
COLOGNEISENN
4 FRÁBÆRAR ILMTEGUNDIR
iLhiiiV/i , .
TUNGUHALSI 11. SIMI 82700