Vikan


Vikan - 13.01.1977, Síða 11

Vikan - 13.01.1977, Síða 11
minnimáttarkennd, þegar ég var svona 14—15 ára, og þá var alltaf sagt við mig, að ég myndi venjast þessu, en ég get nú alls ekki sætt mig við þetta samt. Ég heyröi ( útvarpinu um daginn, að það var verið aö auglýsa 100% háreyð- ingarmeðal, sem fékkst í einhverri verslun, en ég missti af nafni verslunarinnar. Getur þú fundið nafnið fyrir mig? Þessi auglýsing gladdi mig mjög, og ég hugsa aði með mér, að nú fengi ég kannski lausn á því, sem ég vil fyrir alla muni. Ég vona því, að þú getir hjálpað mér. Getur þú sagt mér eitthvað um loftskeytamál? Hvað er loftskeyta- nám langt, og hvaða próf þarf til þess að komst í það? Og svo að lokum. Hvernig fara saman meyja (kvk.) og tvíburi (kk.)? En meyja (kvk.) og fiskarnir (kk.)? Hvernig er skriftin, og hvað getur þú lesið úr henni? n. . Ein loðin. Það er leiðinlegt að heyra um allan þennan óþarfa hárvöxt, en þú ættir nú ekki að þurfa að örvænta. Sennilega er ráð/egast fyrir þig að leita til snyrtisérfræð- ings, ef þetta er mikið vandamát, en annars fást ýmsar tegundir háreyðandi lyfja i lyfjabúðum, og eru þau alveg hættulaus, ef þau eru rétt notuð. Loftskeytanám er hægt að stunda við Loftskeytaskólann, en hann er til húsa aö Sölvhólsgötu 11 í Reykjavík. Inntökuskilyrði eru gagnfræðapróf eða önnur sam- bæriieg menntun, og svo eru inntökupróf í þremur greinum, þ.e. stærðfræði, ensku og dönsku. Aða/áhers/a er þó lögð á stærðfræði. Námið er bæði bók- legt og verklegt og tekur tvö ár. Margir notfæra sér námið sem undirstöðu framhaldsnáms t. d. símvirkjunar og símritunar. Atvinnumöguleikar munu vera nokkuð góðir. Ast meyjar og tvíbura kemur oft eins og þruma úr heiðskíru lofti, en hún endist sjaldan lengi. Meyja og fiskar eiga heldur ekki mjög vel saman, þó er alltaf möguleiki á góðri sambúð ef vi/jinn er fyrir hendi hjá báðum aðilum. Skriftin erekkisem verst, en stafsetningin þyrfti að vera betri. Or skriftinni les ég úrræðaleysi og feimni. Svar til B. B. Reyndu að slappa svolitið af, þetta er örugglega ekki eins alvarlegt og þú álltur. Haltu þig heima næstu vikurnar og reyndu að taka þig á, þá er von til þess, að þú verðir tekinn aftur í sátt. Biddu svo bara ró/egur eftir þvi, að þetta jafni sig allt saman, og þá fer allt ve/ að lokum. DRAUMFARIR Kæri Pósturl Ég er 14 ára og skrifa þér til þess aö spyrja þig ráöa. Þaö kemur mjög oft fyrir, að ég fái martröð. Það gerist þannig, að mér finnst kannski allt ( einu um miðja nótt, að ég sé vakandi og get mig þó hvergi hreyft. Ég reyni þó að fara á fætur, en fæ mig ekki hreyft með nokkru móti. Þetta er ákaflega óþægilegt og þreytandi, einkum og sér í lagi, þar sem ég fæ þetta æði oft. Ég hef mikið hugsað um þetta að undanförnu og datt í hug að spyrja þig ráða í þessu sambandi. Vona, að þú getir ráðlagt mér eitthvað til þess að losna viö þetta. Einn órólegur. Það er nú slæmt, að þú skulir ekki geta notið svefns fyrir slikum draumförum, en þetta er víst ekki svo óalgengt. Martröð getur stafað af þvi, að viðkomandi liggur i óþægilegum eða óeðli- legum stellingum og hvílist þvf ekki sem skyldi. einnig getur hún átt sér sálrænar orsakir og er þá oft illvigari. Ef þessu linnir ekki innan tiðar, er ráðlegast fyrir þig að leita læknis Pennavinir Mr. Fritz O/schewski, Pf. 101003, D-509 Leverkusen, West- Germany, 52 ára gamall skólastjóri, sem hefur áhuga á frímerkjasöfn- un og ferðalögum. Hann skrifar á þýsku og rússnesku. Gerður Gísladóttir, Hjöllum 10, Patreksfirði, óskar eftir bréta- skiptum við stelpur og stráka á aldrinum 12—14 ára. Sjálf er hún 12 ára og áhugamálin eru fimleikar eða íþróttir. Krist/n Harðardóttir, Lyngási, Biskupstungum, Árnessýslu, óskar eftir bréfaskriftum við stráka á aldrinum 12—14 ára. Elísabet Guðný Tómasdóttir, Eyr- arvegi 17, Grundartirði, Snætells- nesi, vill komast í bréfasarhband við 12 ára stelpur. Hún svarar öllum brMum, en æskilegt er að mynd fyigi i yrsta bréfi. Bólu morðinginn Solution 41, nýja efnið frá Innoxa, hefur oft verið nefnt „Bólumorðinginn' þó meira í gríni en alvöru. öllu gríni fylgir þó nokkur alvara. Solution 41, frá Innoxa, er gert sérstaklega fyrir táninga. Solution 41 er litlaust sótthreinsandi efni, sem vinnur gegn algengu vandamáli unglingsáranna — óeðlilegu fitumagni í húðinni. Solution 41 er framleitt fyrir táninga, sem vilja stemma stigu við hinu víðkunna húðvandamáli. INNOXA Leitið upplýsinga um Solution 41. Reynið Solution 41. Og ef björgunarbátur björgunarbátsins ykkar sekkur, þá hafið þið enn einn björgunarbát til að bjargast á. 2. TBL. VIKAN 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.