Vikan


Vikan - 13.01.1977, Blaðsíða 12

Vikan - 13.01.1977, Blaðsíða 12
Smásaga eftir Friðgeir Axfjörð Eitt rif í mannsins síðu Herbergið var í geimstíl. Fallega nælonblússan hennar vinkonu minnar hafði auðsjáanlega skriðið upp á borðið í húmi næturinnar og tyllt sér þar á gamlan teiknilampa án minnstu blygðunar. Brjóstahöldin hennar ríghéldu sér í hurðarhúninn, dauðhrædd við blússuna. Skórnir okkar lágu i faðmlögum á gólfinu, forugir og blautir eftir tunglskinsgönguna. Ég vaknaði við, að það hrikti átakanlcga í bárujámsklæðning- unni á þakinu, um leið og storm- hönd almættisins vafði saman þokuslæðuna, sem legið hafði næt- urlangt yfir firðinum. Áhugalaus hani galaði í fjarska, úrillur yfir töfinni frá skyldustörfunum í hænsnahúsinu. Byggðin var greinilega í svefn- rofunum. Timburmennimir mínir tóku virðingarverðar rokur, ef ég hreyfði höfuðið. Annars vom þeir með lakara móti, enda langþreyttir efitr alla helgargleðina. Helgin hér fyrir norðan byrjar með því að öllum bömm er lokað ó miðvikudögum. Að athuguðu máli ákvað ég að opna augun lítið eitt, þrátt fyrir óljósar minningar um útganginn á herberginu. — Fyrst að opna örlitla rifu, svo mátti þurrka glýjuna úr augunum, umleið og maður vandist útsýninu. Ég hefði getað svarið, að það fyrsta sem ég sá væri svört biðu- kolla, ef ég hefði ekki vitað, að þær em alltaf hvítar. Þegar ég strauk þessa, kom í ljós fjólublór hár- borði og síðan gullfallegt kven- mannsandlit. Mérfannstég kannast við hana, en kom ekki fyrir mig nafni hennar. Mér þótti það leiðin- legt, því ég vil helst vera dús við þessar gyðjur, sem temja sér að sofa fyrir ofan mig. Það reyndist mér auðvelt að leysa þessi vandræði. Ég sá strax, að konan var svo álitleg, að ég tæki ekki nærri mér að kalla hana aðeins ástina mína, englabyssuna mína, eða eitthvað þess hóttar. öllu verra var að gera sér grein fyrir hvsu- ég hafði dottið ofan á þennan kjörgrip. Herbergið var í geimstíl. — Fall- ega nælonblússan hennar vinkonu minnar hafði auðsjáanlega skriðið upp á borðið i húmi næturinnar og tyllt sér þar á gamlan teikni- lampa án minnstu blygðunar. Brjóstahöldin hennar ríghéldu sér í hurðarhúninn, dauðhrædd við blússuna. Þau héldu, að blússan væri vofa, sem biði færis í drauga- legri morgunskímunni. Skómir okkar lógu i faðmlögum á gólfinu, forugir og blautir eftir tunglskins- gönguna. En það var allt í lagi, að minnsta kosti em mínir skór ósér- hlífnir að eðlisfari. Ekki brá plötuspilarinn venju sinni, blessaður karlinn. Hann fór i gang í tíma og ótíma. Þama lá hann sakleysislegur á gólfinu og hjakkaði í sundur síðustu rásina á Julie London, uppáhaldsplötunni minni. Ég teygði mig í rofann og stöðvaði hann. Hafið þið nokkum tima tekið eftir því hvað grór hversdagsleiki sunnu- dagsmorgna getur níst mann voða- lega? Jafnvel beinin í mér virtust titra af einhverri spennu. Vinkona min svaf enn. Ég þóttist reyna að lagfæra hárbandið. Mér fannst ég verða að vita, hver þetta væri. Aðallega vegna þess að ég skammaðist mín undir niðri fyrir að rafmagnsheili minn skyldi hafa orðið straumlaus um kvöldmat gær — nú.og svo var ekkert að þvi að sjá hana vakandi, þessa alparós. Ég mundi að vísu eftir allri nótt- inni, en af skiljanlegum ástæðum var ég ekkert að spekúlera í því, hver þetta væri í kolsvörtu myrkr- inu. En nú var hún að mmska. Ég potaði gætilega í öxlina á henni. Hún snéri sér geispanid að mér. — Ég varð orðlaus. Gömlu náttfötin mín fóm henni líka ágæt- lega. Hún reis snöggt upp, skelfd á svip. En svo var eins og hún áttaði sig, og þó brosti hún og kyssti mig á kinnina. „Góðan daginn, kvennabósi.” Bjartur hlátur hennar fyllti her- bergið. ,,Hæ”. Það var eina orðið sem ég mundi þessa stundina. „Þarftu þú nokkuð að fara í vinnuna í dag?” „Hvaða helvítis vinnu?” „Þú þarft að vinna eins og aðrir, er það ekki”. „Til hvers á að vinna?” Ég var í einhverri leiðslu. „Nú til þess að fá peninga, maður”. „Hvað á maður að gera með peninga”. „Kaupa mat, til dæmis”. Húr var farin að brosa. Ég er ekkert svangur”, stundi ég og dró hana til mín. Ég man ekki, hvað ég kyssti hana mikið eða hvað lengi, en hún var sofandi, þegar ég vaknaði aftur á tólfta tímanum. Eg var enginn maður til þess að hætta á að vekja hana strax aftur. Ég lá og starði upp í loftið um stund. — Það vai farið að rigna. Það sækja alltaf að mér heimspekilegar hugsanir, þegar ég heyri dropana gæla við súðina. Ég fór að hugsa um, að sennilega væri konan best heppnuð af öllum gallagripum náttúmnnar. Enda segir bretinn, að hún sé gerð af sykri, kryddi og öllum góðum hlutum: Sugar and spice and all things nice. Þetta finnst mér að vísu bamalegt, en það dugir í Englandi. Ég hefi raunar aldrei skilið kon- una til fullnustu. En frá þvi að ég man fyrst hefi ég sungið man- söngva til hennar í einlægri til- beiðslu. Strax sem bam tók ég konuna fram yfir aðrar dægra- dvalir. Til dæmis man ég eftir því, þegar strókamir á Eyrinni eyddu öllum vetrinum í að búa til snjó- karla, þó var ég orðinn sérfræðingur í snjókerlingum. Ég vissi ekki, að vinkona mín var vöknuð, fyrr en ég fann hana hjúfra sig upp að mér. „Um hvað ert þú að hugsa, vinurinn?” „Konu, --konur meina ég”. É£ smeygði handleggnum utan um hana. „Ég held að við karlmenn- irnir eigum konumar”. „Það leyndi sér ekkert í gær- kvöldi, að þú hefir þessa skoðun, elskan”. „Guð almáttugur var ekki neinn kommúnisti. Hann sýndi ekki Adam Evu og bað hann að kjósa sér konu. — Nei, hann bjó Evu til úr rifbeini Adams og sagði, — Veskú, vinur, hér er skvísa handa þér. Hefir þú ekkert álit á konum?” „Jú, — þær eru ærulausar, — við strókamir sláumst þó stundum um heiður okkar.” Hefir þú aldrei slegist um heiður konu?” „AUt kvennafar er á sinn hátt barátta um heiður konu, þær tapa bara oftast í fyrstu lotu. — Eftir 12 VIKAN 2. TBL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.