Vikan


Vikan - 13.01.1977, Blaðsíða 13

Vikan - 13.01.1977, Blaðsíða 13
það er ekki hægt að slást um heiður þeirra.” „Við konumar emm ekkert verri en þið karlmennirnir”. „Þvíertþúekkiirauðum sokkum? — Það er gömul indversk þjóðtrú, að guðimir hafi gert konuna af kulda fjallatoppanna, glóð úr víti eldfjall- anna, herslu demantsins og grimmd tígrisdýrsins. Við þetta blönduðu þeir glaðværð sólargeislans, mýkt rósablaðanna, lettleika fjaðrarinnar, hræðslu hérans og augnatilliti dá- dýrsins. — Ætlar þú að troða þessari lýsingu upp á nokkum karlmann?” „Það munar ekkert um það.” Vinkona mín var farin að brosa. „Þetta er nú gott og blessað, ef guðimir hefðu látið staðar numið. En því miður vom þeir gripnir sköpunaræði, og til frekari full- komnunar bættu þeir enn við boga- ínum mánans, nýtni vínviðarins, sveiganleika slöngunnar, duttlung- um vindsins, fordild páfuglsins, kurri dúfunnar og málæði páfa- gauksins. „Ekkert meira?” „Jú, — það er sagt, að þeir hafi litið með velþóknum á verk sitt.” „Trúir þú þessu, vinur minn?” Auðvitað trúi ég þessu ekki. — Ég veit, að þessi sköpunarsaga konunnar er ein aðalástæðan fyrir því að forfeður okkar köstuðu goðamyndum sínum fyrir kletta og tóku kristna trú. Það er líka notalegra að vita hana gerða úr rifi Adams. Ég fór ósjálfrátt að skóða vin- konu mina, í huganum auðvitað, með augum raunvísindamannsins. Nú er það staðreynd, að allt frá því að Adam fórnaði rifbeini sínu sem hráefni í fyrstu konuna, höfum við karlmennirnir oftast litið kon- una frá sama þrönga sjónarhorninu og við höfum stytt okkur stundir með henni á fremur einhliða máta. Þess vegna reyndi ég, eftir því sem timburmennimir leyfðu, að velta henni fyrir mér í huganum frá lýjum hliðum. Ég rifjaði upp löngu gleymdar staðreyndir úr efnafræði skólaáranna. Þessar vangaveltur ollu mér strax sárum vonbrigðum, — því dásamlegur meðalstór kvenmannslíkami inniheldur ekki meira af sykri en nægja mundi mér í átta kaffibolla, ég nota að visu þrjár skeiðar í bollann. Aftur á móti virðist meðalskvísan innihalda nægjanlegt magn af klóri til þess að dauðhreinsa vatnið í fimm stórum sundlaugum. Þetta eru eintómar mótsagnir. Vatnsinnihald meðalkonunnar er um fimmtíu lítrar, eða slarkandi einu sinni í bað, ef maður kemur ekki beint úr kolamokstri. Aftur á móti er fitumagnið yfirdrifið í tíu stór sápustykki. Þarna (í konunni auðvitað) er óhemju magn af súrefni sem nýta mætti til lógsuðu, en svo lítið sait, að það gæti ekki haldið kjötbita óskemmdum vetrarlangt. Það er eitt og hálft kíló af kalki í venjulegum konulíkama, að mestu í beinum. Ég veit ekki, hvað það nægir til þess að kolóna margar vambir, enda er ég litið í sláturgerð. Þama eru líka tólf kíló af kolefni, sem ég veit satt að segja ekkert, hvað hægt er að gera með. Þegar ég rifjaði fyrir mér fosfór- innihaldið, gerði ég mér fyrst ljóst, hve stórhættulegan grip við karl- mennirnir höfum verið að hand- fjatla um aldaraðir. — Fosfórinni- hald einnar konu mundi nægja til framleiðslu ó tuttugu þúsund eld- spýtum, en eins og allir vita getur ein eldspýta kveikt stærstu skógar- elda. Það er aftur ó móti bót i máli, að járninnihaldið mundi varla nægja í einn tveggja tommu nagla. Brennisteinn er um allt í konunni, fullkomlega nóg til þess að aflúsa heilan hund. Og allt í einu rann upp fyrir mér jós, — nú veit ég af ’hverju stórveldin hvetja konur til þess að ganga í herinn: Úr glusseríninu, )em kreista mætti úr einum konu- íkama, má búa til djúpsprengju, sem grandað gæti hundrað-ogfjöru- tíu-miljón-dollara kjarnorkukafbóti með allri áhöfn. Mér fyndist synd að nota konur í djúpsprengjur, nema þá eina og eina. Þegar hingað var komið hugleið- ingum minum rann upp fyrir mér sú gleðilega staðreynd, að rétt sköpuð kona, þessi furðuvera, kostar ekki nema níuhundruðfimmtíu og tvær krónur, ef maður fær hana á hráefnaverði. Nú fór ég að líta ó málið frá bjartari hlið. Ég treysti mér vel til þess að gera frumdrög að kven- 2. TBL. VIKAN 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.