Vikan - 13.01.1977, Side 21
hann snögglega. Bilhurð lokaðist.
Siðan algjör þögn.
Hún var rofin af kalli einhvers
staðar fyrir ofan þau. Athygli Dav-
ids beindist nú að húsi fyrir aftan
hann. Hann snéri sér við til hálfs og
horfði upp i glugga, sem glugga-
hlerunum hafði verið hrundið frá og
reið kona kom í ljós. Hann skildi
ekki orð af þvi, sem hún sagði, en
handahreyfingar hennar töluðu
sinu máli. Þá leit David aftur að bíl-
unum tveimur. Höfuðsmaðurinn
yrði að kveða niður þessi mótmæli.
Og það gerði hann lika. Hann steig
eitt skref fram, ansaði henni og
konan steinþagnaði. Eða ef til vill
hefur einkennisbúningurinn gert
gæfumuninn.Aftur var orðið frið-
samlegt þarna á torginu.
Höfuðsmaðurinn gekk yfir til
Davids og horfði niður eftir dimma
veginum. ,,Þeir eru ekkert að flýta
sér.” Honum leist ekki á blikuna.
„Aftari billinn er mikilvægari.
Þangað fór Bohn til þess að gefa
skýrslu um málið.”
,,Ef til vill trúa þeir honum
ekki.” Það gat verið skýringin á
þessari töf. „Þeir halda ef til vill að
Jaromir Kusak og dóttir hans séu
ennþá hérna.”
„Irinu var ekki ætlað að komast
hingað,” minnti David hann á.
„Og málið verður flóknara fyrir
bragðið,” svaraði höfuðsmaðurinn.
Hann var yngri en David, hávax-
inn og samsvaraði sér vel, og áreið-
anlega fær maður. Á þessu augna-
bliki virtist hann tuttugu árum
eldri. „Ef þeir halda að Irina hafi
ekki komið hingað, draga þeir ef til
vill þá ályktun að Kusak bíði
hennar enn hér.”
„Ég held ekki. Bohn sá Jo og hún
er sönnun þess að Irina hafi komið
hingað. Lifandi sönnun,” sagði
David alvarlegur. Við snérum á þá
hjá Santa Mariukirkju, sagði hann
við sjálfan sig og þvi skyldi okkur
ekki takast það núna líka.”
„En seinkunin...”
„Þeir eru ef til vill að reyna að
endurskipuleggja þetta allt
saman,” sagði David.
„Þá hljóta bílarnir tveir að vera
með talstöðvar.”
„Einhver stjórnar þessu, svo
mikið er vist.”
„Já.”
„Hvorum megin fór Bohn inn í
bílinn?”
„Hann gekk niður veginn vinstra
megin.”
„Þá hlýtur hann að hafa farið
inn í bílinn hægra megin. ”
„Já, sennilega.”
„Þér hafið góða heyrn.”
„Ég hef atvinnu af- því,” sagði
David og var að því kominn að
skella upp úr. „Ég er tónlistar-
gagnrýnandi.”
Höfuðsmaðurinn tók eitthvað
upp úr vasa sínum. „Aðeins sígar-
ettukveikjari,” sagði hann við
David og brosti. „Ekki skamm-
byssa.” Hann benti á vasa Davids.
„Og ég er ánægður að þér skylduð
ekki hafa notað yðar. Hverrar
tegundar er hún?”
„Skammbyssa af ' gerðinni
Beretta.1”
„Ég fellst á að það er einföld
lausn. En þess háttar aðgerðir hafa
ævinlega óþægindi i för með sér.”
Höfuðsmaðurinn brosti lítillega.
„Notið ekki skammbyssuna. Við
munum finna einhver önnur róð.”
Hann gekk i áttina að miðju torgs-
ins. „Um leið og þeir koma upp
hæðina felið yður þá á bak við
bilinn. Weber...”
Hvort ég mun, hugsaði David.
En hann dró hægri höndina upp úr
vasanum.
Er Weber heyrði rödd höfuðs-
mannsins leit hann í kringum sig.
Hann stóð enn við hlið Jos. „Já,
Golay höfuðsmaður...hvað get ég
gert?”
„Forðið konunni i burtu af
torginu.”
Weber tók um hönd hennar.
,, Þetta er skipun. ’ ’
„Nei.” Jo leit á húsið fyrir aftan
sig. Hlerunum á þremur gluggum
hafði verið skipt frá og á bak við
rúðuglerin sást móta fyrir dökkum
skuggum. Útidyrnar stóðu opnar
og þar stóð maður hálffalinn og
hann var í hermannafrakka. Hún sá
glitta á mólmhlut i hendi hans.
„Er þetta lika samkvæmt skipun
höfuðmannsins? ’ ’
„Já, maðurinn í dyrunum. Fólkið
í gluggunum er aðeins að forvitn-
ast um hvað sé á seyði.” Weber
var lika forvitinn þegar hann horfði
á þá David og höfuðsmanninn
ræðast við. Hann hafði misst af
þessum samræðum vegna konunn-
ar. En honum var ómögulegt að
skilja við hana svona kalda og illa
á sig komna. Hún stóð varla i
fæturna. „Komið nú,” sagði hann.
„Ég verð að vera hér kyrr. Vinir
Bohns verða að sjá mig. Annars
trúa þeir honum ekki og...” Hún
starði á veginn um leið og bílarnir
komu i ljós. „David...varaðu þig.”
Fremri bíllinn náði ekki að keyra
hann niður, en straukst við Merced-
esbílinn og beygði því næst snöggt
til vinstri og hafði næstum ekið á
steinvegg. Hinn bíllinn fylgdi í kjöl-
farið. Á þessum fáeinu sekúndum
höfðu mennirnir séð meira en Jo.
Þeir höfðu líka séð skuggana í
gluggunum og mann í dyragætt
gerö 518
PRJÓNASTOFAN MBWtí
Nýju peysurnar eru
tilbúnar:
2. TBL. VIKAN 21